Tveir íslenskir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir þjófnað á Akureyri. Annar maðurinn er með lögheimili í Reykjavík en hinn í Svíþjóð.
Þeir eru ákærðir fyrir þjófnað, með því að hafa sunnudaginn 13. apríl 2025 í sameiningu stolið fmm snjallúrum úr verslun Vodafone sem staðsett er í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi á Akureyri, en verðmæti þessara muna var um 497.950 kónur.
Þjófnaðurinn fór þannig fram að ákærðu komu saman inn í verslunina og meðan afgreiðslumaðurinn var upptekinn við að afgreiða viðskiptavin stakk annar þeirra tveimur snjallúrum inn á sig og hinn þremur.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Norðurlands þann 7. maí en lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra er ákærandi í málinu.


Komment