1
Fólk

Selja eitt óhefðbundnasta einbýli Íslands

2
Innlent

Bróðir Margrétar Löf opnar sig um andlát föður síns

3
Innlent

Einar bauð Davíð í hádegismat

4
Menning

Brotthvarf Sölku Sólar hluti af stórum breytingum á Rás 2

5
Innlent

Selfyssingur hótaði að drepa mann fyrir framan fjölskyldu hans

6
Innlent

Hótanir í Árbænum

7
Innlent

„Veruleikinn er orðin svo sturlaður að hvergi virðist standa steinn yfir steini“

8
Heimur

Harrison Ford flutti tilfinningaþrungna ræðu á SAG-verðlaununum

9
Heimur

Kelly Osbourne svarar gagnrýni á útlit sitt á BRIT-verðlaununum

10
Innlent

Segir Davíð hafa barist fyrir réttindum samkynhneigðra

Til baka

Stefán Máni segir biskup hvetja landsmenn til að styðja barnamorð

Hnýtir í predikun Guðrúnar Karls

guðrún karls helgudóttir biskup
Guðrún Karls HelgudóttirBiskup Íslands hvatti til afstöðu með börnum og friði.
Mynd: Biskupsembættið

Stefán Máni Sigþórsson rithöfundur skaut fast á biskup Íslands, Guðrúnu Karls Helgudóttur, í færslu á samfélagsmiðlinum X.

Biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir hvatti landsmenn til að taka afstöðu með börnum, saklausu fólki og friði í predikun í Dómkirkjunni í fyrradag. Minntist hún sérstaklega á stríðsglæpina sem framdir eru á Gaza þar sem börn eru drepin í umvörpum. Þá minntist hún einnig á árásir á almenna borgara í Úkraínu og hungurdauða í Súdan.

Rithöfundurinn Stefán Máni Sigþórsson lét predikun biskupsins fara í taugarnar á sér og skrifaði stutta en hnitmiðaða færslu á X, sem hljóðaði eftirfarandi:

„Hvatti landsmenn til þess að styðja hryðjuverk, mannrán, morð á konum og börnum, viðurstyggð, íslam, öfga og barbarisma.“

Guðlaugur nokkur svarar rithöfundinum og lætur hann heyra það.

„Ég minni á að Ísrael hefur ALLTAF myrt langt um fleiri saklausa borgara og börn en Hamas - hvert einasta ár frá stofun Hamas. Þetta er vel skráð og algjörlega augljóst öllum þeim sem eru ekki beinlínis rasistar og múslimahatarar (eins og einn leiðinlegasti rithöfundur Íslands er).“

Stefán Máni svaraði að bragði: „Ekki tala svona um Hallgrím Helgason“.

Guðlaugur svaraði aftur: „Mér dettur það ekki í hug. Hann er þó amk þokkalega frumlegur og vel skrifandi.“

Stefán Máni vakti athygli í byrjun mánaðar þegar hann tróð sér inn í umræðuna um hina geisivinsælu þætti Adolescence, sem fjalla um ofbeldi meðal unglingsdrengja í Bretlandi en rithöfundurinn sagðist ekki hafa horft á þættina því þeir væru „anti-white“.

Byggði hann þá skoðun sína líklega á þeim misskilningi margra á hægri vængnum, að þættirnir væru byggðir á morðmáli þar sem dökkur drengur myrti þrjár ungar stúlkur í Southport síðasta sumar og að kynþætti gerandans hafi verið breytt við gerð þáttanna. Hið rétta er hins vegar að þættirnir byggja á fjölmörgum ofbeldismálum sem komið hafa upp í Bretlandi á undanförnum árum. Þá var byrjað að taka upp þáttaröðina áður en stunguárásin í Southport átti sér stað.

Stefán Máni hefur nú eytt X-færslu sinni um biskup Íslands en yfir átta þúsund manns hafði séð hana áður en hún hvarf.

Stefán Máni
Færsla Stefáns Mána
Mynd: X-skjáskot
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Sex bylgjur íranskra eldflauga yfir Ísrael
Heimur

Sex bylgjur íranskra eldflauga yfir Ísrael

Íranir svara árásum Ísraela og Bandaríkjanna af hörku
Selfyssingur hótaði að drepa mann fyrir framan fjölskyldu hans
Innlent

Selfyssingur hótaði að drepa mann fyrir framan fjölskyldu hans

Macron boðar fjölgun á kjarnorkusprengjuoddum
Heimur

Macron boðar fjölgun á kjarnorkusprengjuoddum

Bróðir Margrétar Löf opnar sig um andlát föður síns
Innlent

Bróðir Margrétar Löf opnar sig um andlát föður síns

Brotthvarf Sölku Sólar hluti af stórum breytingum á Rás 2
Menning

Brotthvarf Sölku Sólar hluti af stórum breytingum á Rás 2

Boðað til skyndimótmæla við utanríkisráðuneytið vegna árása á Íran
Pólitík

Boðað til skyndimótmæla við utanríkisráðuneytið vegna árása á Íran

Harrison Ford flutti tilfinningaþrungna ræðu á SAG-verðlaununum
Myndband
Heimur

Harrison Ford flutti tilfinningaþrungna ræðu á SAG-verðlaununum

Stjórnvöld í sambandi við tugi Íslendinga í Mið-Austurlöndum
Innlent

Stjórnvöld í sambandi við tugi Íslendinga í Mið-Austurlöndum

Einar bauð Davíð í hádegismat
Innlent

Einar bauð Davíð í hádegismat

Hrap bandarískrar herþotu náðist á myndskeið
Myndband
Heimur

Hrap bandarískrar herþotu náðist á myndskeið

Hulin ráðgáta í Tver-skógum: Saga yfirgefinnar hvelfingar
Myndband
Heimur

Hulin ráðgáta í Tver-skógum: Saga yfirgefinnar hvelfingar

Segir Davíð hafa barist fyrir réttindum samkynhneigðra
Innlent

Segir Davíð hafa barist fyrir réttindum samkynhneigðra

Innlent

Selfyssingur hótaði að drepa mann fyrir framan fjölskyldu hans
Innlent

Selfyssingur hótaði að drepa mann fyrir framan fjölskyldu hans

„Þið rænið börnum og misnotið þau“
Bróðir Margrétar Löf opnar sig um andlát föður síns
Innlent

Bróðir Margrétar Löf opnar sig um andlát föður síns

Stjórnvöld í sambandi við tugi Íslendinga í Mið-Austurlöndum
Innlent

Stjórnvöld í sambandi við tugi Íslendinga í Mið-Austurlöndum

Einar bauð Davíð í hádegismat
Innlent

Einar bauð Davíð í hádegismat

Segir Davíð hafa barist fyrir réttindum samkynhneigðra
Innlent

Segir Davíð hafa barist fyrir réttindum samkynhneigðra

Loka auglýsingu