
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í dag, en tilkynningar bárust vegna ólíkra brota og atvika.
Í Reykjavík var tilkynnt um hóp ölvaðra einstaklinga á almannafæri.
Í Reykjavík var ökumaður kærður fyrir að aka sviptur ökurétti. Viðkomandi var einnig látinn blása í áfengismæli en mældist undir refsimörkum.
Þá var tilkynnt um þjófnað í matvöruverslun í Hafnarfirði.
Í Breiðholti var aðili handtekinn fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Við leit á honum fundust einnig fíkniefni í vörslu hans.
Ökumaður var handtekinn í Kópavogi grunaður um ölvunarakstur.
Umferðarslys varð í Mosfellsbæ þar sem tvö ökutæki skullu saman. Minni háttar eignatjón varð en engin slys urðu á fólki. Annar ökumaðurinn var kærður fyrir að aka án ökuréttinda.
Að lokum voru ökumenn í Árbænum kærðir fyrir að nota farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur.

Komment