
Sérsveitin réðst inn í íbúð Quang Le í Reykjavík í morgun.
Hinn víetnamski Quang Le hefur verið mikið í fréttum undanfarin ár en hann er grunaður um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi en tvo ár eru síðan lögreglan hóf rannsókn sína en Le sætir farbann.
Samkvæmt vitni var um nokkuð stóra lögregluaðgerð að ræða en sérsveitarmenn þurftu að brjóta upp útidyrahurðina.
„Ég sá að minnsta kosti þrjá bíla,“ segir vitnið í samtali við Mannlíf. „Ég sá fjóra sérsveitarmenn með grímur og svona búnað til að brjóta niður hurð. Ég taldi nú ekki en þetta var heilmikill mannskapur, þarna fyrir utan.“ Segir vitnið að seinna hafi lásasmiður mætt á vettvang og því hafi hurðin sennilega verið brotin upp í aðgerðinni.
Aðspurt hvort einhver hafi verið handtekinn í aðgerðinni segist vitnið ekki vera viss en að bíl hafi verið bakkað alveg upp að húsinu. „Það fór einn bíll fljótlega að þeim. Hann bakkaði upp að húsinu en öll bílastæðin voru full þannig að þeir þurftu að leggja upp á gangstéttinni. Og einn þeirra bakkaði upp að húsinu og fór fyrr en ég sá ekki hvort einhver var leiddur út eða ekki.“
Vitnið sagði að lögreglan hafi farið í allt húsið, bæði í bílskúrinn og kjallarann, sem og í aðalíbúðina.
Mannlíf reyndi að ná tali af Embætti ríkislögreglustjóra en bíður enn eftir svari.

Komment