1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

7
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

8
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

9
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

10
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Til baka

Morðingi rapparans Gaboro hlaut lífstíðardóm

„Öll morð eru hræðileg, en þetta morð er líklega eitt það versta sem ég hef nokkru sinni fengist við“

Gaboro
GaboroRapparinn hét réttu nafni Ninos Moses Khouri
Mynd: Instagram-skjáskot

Alexander Nord, 22 ára gamall maður, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á sænska rapparanum Gaboro sem var skotinn til bana í bílageymslu í Norrköping í desember árið 2024.

Nord
Alexander NordNord fékk lífstíðardóm fyrir morðið
Mynd: Sænska lögreglan

Nord var sakfelldur fyrir morð og alvarleg vopnalagabrot en hann neitaði sök. Annar maður, þrítugur að aldri, hafði verið ákærður fyrir hlutdeild í morðinu og grunaður um að hafa hvatt skotmanninn til verksins, en hann var sýknaður að fullu fyrir dómstólum.

Nafn hans á dauðalista

Samkvæmt rannsókn lögreglu hafði Gaboro farið í líkamsrækt áður en hann hélt að bifreið sinni í bílageymslu hússins. Þar beið árásarmaðurinn hans.

Í rannsóknargögnum kemur fram að nafn rapparans hafi verið á svokölluðum dauðalista sem tengdist átökum glæpagengja í Norrköping. Þar hafi staðið: „Allir á þessum lista munu deyja fyrr eða síðar.“

Gaboro var hæfður fimm skotum og féll til jarðar í bílageymslunni. Nord tók árásina upp á myndband og síðar dreifðist upptakan á samfélagsmiðlum. Á henni má heyra kvalaöskur rapparans eftir skotárásina.

Lögreglan hefur lýst morðinu sem sérstaklega miskunnarlausu.

„Öll morð eru hræðileg, en þetta morð er líklega eitt það versta sem rannsóknarteymið mitt og ég höfum nokkru sinni fengist við,“ sagði rannsóknarlögreglumaðurinn Jan Staaf áður í yfirlýsingu.

Tengdur við morðið með DNA

Samkvæmt lögreglu bauð Nord sig sjálfur fram til að framkvæma morðið í gegnum spjallhópa á netinu. Rannsakendur tengdu hann við vettvanginn með DNA-sýnum úr bílageymslunni sem síðan voru rakin með ættfræðilegri greiningu.

Engin tengsl eru sögð hafa verið milli hans og rapparans.

Í dóminum kemur fram að vitnisburður fólks nákomins Nord hafi vegið þungt. Fólkið sagðist hafa þekkt föt hans á myndskeiðinu af morðinu.

Eitt vitnið sagði einnig að Nord hefði fyrir morðið sagt að hann ætlaði að gera „eitthvað stórt“ og hefði keypt sér hanska. Eftir morðið hafi hann jafnframt sagst vera maðurinn sem sæist skjóta Gaboro í myndbandinu.

Þá hafi hann beðið viðkomandi um að segja engum frá.

Samkvæmt vitnisburði sagði Nord einnig að hann fengi hærri greiðslu ef hann tæki morðið upp á myndband. Vitni báru jafnframt að hann hefði gert grín að verknaðinum á eftir og virst stoltur af því sem hann hafði gert.

Dæmdur fyrir fleiri brot

Auk morðsins var Nord einnig dæmdur fyrir tilraun til manndráps og alvarleg vopnalagabrot vegna skotárásar á íbúðarhúsnæði í desember 2024, auk annars vopnalagabrots í mars 2025. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir fíkniefnabrot.

Gaboro naut mikilla vinsælda í Svíþjóð, meðal annars á Spotify og TikTok, þar sem eitt laga hans sló í gegn fyrir nokkrum árum. Hann hafði einnig komið fram í sænska ríkisútvarpinu.

Rapparinn varð 23 ára gamall. Hann lést daginn fyrir 24 ára afmælið sitt.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Klippa þurfti bílstjórann út úr vagninum.
Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar
Innlent

Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Stefán má loksins gefa blóð aftur
Fólk

Stefán má loksins gefa blóð aftur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum
Innlent

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum
Myndir
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Klippa þurfti bílstjórann út úr vagninum.
Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Loka auglýsingu