Söngkonan og fasteignasalinn Hera Björk Þórhallsdóttir verður í 12. sæti hjá Viðreisn í Mosfellsbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum en það var staðfest á fundi Viðreisnar fyrr í dag.
Hera er ein af fáum sem hafa tekið þátt í Eurovision fyrir hönd Íslands oftar en einu sinni en árið 2010 tók hún þátt með laginu Je ne sais quoi og lenti hún í 19. sæti þá og svo lenti hún í 15. sæti í undankeppninni árið 2024 og fékk aðeins þrjú stig.
Þátttaka Heru árið 2024 þótti mjög umdeild á sínum tíma og stóð starfsmaður ísraelska ríkissjónvarpsins fyrir herferð fyrir hönd Heru til að tryggja henni sigur gegn hinum palestínska Bashar Murad, sem þótti sigurstranglegastur það árið, í íslensku undankeppninni.
Íslandi var spáð frábæru gengi í úrslitakeppni Eurovision hefði Murad unnið.
Listinn í heild sinni
- Gylfi Þór Þorsteinsson, sviðsstjóri hjá Rauða krossi Íslands
- Valdimar Birgisson, rekstrarráðgjafi og varaþingmaður
- Elín Anna Gísladóttir, verkfræðingur
- Berglind Robertson Grétarsd., leikskólastjóri
- Haukur Skúlason, annar stofnenda indó og fv. framkvæmdastjóri
- Guðrún Þórarinsdóttir, viðurkenndur bókari
- Birgir Örn Birgisson, lögfræðingur
- Erla Björk Gísladóttir, MSc í mannauðsstjórnun og B.S. í ferðamálafræði
- Óðinn Freyr Baldursson, kvikmyndaframleiðandi
- Valgerður Lilja Jónsdóttir, gæðastjóri
- Sigurður Unnar Ragnarsson, stuðningsfulltrúi og aðstoðarmaður kennara í FMOS
- Hera Björk Þórhallsdóttir, löggiltur fasteignasali og söngkona
- Kjartan Jóhannes Hauksson, nemi í viðskiptafræði
- Hildur Björg Bæringsdóttir, viðskiptafræðingur og kennari
- Magnús Sverrir Kristófersson, smiður og sölumaður fasteigna á Tenerife
- Eyja Eydal Björnsdóttir, teymisstjóri í sértækri búsetu
- Reynir Matthíasson, framkvæmdastjóri
- Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir, viðskiptafræðingur
- Helgi Pálsson, framkvæmdastjóri
- Ólöf Guðmundsdóttir, kennari í Varmárskóla
- Bolli Valgarðsson, Ráðgjafi hjá Skarfavík ehf. almannatengslum og ráðgjöf
- Lovísa Jónsdóttir, lögfræðingur og fráfarandi oddviti


Komment