
Hjálmtýr Heiðdal, formaður félagsins Ísland–Palestína, gagnrýnir harðlega umfjöllun Morgunblaðsins um meint tengsl einstaklinga við Hamas, sem og viðbrögð fjölmiðlamannsins Stefáns Einars Stefánssonar í kjölfarið.
Í Facebook-færslu í dag segir Hjálmtýr að Stefán Einar, sem stýrir netþættinum Spursmál, hafi fjallað um málið og rætt við meðal annars Grím Grímsson þingmann. Þar hafi Stefán varið þá ákvörðun að birta frétt án nafns blaðamanns með vísan til öryggis.
Hjálmtýr vitnar orðrétt í Stefán:
„Það hefur verið gert tortryggilegt, meðal annars af öðrum fjölmiðlum, að fréttin á forsíðu Morgunblaðsins sé ekki merkt með nafni. Af hverju halda menn að það sé? Það er vegna þess að menn óttast um öryggi sitt, blaðamenn óttast um öryggi sitt vegna umfjöllunar um þessa hópa.“
Hann bendir hins vegar á að daginn eftir birtingu fréttarinnar hafi bæði Stefán Einar og blaðamaður Morgunblaðsins, Ólafur E. Jóhannsson, tjáð sig opinberlega um málið undir eigin nafni á samfélagsmiðlum.
Í færslunni segir Hjálmtýr:
„Daginn eftir að nafnlausa fréttin birtist skeiðaði Stefán Einar sjálfur og Ólafur E. Jóhannsson blaðamaður Mbl fram á ritvöllinn og á samfélagsmiðlum um sama mál undir fullu nafni - algjörlega óttalausir.“
Hjálmtýr telur skýringuna á nafnleyndinni aðra og gagnrýnir vinnubrögðin harðlega. Hann segir:
„Ástæðan er einföld: nafnlausu greinarnar byggðu á getgátum og slúðri sem enginn blaðamaður með sjálfsvirðingu hefði birt í eigin nafni.“

Komment