
Bílaumboðið Hekla
Mynd: Hekla
Hekla hefur sent frá sér tilkynningu um innköllun á VW ID.Buzz 2023.
Ástæða innköllunarinnar er að einingar í háspennurafhlöðu losa sjálfar hleðslu. Slíkt getur leitt til þess að það kvikni í rafhlöðunni. Þar af leiðandi mælir Hekla með að ökutæki sé ekki hlaðið yfir 80% af hleðslugetu og að alltaf sé hlaðið utandyra þar til viðgerð hefur verið framkvæmd.
Mun Hekla uppfæra hugbúnað og athuga hvort skipta þurfi út rafhlöðunni.
Eigir þú VW ID.Buzz 2023 skaltu hafa samband við Heklu sem fyrst.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment