
Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, bar sigur úr býtum í kosningum til stúdentaráðs og háskólaráðs sem fram fóru í gær. Hreyfingin tryggði sér 11 af 17 sætum í stúdentaráði og náði meirihluta á fjórum af fimm sviðum skólans. Þá fékk Röskva einnig kjörinn fulltrúa í háskólaráð.
Undanfarin tvö ár hefur Röskva verið í minnihluta í stúdentaráði, en með þessum úrslitum snýr hreyfingin aftur í meirihluta eftir tiltölulega stutta setu utan valda.
Ármann Leifsson, forseti Röskvu, segir sigurinn byggja á mikilli vinnu félaga hreyfingarinnar:
„Sigur Röskvu í kosningunum er tugi ef ekki hundruða harðduglegra Röskvuliða og þeirra þrotlausu vinnu að þakka. Slagorð okkar var að stúdentar eigi betra skilið, stúdentar voru sammála. Sigur Röskvu er sigur fyrir hagsmunabaráttu stúdenta og jafnrétti allra háskólanema til náms.“

Komment