
Stórar fréttir bárust frá Ísafirði fyrr í dag en þá var greint frá því að Gylfi Þór Gíslason hefði sagt af sér sem oddviti Samfylkingarinnar í komandi sveitarstjórnarkosningum. Var það gert eftir deilur innan flokksins og notaði Gylfi orðið „aftaka“ í því samhengi í samtali við Mannlíf.
Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir, nýr oddviti, sendi Mannlíf yfirlýsingu málið fyrir hönd listans.
„Á síðustu dögum hafa farið fram opin og heiðarleg samtöl um stöðu og samstarf innan Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ. Í kjölfar þeirra var ljóst, út frá sameiginlegu mati hópsins, að nauðsynlegt væri að tryggja skýra stefnu og stöðugleika til að halda vinnunni áfram af fullum krafti,“ segir í yfirlýsingunni.
„Við förum ekki leynt með að breytingar hafi orðið á listanum. Slíkar ákvarðanir eru aldrei teknar af léttúð, heldur endurspegla þá ábyrgð sem felst í því að stilla saman öflugan hóp sem getur unnið vel saman og sinnt þeim verkefnum sem fram undan eru. Það er þekkt áskorun, að lenda rétt, þegar flokkar hætta í áratuga löngu kosningabandalagi, og það höfum við í Samfylkingunni í Ísafjarðarbæ nú fengið að reyna,“ stendur svo.
„Við virðum ákvörðun Gylfa Þórs Gíslasonar um að stíga til hliðar og þökkum honum fyrir hans framlag til flokksins í gegnum árin. Jafnframt er það einlæg ósk okkar að hann haldi áfram að vera virkur þátttakandi í starfi Samfylkingarinnar.
Nýr listi hefur nú verið kynntur og er tilbúinn til áframhaldandi vinnu með skýra áherslu á málefni bæjarbúa og sterkt samstarf innan hópsins. Það er trú okkar sem stöndum að framboðinu að með þessum lista sé boðið upp á trúverðugan og skýran valkost fyrir íbúa Ísafjarðarbæjar.“

Komment