
Uppstillingarnefnd Miðflokksins í Hafnarfirði hefur skilað niðurstöðu og mun Einar Geir Þorsteinsson leiða lista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Einar Geir er 35 ára lögfræðingur með héraðsdómslögmannsréttindi. Hann hefur starfað hjá Forum lögmönnum og sem lögfræðingur hjá Reykjavíkurborg, þar sem hann sat meðal annars í samninganefnd borgarinnar. Hann býr í Norðurbænum í Hafnarfirði ásamt eiginkonu sinni, Kristínu Þóru Reynisdóttur, og þremur börnum þeirra. Þá hefur hann verið virkur í starfi Miðflokksins, meðal annars sem stjórnarmaður í kjördæmafélagi Suðvesturkjördæmis og í laganefnd flokksins.
Einar segir að brýnt sé að breyta áherslum í bæjarmálum. „Það þarf að breyta um forgangsröðun í Hafnarfirði,“ segir hann. „Við setjum grunnþjónustu, fjölskyldur og atvinnulíf í fyrsta sæti, ekki tilraunaverkefni eða táknræna pólitík. Við munum stöðva útþenslu í rekstri sem skilar ekki mælanlegum ávinningi fyrir bæjarbúa. Almannafé á að verja með ábyrgð og gagnsæi.“
Hann leggur einnig áherslu á að endurskoða stefnu sem hann telur hafa aukið álag á innviði bæjarins. „Við verðum að þora að ræða áhrif umfangsmikillar móttöku hælisleitenda á húsnæðismarkað, skóla og félagsþjónustu í okkar bæjarfélagi.“
Að lokum nefnir hann samgöngumál og stuðning við ungar fjölskyldur sem lykilatriði. „Við viljum endurskoða samgöngusáttmálann svo hann þjóni hagsmunum Hafnfirðinga. Við ætlum að gera bæinn betri fyrir ungar fjölskyldur með auknum sveigjanleika og skipulagi sem tekur mið af hagsmunum barna og foreldra.“
Gert er ráð fyrir að efstu sæti á lista Miðflokksins í Hafnarfirði verði kynnt á næstu dögum.

Komment