Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Lögreglumaður kýldi unga liggjandi konu

Mældi hana á 71 mílna hraða þar sem hámarks­hraði var 60 mílur á klukku­stund.

Sést kýla hana á myndbandi
Sést kýla hana á mynd­bandi Mynd: Skjáskot

Lögreglu­maður í Arkansas í Banda­ríkjunum hefur sætt gagnrýni eftir að myndbands­upptaka sýndi hann fella 18 ára konu í götuna og slá hana við handtöku. Lögmaður konunnar krefst þess að málið verði rannsakað formlega.

Atvikið átti sér stað 1. ágúst þegar Alisa Hackett var stöðvuð við akstur. Lögreglu­maðurinn Moisses Arellano hafði samkvæmt skýrslu mælt hana á 71 mílna hraða þar sem hámarks­hraði var 60 mílur á klukku­stund.

Myndbands­upptaka úr lögreglu­bifreið sýnir Arellano fyrir­skipa Hackett að leggja hendur á skott bifreiðarinnar og færa sig aftur á bak. Skömmu síðar fellir hann hana harkalega í götuna og slær hana. Hackett sést og heyrist ítrekað spyrja hvað hún hafi gert og biðja um að fá að hringja í móður sína.

Arellano sagði í skýrslu um vald­beitinguna að áfengis­flaska hefði fundist í farþega­sæti bifreiðarinnar en Hackett hefur ekki náð aldri til að kaupa áfengi í Banda­ríkjunum. Hann kvaðst jafnframt hafa ákveðið að handtaka hana eftir að hafa komist að því að hún hefði fengið aðvörun í sambærilegu umferðar­stoppi nokkrum dögum áður.

Samkvæmt frásögn lögreglu­mannsins dró Hackett hand­leggina undan honum og neitaði að velta sér yfir á magann. Hann kvaðst því hafa slegið hana einu höggi með krepptum hnefa til að fá hana til að hlýða fyrir­mælum.

Mann­réttinda­lögmaðurinn Ben Crump hefur krafist þess að ríkis­lögreglan í Arkansas hefji formlega rannsókn á vald­beitingunni, birti niður­stöður hennar opinber­lega og afhendi upplýsingar um mögulegar fyrri kvartanir eða skýrslur vegna Arellano.

Almanna­varna­ráðuneyti Arkansas segir að öll tilvik þar sem lögreglu­menn beita valdi séu tekin til innri skoðunar samkvæmt hefð­bundnu verklagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs