HeimurÞrjár óðar konur grýttu vefjum í starfsfólk veitingastaðar – MYNDBAND Ótrúleg uppákoma átti sér stað á föstudaginn í síðustu viku í Vallejo í Kaliforníu í Bandaríkjunum á skyndibitastaðnum Chipotle. Þar voru þrír kvenkyns viðskiptavinir vægast satt ósáttir með eitthvað sem kom upp og tóku sig til og hófu að öskra á starfsfólk og kasta vefjum í það. Ekki liggur fyrir hvað varð til þess að konurnar urðu svo reiðar. Hringt...
HeimurSegir réttarhöldin erfið fyrir Melaniu: „Þú veist, á ákveðnum tímapunkti er komið að þolmörkum“ Donald Trump segir að söguleg réttarhöld yfir honum og refsidómur hafi verið „mjög erfiður“ fyrir eiginkonu sína, fyrrverandi forsetafrú Melania Trump. Í síðustu viku fundu kviðdómendur Trump sekan um að hafa falsað viðskiptaskrár til að leyna greiðslum til fyrrverandi klámstjörnunnar Stormy Daniels í forsetakosningabaráttunni 2016. Með dómnum varð hann fyrsti forseti Bandaríkjanna sem var dæmdur fyrir glæp. Hann hefur ítrekað...
HeimurÍrskur þingmaður hélt tilfinningaþrungna ræðu: „Ég vona að Benjamin Netanyahu brenni í helvíti“ Thomas Goul, þingmaður írska flokksins Sin Fein, hélt tilfinningaþrungna ræðu vegna þess hryllings sem heimsbyggðin horfir upp á frá Gaza um þessar mundir. Sagðist Goul vona að Benjamin Netanyahu muni „brenna í helvíti“ þegar hans tími kemur. Ræðuna hélt Goul stuttu eftir fréttir af hrottafenginni árás Ísraelshers á tjaldbúðir flóttafólks í Rafah-borg á Gaza á dögunum en þar létust hátt...
HeimurSkólahjúkrunarfræðingur handjárnaði þroskahamlaða stjúpdóttur sína við rúm Kona frá Pennsylvaníu í Bandaríkjunum, sem starfaði sem skólahjúkrunarfræðingur í skóla fyrir börn með sérþarfir, hefur verið handtekin, grunuð um að hafa handjárnað ættleidda dóttur sína við rúm hennar en stúlkan er þroskahömluð. Marylou Dewitt hefur verið ákærð fyrir vanrækslu á umönnunarháðum einstaklingi, að stofna velferð umönnunarháðs einstaklings í hættu, líkamsárás, að stofna einstaklingi í hættu, áreitni, að halda manneskju...
HeimurSíleskt knattspyrnulið mótmælti barnamorðum Ísraela á táknrænan hátt: „Gæsahúð út um allt!“ Víða um lönd mótmælir fólk þjóðarmorði Ísraelshers á Gaza, hvort sem er á götum úti, á samfélagsmiðlunum, á verðlaunaafhendingum, íþróttaviðburðum, í fjölmiðlum og víðar. Knattspyrnuliðið Deportivo Palestino frá Síle mótmælti á afar táknrænan hátt fyrir tveimur dögum. Þegar knattspyrnulið ganga inn á völlinn leiða leikmenn yfirleitt börn, úr yngri flokkunum með sér inn á völlinn. Síleska knattspyrnuliðið Deportivo Palestino, sem...
HeimurAtvinnukylfingur drap fugl í golfmóti – MYNDBAND Atvinnukylfingurinn Isi Gabsa lenti heldur betur í leiðinlegu atviki í gær á U.S. Open golfmóti kvenna í gær. Þar var hún að slá högg á 12. holu á Lancaster golfvellinum í Pennsylvaníu fylki þegar hún varð fyrir því óláni að golfkúla hennar lenti á fugli sem hafði komið sér fyrir á golfvellinum og dó fuglinn við höggið. Lýsendur sjónvarpsútsendingar voru...
HeimurFyrrum NBA-leikmaður látinn eftir bílslys – Aðeins 33 ára gamall Körfuboltamaðurinn Drew Gordon er látinn en umboðsmaður Gordon staðfesti það í samtali við ESPN. Gordon sem var aðeins 33 ára gamall lést í gær eftir að hafa lent í bílslysi. Gordon átti góðan feril sem körfuboltamaður og spilaði í stærstu deildum heimsins. Þó er hann sennilega þekktastur fyrir að hafa spila með liðinu Philadelphia 76ers tímabilið 2014-2015 en þá lék...
HeimurFordæma árásir á sjúkrabíla á Gaza: „Gerendur þessa stríðsglæps verði dregnir til ábyrgðar“ Rauði hálfmáninn í Palestínu (PRCS) fordæmir í yfirlýsingu árás Ísraelshers á einn af sjúkrabílum sínum á Tal al-Sultan svæðinu í suðurhluta Gaza, nálægt borginni Rafah, sem drap sjúkraliða sem í bílnum voru. Í yfirlýsingunni segir að ísraelskar sprengjur hafi lent á einum af þremur sjúkrabílum sem allir voru að bregðast við neyðarkalli. Sprengjan lenti framan á sjúkrabílnum og þegar aðrar...
HeimurLeikskóli í slæmum málum eftir að barn komst í kókaínpoka starfsmanns Leikskólinn KinderCare í Oak Creek í Wisconsin í Bandaríkjunum er í vondum málum eftir að kókaín fannst í þvagi eins árs gamals drengs sem sækir leikskólann. Fyrr í mánuðinum hringdi starfsmaður leikskólans í Kimberly Hopson, móður drengsins, og tilkynnti að hann væri orðinn mjög veikur og hún þyrfti að koma sækja son sinn. Þegar Hopson mætti var strákurinn þakinn marblettum...
HeimurVinkona Johnny Wactor lýsir síðustu augnablikum hans: „Af okkur stafaði engin ógn“ Sagt var frá því á dögunum að General Hospital leikarinn Johnny Wactor hafi verið skotinn til bana í Los Angeles, eftir að hafa beðið menn sem voru að reyna að stela hvarfakúti úr bíl hans, að fara í burtu frá bílnum. Vinkona hans og samstarfskona lýsir nú síðustu augnablikum hans en hún var með honum þegar hinn hryllilegi atburður átti...
HeimurYfirmaður Mossad hótaði aðalsaksóknara Alþjóða sakamáladómstólsins Fyrrverandi yfirmaður Mossad, leyniþjónustu Ísraels, hótaði aðalsaksóknara Alþjóða sakamáladómstólsins (ICC) til að reyna að fá stríðsglæparannsókn árið 2021 fellda niður, segir í skýrslu sem The Guardian birti í dag. Yossi Cohen, fyrrverandi yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar, Mossad, hótaði þáverandi saksóknara ICC, Fatou Bensouda, á leynilegum fundum, að því er blaðið The Guardian greindi frá í dag. Skýrslan er í samræmi við...
HeimurFrægur knapi lést eftir fall í miðri keppni: „Því miður var ekki hægt að bjarga henni“ Knapinn Georgie Campell lést í fyrradag eftir að hafa fallið af hesti sínum í Bicton International Horse Trials-keppninni í suðvestur Englandi. Hún var aðeins 37 ára gömul. „Heilbrigðisstarfsmenn mættu strax eftir að hún féll við girðingu 5b, en því miður var ekki hægt að bjarga henni,“ sagði British Eventing, landsstjórn íþróttarinnar í Bretlandi, í yfirlýsingu sama dag. „Hesturinn, Global Quest,...