
Dánartilkynning um mann sem reyndist ekki látinn birtist í Morgunblaðinu í morgun. Um er að ræða Sölva Guðmundsson, sem brást við málinu með færslu á Facebook þar sem hann staðfestir að hann sé á lífi.
Í færslunni segir Sölvi að fjölmargir hafi haft samband við sig til að kanna hvort fregnirnar væru réttar. Hann tekur skýrt fram að svo sé ekki og að hann sé „sprelllifandi“.
Sölvi nafngreinir í færslu sinni tvær konur sem hann telur bera ábyrgð á því að dánartilkynningin birtist. Samkvæmt upplýsingum hans hafa að minnsta kosti sjö einstaklingar lagt fram kæru gegn annarri konunni vegna meintra brota sem tengjast umsáturseinelti. Sölvi er einn þeirra sem hafa kært konuna en hún heitir Íris Helga Jónatansdóttir.
Í færslu sinni lýsir Sölvi yfir mikilli reiði vegna málsins og gagnrýnir jafnframt viðbrögð yfirvalda.
Komment