1
Fólk

Verðlaunahús í Kópavogi til sölu

2
Pólitík

Segir formann Sjálfstæðisflokksins „ösla um í drullupolli mannhaturs“

3
Heimur

Átján ára piltur skotinn til bana í strætó

4
Heimur

Dularfull hreyfing hvetur til mótmæla í Rússlandi

5
Innlent

Aðskotahlutur í hafragraut

6
Innlent

Gugga í gúmmíbát setur öryggið á oddinn

7
Fólk

Ingunn valin frekar en Ásta eða Þórir

8
Heimur

Spænsk kona þiggur dánaraðstoð

9
Heimur

Hegseth varar Breta við árás á Lundúnir

10
Innlent

Drukkinn faðir dæmdur fyrir að ráðast á börn sín

Til baka

Engar sannanir í meintu kynferðisbrotamáli gegn leikskólabarni

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur í tvígang hætt rannsókn á meintu broti starfsmanns á leikskóla

Akureyri 2
AkureyriLögreglan hefur engar sannanir fundið í málinu
Mynd: Gerd Eichmann

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur í tvígang hætt rannsókn á meintu kynferðisbroti gegn leikskólabarni á Akureyri, þar sem ekkert kom fram sem studdi ásakanir í málinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu sem lögreglan birti á Facebook, í kjölfar umræðu um málið.

Málið var upphaflega tilkynnt til lögreglu í ágúst 2024 af hálfu barnaverndar, eftir að aðstandandi barns greindi frá því að ungur maður hefði sýnt barninu óviðeigandi hegðun. Samkvæmt lögreglu beindist rannsóknin einkum að grun um kynferðislega áreitni vegna meintra kossa.

Við rannsókn málsins komu þó ekki fram gögn sem studdu framburð aðstandanda og var rannsókn hætt í október sama ár. Sú ákvörðun var kærð til Ríkissaksóknara.

Á meðan kæran var til meðferðar bárust lögreglu nýjar upplýsingar frá barnavernd um að maðurinn hefði játað kynferðislega áreitni fyrir ættingja sínum. Í kjölfarið var rannsóknin tekin upp að nýju, en laut að sömu atriðum og áður.

Að sögn lögreglu komu heldur ekki fram ný gögn í þetta skiptið sem studdu ásakanirnar við þá rannsókn og var málinu því lokað á ný í desember 2024. Sú niðurstaða var aftur kærð til Ríkissaksóknara, sem staðfesti ákvörðun lögreglu í apríl 2025.

Barnið fékk réttargæslumann við rannsókn málsins og hefur nýr lögmaður nú tekið það að sér. Lögregla segir að foreldrar hafi verið hvattir til að koma fram með nýjar upplýsingar ef þær væru til staðar, en engar slíkar upplýsingar hafi borist.

Samkvæmt lögreglu liggur því ekki fyrir rökstuddur grunur um að maðurinn hafi gerst brotlegur gagnvart barninu. Embættið segist ekki ætla að tjá sig frekar um málið.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Hulan fellur
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Hulan fellur

Björguðu ungabarni eftir hjartastopp á Tenerife
Heimur

Björguðu ungabarni eftir hjartastopp á Tenerife

Mikil samkeppni um forstjórastöðu
Landið

Mikil samkeppni um forstjórastöðu

Drukkinn faðir dæmdur fyrir að ráðast á börn sín
Innlent

Drukkinn faðir dæmdur fyrir að ráðast á börn sín

Röskva vann stórsigur í stúdentaráðskosningum
Pólitík

Röskva vann stórsigur í stúdentaráðskosningum

Sarah Ferguson sögð undirbúa endurkomu
Heimur

Sarah Ferguson sögð undirbúa endurkomu

Einstaklega smekklegt einbýli í Garðabæ í sölu
Myndir
Fólk

Einstaklega smekklegt einbýli í Garðabæ í sölu

Kastaðist í kekki vegna fjármuna
Innlent

Kastaðist í kekki vegna fjármuna

Nói Siríus aftur í eigu Íslendinga
Peningar

Nói Siríus aftur í eigu Íslendinga

Dæmd fyrir ótrúlegt magn af kannabislaufum
Innlent

Dæmd fyrir ótrúlegt magn af kannabislaufum

Hegseth varar Breta við árás á Lundúnir
Heimur

Hegseth varar Breta við árás á Lundúnir

Innlent

Engar sannanir í meintu kynferðisbrotamáli gegn leikskólabarni
Innlent

Engar sannanir í meintu kynferðisbrotamáli gegn leikskólabarni

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur í tvígang hætt rannsókn á meintu broti starfsmanns á leikskóla
Björn gagnrýnir „sundrungu“ meðal blaðamanna
Innlent

Björn gagnrýnir „sundrungu“ meðal blaðamanna

Drukkinn faðir dæmdur fyrir að ráðast á börn sín
Innlent

Drukkinn faðir dæmdur fyrir að ráðast á börn sín

Kastaðist í kekki vegna fjármuna
Innlent

Kastaðist í kekki vegna fjármuna

Dæmd fyrir ótrúlegt magn af kannabislaufum
Innlent

Dæmd fyrir ótrúlegt magn af kannabislaufum

Loka auglýsingu