Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Mugison fór í túr með pabba:„Hann kemur út og stingur sér eins og þetta væri sundlaug – í þorskinn“

Tónlistar­maðurinn Örn Elías Guðmundsson, sem allir þekkja sem Mugison, var til sjós áður en hann hellti sér út í tónlistina af alvöru í kringum aldamótin.

Ferill hans til sjós hófst þegar hann flutt til Hríseyjar um það leyti sem hann hóf nám í 10. bekk grunn­skóla. Hann tók þá sumar í frysti­húsinu og svo einn eða tvo túra með pabba sínum.

Það sumar hafði hann augastað á að skella sér á hátíðina Halló Akureyri sem þá var haldin yfir Verslunar­manna­helgi en pabbi hans, líklega með það fyrir augunum að koma í veg fyrir að hann færi á eitthvað rall, hvattihann til að koma með sér á viku túr.

Þeir tóku 6 tíma stím og komu að þar sem fjölmargir bátar voru að veiðum en pabbi hans ákvað að taka stefnuna annað sem reyndist örlaga­ríkt því þeir gersam­lega mok-veiddu. Tjöld voru sett meðfram síðum svo aðrir bátar sæu ekki hversu mikið þeir voru að fiska og Mugson segir frá því að í mesta hama­ganginum hafi faðir hans verið í þannig ham að hann átti helst von á því að honum yxu vígtennur.

„Það kom eitt í viðbót, rifnaði náttúru­lega og fiskur út um allt. Hann kemur út úr stýris­húsinu og stingur sér eins og þetta væri sundlaug; í þorskinn! Við komum í land á miðvikudegi eða fimmtudegi og ég fór með fulla vasa af peningum á Halló Akureyri og skemmti mér konunglega. Ég var reyndar hand­tekinn en það er önnur saga.“

Sú saga fylgir.

Mugison ræðir lífið til bæði sjós og lands en hann gaf nýlega út plötna „É Dúdda Mía“ og heiðraði okkur með því að flytja lagið „Hugsa Til Þín“ í lok þáttarins.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér á hlaðvarps­veitu Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Slysið varð aðfaranótt sunnudags á blautum vegi við Flúðir.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Stefnir í rólegt stuð

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027