1
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

2
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

3
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

4
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

5
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

6
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

7
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

8
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

9
Innlent

Toyota innkallar Lexus NX

10
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Til baka

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal

„Við ætlum okkur að byggja eitthvað miklu meira en bara eitthvað hús.“

Gló - Reykjadal
Gló - ReykjadalFólk og fyrirtæki eru hvött til að leggja söfnuninni lið
Mynd: Gló stuðningsfélag

Gló stuðningsfélag hefur hrundið af stað söfnunarátaki til að fjármagna nýjan matsal í sumarbúðunum í Reykjadalur. Samhliða framkvæmdunum verður eldhús endurnýjað og aðstaða starfsfólks bætt.

Áætlaður heildarkostnaður verkefnisins er yfir 300 milljónir króna og byggir fjármögnunin á framlögum úr sjóðum, styrkjum og stuðningi frá almenningi og fyrirtækjum.

Núverandi aðstaða uppfyllir ekki kröfur

Matsalurinn í Reykjadal er miðpunktur starfseminnar, þar sem gestir borða saman og eiga samverustundir. Hins vegar er núverandi aðstaða orðin of lítil og aðgengi ábótavant. Sama á við um eldhús og vinnuaðstöðu starfsfólks sem þykir víða úrelt.

Þröng rými og takmarkað aðgengi valda því að ekki allir geta setið við sama borð, bókstaflega.

Til stendur að byggja um 370 fermetra viðbyggingu með rúmgóðum matsal, nútímalegu eldhúsi og bættri aðstöðu fyrir starfsfólk. Sérstök áhersla verður lögð á algilda hönnun, þannig að aðgengi verði hluti af grunnuppbyggingu mannvirkisins.

Viðbyggingin er hönnuð af Teiknistofan Stika og Birtu Fróðadóttur arkitekt, lóðarhönnun er í höndum Landslag og verkfræðihönnun hjá Ferill verkfræðistofa.

Reykjadalur
Mynd: Gló stuðningsfélag

„Aðstaðan í gamla skálanum sem við nýtum sem matsal mætir hvorki þörfum gestanna né almennum kröfum um aðgengi,“ segir Hildur Helgadóttir, starfandi forstöðumaður Reykjadals í fréttatilkynningu.

„Við ætlum okkur að byggja eitthvað miklu meira en bara eitthvað hús. Við viljum byggja rými sem skapa aðstæður sem hvetja til samveru, leiks og auðvitað góðrar næringar.“

Starfsemi með langa sögu

Frá árinu 1963 hefur Gló stuðningsfélag byggt upp og rekið sumarbúðir í Reykjadal þar sem fötluð börn og ungmenni fá tækifæri til að taka þátt í leik og félagslífi á eigin forsendum. Starfsemin hefur á síðari árum stækkað og nær nú einnig til helgardvala og annarra tómstunda yfir vetrartímann.

Aðstaðan hefur hins vegar ekki fylgt þessari þróun og því er þörf á umfangsmikilli uppbyggingu.

Með söfnuninni, sem ber heitið „Sumargjöf Reykjadals“, er almenningur og fyrirtæki hvött til að leggja verkefninu lið. Markmiðið er að skapa aðgengilegt og hlýlegt umhverfi fyrir komandi kynslóðir.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Netanyahu vill nota rafmyntir til að komast hjá refsiaðgerðum
Heimur

Netanyahu vill nota rafmyntir til að komast hjá refsiaðgerðum

Seðlabankastjóri Ísraels er á öðru máli.
Skelfilegar ásakanir á hendur föður Meghan Markle rannsakaðar á Filippseyjum
Heimur

Skelfilegar ásakanir á hendur föður Meghan Markle rannsakaðar á Filippseyjum

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?
Skoðun

Dávur í Dali

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan
Heimur

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Sveinn Rúnar Sigurðsson, læknir og lagahöfundur, segir dauða rúmlega ársgamallar stúlku í rússneskri árás á Kharkív minna á þann hrylling sem úkraínskir borgarar búi við daglega. Hann gagnrýnir jafnframt hörð viðbrögð fjölmargra Íslendinga við fréttum af íslenskum stuðningi við Úkraínu.
Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Loka auglýsingu