
Smári McCarthy, fyrrverandi þingmaður Pírata, segir rangt að halda því fram að Ísland myndi glata sjálfstæði sínu með inngöngu í Evrópusambandið. Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem hann birti í dag, skömmu eftir að ríkisstjórn Íslands tilkynnti að hún hyggist spyrja þjóðina hvort halda eigi áfram viðræðum um mögulega aðild að sambandinu.
Í færslunni segir Smári að þeir sem haldi því fram að aðild að ESB þýði tap á sjálfstæði þurfi að útskýra nákvæmlega hvernig ríki eins og Spánn, Svíþjóð, Finnland, Lettland, Slóvenía og Lúxemborg séu þá ekki sjálfstæð lönd.
Hann segir að það að ganga af fúsum og frjálsum vilja til samstarfs og samræmingar við önnur ríki til að efla eigin hagsmuni sé ekki það sama og að afsala sér sjálfstæði.
Þvert á móti telur Smári að slíkt samstarf geti dregið úr líkum á því að raunverulegt sjálfstæði glatist.
„Ef eitthvað er minnkar það líkurnar á því að raunverulegt sjálfstæði glatast, með því að fjölga valkostum sem eru fyrir hendi hverju sinni,“ skrifar hann.

Komment