
Slagsmál tveggja kvenna brutust út á þekktum lúxusveitingastað í Beverly Hills í Kaliforníu á dögunum og þurftu starfsmenn staðarins að ganga á milli þeirra.
Atvikið átti sér stað á Steak 48, vinsælum steikhúsastað í Beverly Hills, og náðist það á myndband sem hefur verið birt á samfélagsmiðlum og bandarískum fjölmiðlum.
Á upptökunni má sjá konurnar tvær takast harkalega á inni í matsal staðarins á meðan aðrir gestir fylgjast með. Ekki liggur fyrir hvað varð til þess að átökin hófust.
Konurnar slógu og spörkuðu hvor í aðra og enduðu um tíma á gólfi veitingastaðarins þar sem átökin héldu áfram. Þær voru báðar spariklæddar og virðast hafa verið gestir á staðnum þegar upp úr sauð.
Að lokum gripu tveir einstaklingar, sem virðast vera starfsmenn veitingastaðarins, inn í og tókst þeim að skilja konurnar að.
Þar með var málinu þó ekki lokið. Þegar önnur konan var beðin um að yfirgefa veitingastaðinn neitaði hún samkvæmt myndbandinu að verða við þeim fyrirmælum. Hún tók síðan upp tauþurrku og sveiflaði henni í átt að öðrum viðstöddum.
Ekki liggur fyrir hvort lögregla var kölluð á vettvang eða hvort einhver hafi verið handtekinn vegna atviksins.
Steak 48 er þekktur fyrir dýran matseðil og glæsilegt yfirbragð.
