Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Staðgöngumóðir fæddi barn gegn vilja líffræðilegra foreldra

Vill vera skráð lögmóðir barnsins

McKenna West
McKenna West Ætlar sér for­ræði.

Staðgöngu­móðirin McKenna West segist reiðubúin að fara með deilu sína um forræði yfir barni, sem hún gekk með fyrir par í Kaliforníu, alla leið fyrir Hæstarétt Banda­ríkjanna. Dómstóll í Kaliforníu hefur úrskurðað að líffræði­legir foreldrar barnsins fari með forræði þess.

Lincoln Wilson, lögmaður West, segir í samtali við New York Post að skjólstæðingur sinn ætli að láta reyna á gildi úrskurðarins. West fæddi barnið í Texas og telur lögmaður hennar að samkvæmt lögum ríkisins eigi hún að teljast móðir barnsins.

„Við förum með málið fyrir Hæstarétt Banda­ríkjanna ef þess þarf,“ sagði Wilson. Hann telur að verði úrskurður dómstólsins í Kaliforníu felldur úr gildi muni West teljast móðir barnsins samkvæmt lögum Texas.

Deilan á rætur að rekja til staðgöngu­mæðra­samnings sem West gerði við parið í Kaliforníu. Í samningnum var meðal annars ákvæði sem heimilaði líffræði­legu foreldrunum að óska eftir því að meðgöngu yrði slitið ef alvarlegt frávik kæmi í ljós hjá fóstrinu.

Á meðgöngunni greindist barnið með hypoplastic left heart syndrome, alvarlegan meðfæddan hjarta­galla þar sem vinstri hluti hjartans er vanþroskaður. Líffræði­legu foreldrarnir vildu að meðgöngunni yrði slitið en West neitaði. Hún hélt þess í stað til Texas þar sem hún fæddi drenginn.

Málið hefur síðan þróast í umfangs­mikla lagadeilu milli West og líffræðilegra foreldra barnsins.

Dómstóll hefur nú gefið út tíma­bundið nálgunar- og bann­úrskurð gegn West. Samkvæmt honum er henni óheimilt að taka læknis­fræðilegar ákvarðanir fyrir hönd drengsins, taka hann í sína vörslu eða halda því fram að hún sé foreldri hans eða forráða­maður.

Henni er jafnframt óheimilt að fjarlægja barnið af sjúkra­húsi eða hindra aðgang líffræði­legu foreldranna að því.

Úrskurðurinn gildir að minnsta kosti til 25. ágúst, en West hefur verið gert að mæta fyrir dómstól í Dallas þann dag. Þar verður næsti kafli deilunnar um forræði og lagalega stöðu barnsins tekinn fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs