1
Innlent

Bryndís stal sjö milljónum

2
Minning

Árni Árnason er fallinn frá

3
Heimur

Þrítug kona grunuð um að hafa drekkt dóttur sinni á Kanarí

4
Innlent

Hótelstarfsfólk hringdi á lögreglu vegna stórfurðulegs atviks

5
Fólk

Selja stórfenglega Vesturbæjarperlu fyrir háa upphæð

6
Innlent

Særún metin hæfari en fyrrverandi þingmaður

7
Minning

Eysteinn Helgason er látinn

8
Pólitík

Átta spurningar sem Sigmundur Davíð þorir ekki að svara

9
Heimur

Segir Bandaríkin og Ísrael þegar hafa tapað stríðinu við Íran

10
Innlent

Lögreglan varar við svikurum

Til baka

Fótboltabækur Drápu skora hátt

Fótboltistarnir, Fótboltaspurningar og Allt um fótboltaheiminn.

Ásmundur Helgason
ÚtgefandinnÁsmundur kampakátur með fótboltabækurnar frá Drápu.
Mynd: Aðsend

Fréttir af sölu barna- og unglingabóka hafa verið jákvæðar undanfarnar vikur, og ekki veitir af sé litið til umræðu um læsi barna og unglinga. Það má færa rök fyrir því að bækur fyrir þessa hópa séu mikilvægustu bækur sem koma út. Undanfarin ár hafa börn og unglingar fengið sífellt færri bækur í jólagjöf en það er þá kannski að breytast.

Fjöldi bóka um fótbolta hefur sjaldan verið meiri en nú í ár og það gæti verið hluti af skýringunni á söluaukningu bóka fyrir börn og unglinga. Bókaútgáfan Drápa hefur verið dugleg við að gefa út fótboltabækur og í ár gefur Drápa út þrjár bækur þar sem fótboltinn er í aðalhlutverki.

Fótboltaspurningar

„Við erum með þrjár ólíkar bækur sem byggjast á hinum fallega leik,“ segir Ásmundur Helgason, annar eigandi Drápu. „Við erum með eina spurningabók eftir sjálfan Illuga Jökulsson sem heitir einfaldlega Fótboltaspurningar Illuga Jökulssonar. Þessi er númer tvö í röðinni, sú fyrri koma út fyrir ári síðan. Illugi stillir bókinni upp í 15 kafla sem innihalda 15 spurningar hver. Spurningarnar eru ótrúlega fjölbreyttar. Hann spyr um boltann hér heima, fer líka víða um heim, og spyr bæði um kvenna- og karlaboltann. Leikvellir, búningar, stuðningsmenn, gælunöfn, HM, EM, Meistaradeildin, Íslandsmótið og allt hitt – ég efast um að nokkur maður geti vitað öll svörin. Og þó að maður standi á gati þá er bókin stórskemmtileg og mjög fróðleg. Ég sjálfur veit talsvert meira en ég gerði áður en ég las bókina.“

Fotboltaspurningar_Illuga_TVO_KAPA_FRONT

Fótboltistarnir

„Fótboltistarnir er bókaflokkur sem við fáum frá Spáni. Nýjasta bókin heitir Ráðgátan um stolnu styttuna. Bækurnar eru um krakkana í Skógargerði. Í byrjun hverrar bókar eru þau að fara að spila úrslitaleik en svo kemur eitthvað uppá, það skapast eitthvað vandamál (eða ráðgáta) utanvallar sem þau þurfa að leysa. Og þá reynir á samtakamáttinn. Þau leysa málið og svo klárast leikurinn í lok bókar. Stundum vinna þau en stundum tapa þau viðkomandi leik. Þessi bókaflokkur er ógnarvinsæll á Spáni og hafa gert höfundinn að vinsælasta barnabókahöfundi Spánar.“

Fótbistar 3 káp

Allt um fótbolta

„Síðasta bókin um fótbolta sem við erum með fjallar hreinlega um allt um fótboltann. Enda heitir hún Allt um fótboltaheiminn. Hér er farið yfir allar heimsálfurnar, frægustu liðin, bestu fótboltakonurnar og -karlan, og svo framvegis og framvegis. Þessi bók kemur líka frá Spáni og við ákváðum að gefa hana út þar sem hún afar aðgengileg fyrir unga lesendur. Stuttir textar og ríkulega myndskreytt.“

Allt_um_fotbh_KAPA_ISL_FRONT

„Af hverju fótboltabækur spyrðu? Kannski vegna þess að við höfum góða reynslu af því að gefa út bækur um fótbolta og við finnum það að t.d. ömmur og afar velja fótboltabækur gjarnan sem jólagjafir. Það spilar kannski líka inní að ég er haldinn fótboltadellu á háu stigi. Lifi Þróttur!“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Ökumaður kærður fyrir að aka um göngugötu
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að aka um göngugötu

Ræða frumvarp sem mun tvöfalda hámarksrefsingu vegna samkynhneigðar
Heimur

Ræða frumvarp sem mun tvöfalda hámarksrefsingu vegna samkynhneigðar

Arna Danks býður sig fram
Pólitík

Arna Danks býður sig fram

Lögreglan varar við svikurum
Innlent

Lögreglan varar við svikurum

Steinhissa yfir vistaskiptum Kjartans og Mörtu
Pólitík

Steinhissa yfir vistaskiptum Kjartans og Mörtu

Bryndís stal sjö milljónum
Innlent

Bryndís stal sjö milljónum

Özur Lárusson er fallinn frá
Minning

Özur Lárusson er fallinn frá

„Börnin fyrst, svo allt hitt”
Innlent

„Börnin fyrst, svo allt hitt”

Falið djásn í Grafarvogi sett á sölu
Myndir
Fólk

Falið djásn í Grafarvogi sett á sölu

Átta spurningar sem Sigmundur Davíð þorir ekki að svara
Pólitík

Átta spurningar sem Sigmundur Davíð þorir ekki að svara

Hótelstarfsfólk hringdi á lögreglu vegna stórfurðulegs atviks
Innlent

Hótelstarfsfólk hringdi á lögreglu vegna stórfurðulegs atviks

Borgarfulltrúar yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn
Pólitík

Borgarfulltrúar yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn

Kynning

Fótboltabækur Drápu skora hátt
Kynning

Fótboltabækur Drápu skora hátt

Fótboltistarnir, Fótboltaspurningar og Allt um fótboltaheiminn.
Gunnar Smári finnur fyrir létti en uppgjöri er ólokið
Grein

Gunnar Smári finnur fyrir létti en uppgjöri er ólokið

„Eins einmanalegt og maður leyfir því að vera“
Viðtal
Kynning

„Eins einmanalegt og maður leyfir því að vera“

Værir þú til í sex kassa af nýjum lúxus Dubai-pinnaís?
Kynning

Værir þú til í sex kassa af nýjum lúxus Dubai-pinnaís?

„Næst hittumst við í Moskvu“
Grein

„Næst hittumst við í Moskvu“

Loka auglýsingu