1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

7
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

8
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

9
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

10
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Til baka

Reiðialda gegn Ben-Gvir á samfélagsmiðlum

„Niðurlægjandi“ og „ómannúðlegt“ myndband af þjóðaröryggisráðherra Ísraels olli alheimsreiði.

Ben-Gvir
Itamar Ben-GvirÞeir gerast ekki öfgafyllri en Ben-Gvir
Mynd: Skjáskot

Samkvæmt greiningu fyrirtækisins SCOOPER jókst umræða á samfélagsmiðlum um Itamar Ben-Gvir gríðarlega í gær og náði hámarki í nótt, eftir að ísraelski þjóðaröryggisráðherrann birti umdeilt myndskeið á netinu, þar sem hann ræðst á og niðurlægir aðgerðarsinna úr hjálparflotanum sem reyndu að koma hjálpargögnum til Gaza sjóleiðis. Þetta kemur fram í frétt ísraelska fréttamiðilsins Maariv.

SCOOPER, sem sérhæfir sig í greiningu á umræðu og frásögnum á samfélagsmiðlum, segir að um hálf milljón færslna og ummæla um Ben-Gvir hafi birst á netinu á skömmum tíma. Umræðan hafi verið yfirgnæfandi neikvæð og gagnrýnin gagnvart Ísrael.

Mesta aukningin mældist í umræðu á indónesísku, en enska og spænska voru þau tungumál þar sem umfjöllunin varð hvað útbreiddust.

Samkvæmt greiningunni hófst umræðan að aukast verulega síðdegis í gær og náði hámarki í morgunsárið, þegar tugþúsundir færslna um Ben-Gvir birtust á hverri klukkustund.

SCOOPER segir þetta dæmi um „gríðarlega útbreiðslu atburðar“ sem hafi kallað fram hörð viðbrögð frá leiðtogum, utanríkisráðherrum og stórum fjölmiðlum víða um heim.

Enska var langmest notaða tungumálið í umræðunni, með um 220 þúsund færslur frá um 100 þúsund mismunandi notendum. Sú umræða skapaði um eina milljón viðbragða, þar á meðal læk, deilingar og athugasemdir.

Spænska var næststærsta tungumálið með um 65 þúsund færslur um Ben-Gvir og yfir 273 þúsund viðbrögð. Þar á eftir kom ítalska, þar sem umræða jókst um 37 prósent og náði rúmlega 40 þúsund færslum, meðal annars í kjölfar opinberrar gagnrýni frá stjórnvöldum í Róm.

Á frönsku mældust um 35 þúsund færslur og á tyrknesku um 22.700 færslur. Þar jókst virkni notenda um meira en 400 prósent. Á indónesísku jókst umfang umræðunnar um rúm 435 prósent.

„Niðurlægjandi“ og „ómannúðlegt“

Samkvæmt SCOOPER snerist alþjóðlega umræðan ekki fyrst og fremst um stöðvun hjálparflotans sjálfs, heldur um framgöngu Ben-Gvirs og myndbandið sem hann birti.

Algengustu lýsingarnar á myndskeiðinu í alþjóðlegri umræðu voru meðal annars að það væri „niðurlægjandi“, „ómannúðlegt“ og „meðvituð pólitísk ögrun“.

Þá segir í greiningunni að neikvæð umræða hafi aukist enn frekar vegna harðrar gagnrýni innan Ísraels sjálfs, þar á meðal frá Benjamin Netanyahu forsætisráðherra og Gideon Sa'ar utanríkisráðherra.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Klippa þurfti bílstjórann út úr vagninum.
Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar
Innlent

Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Stefán má loksins gefa blóð aftur
Fólk

Stefán má loksins gefa blóð aftur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum
Innlent

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum
Myndir
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Klippa þurfti bílstjórann út úr vagninum.
Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Loka auglýsingu