Íslenskur karlmaður í Reykjanesbæ hefur verið ákærður fyrir fjárdrátt þar sem hann dró að sér fé fyrrverandi eiginkonu sinnar og tengdaföður.
Ákærurnar eru í tveimur liðum.
Í fyrra tilfellinu er hann ákærður fyrir fjárdrátt með því að hafa með því að hafa þann 16. júní 2022 stofnað í Arion bankareikning í nafni fyrrverandi eiginkonu sinnar með því að fara inn á heimabanka hennar með því að hafa notað rafræn skilríki hennar án heimildar og vitundar hennar og í kjölfar þess hafa á tímabilinu 16. júní 2022 til og með 22. júlí 2022 tekið yfirdrátt á reikninginn og ráðstafað út af reikningnum í alls 23 sinnum, annars vegar greitt til fyrirtækis i tveimur færslum, samtals 5.259 kr. og hins vegar lagt í 21 færslu af reikningum inn á reikning í hans eigu, samtals 1.141.237 kr.
Með háttsemi sinni notaði maðurinn aðstöðu sína og stofnaði bankareikning í nafni hans fyrrverandi, dró sér fé af reikningnum og kastaði eign sinni á fjármuni í eigu heannar og notaði heimildarlaust í sjálfs sín þarfir.
Í seinna tilfellinu er hann ákærður fyrir fjárdrátt með því að hafa á tímabilinu 10. september 2023 til og með 13. október 2023 notfært sér veikindi og yfirburðastöðu sína gegn fyrrum tengdaföður, og komist yfir debet- og kreditkort hans og öryggisnúmer kortanna, í kjölfar þess tók ákærði í samtals 14 sinnum út af kortunum í hraðbönkum reiðufé samtals 377.000 kr.
Með háttsemi sinni notaði ákærði aðstöðu sína og komst yfir kredit- og debetkort mannsins og öryggisnúmer þeirra korta og í kjölfarið dró ákærði sér fé af kortunum og kastaði eign sinni á fjármuni í eigu mannsins og notaði heimildarlaust í sjálfs sín þarfir.
Þess er krafist að hinn ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness þann 13. maí.

Komment