Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Vinkona Johnny Wactor lýsir síðustu augnablikum hans: „Af okkur stafaði engin ógn“

Vinkona Johnny Wactor lýsir síðustu augnablikum hans: „Af okkur stafaði engin ógn“
Blessuð sé minn­ing hans Mynd: Trausti Hafsteinsson

Sagt var frá því á dög­unum að General Hospital leik­ar­inn Johnny Wactor hafi verið skot­inn til bana í Los Angeles, eftir að hafa beðið menn sem voru að reyna að stela hvarfa­kúti úr bíl hans, að fara í burtu frá bílnum. Vinkona hans og sam­starfs­kona lýsir nú síð­ustu augna­blikum hans en hún var með honum þegar hinn hrylli­legi atburður átti sér stað.

Anita Joy

Vinirnir unnu saman sem bar­þjónar og voru að koma af vakt þegar þau sáu nokkra karl­menn ves­en­ast við bíl Johnny.

„Vinur minn til átta ára fór úr því að hlæja með mér, vinna hlið við hlið við mig, yfir­gefa bar­þjóna­vakt­ina okkar með mér og ganga að bíl­unum okkar með mér,“ skrif­aði vin­konan, Anita Joy á Instagram 29. maí, „yfir í það að deyja í fang­inu á mér á götum mið­borgar Los Angeles, klukkan 3 að morgni.“

Joy sagði atvikið hafa gerst „á einu augna­bliki“ þegar hún og Wactor nálg­uð­ust menn sem voru að fikta í bíl hans.

„Við nálg­uð­umst menn­ina var­lega, spurðum hvað þeir væru að gera, í fyrstu héldum við að verið væri að draga bíl­inn,“ skrif­aði hún. „Af okkur staf­aði engin ógn og Johnny hélt ró sinni eins og hann gerði alltaf, sagði ein­fald­lega að þetta væri bíll­inn hans og að þeir þyrftu að fara í burtu. Hendur opnar frið­sam­lega til hliðar.“

Hún tók fram að Wactor hafi staðið á milli hennar og manns­ins sem skaut hann, sem vernd­aði hana fyrir ofbeldi.

„Þegar ég heyrði skotið óma inn í nótt­ina, féll hann kröft­ug­lega aftur á bak í fangið á mér,“ rifj­aði hún upp. „Þegar ég greip í hann, hróp­aði ég „Elskan, er allt í lagi?“ Og hann svar­aði bara: „Nei! Skotinn!“ Við velt­umst út á götu þar sem ég ýtti fót­unum undir hann og reyndi að halda lík­ama hans uppi á meðan ég öskr­aði á hjálp og öskr­aði á hann að vera áfram með mér.“

Einn örygg­is­varð­anna á vinnu­staðnum þeirra hljóp til þeirra eftir að hafa hringt í neyð­ar­lín­una. Vinnu­fé­lag­arnir tveir reyndu að bjarga Wactor með því að fram­kvæma end­ur­lífgun á meðan þeir biðu eftir að lög­reglan kæmi.

„Við bundum galla­akk­ann minn utan um hann til að stöðva blæð­ing­arnar,“ hélt hún áfram. „Þetta var of nálægt færi, of mikið sár til að hann gæti lifað það af en Guð minn góður, hann barð­ist fyrir að halda lífi. Ég er gjör­sam­lega miður mín og svo ótrú­lega reið. Það eina sem veitir mér frið er að ég var með honum og hann lenti ekki einn í þessu. Það eina sem mun veita mér ró mun vera að sjá þessa hræði­legu menn dregna fyrir rétt.“

Joy hélt áfram að heiðra mann­eskj­una sem Wactor var, og hrós­aði hversu „gegn­heill“ Siberia-leik­ar­inn var og hæfi­leika hans „til að láta hverjum og einum líða svo sér­stökum í augum hans“.

Og hún hélt áfram:

„Orkan hans var seg­ul­mögnuð og dró þig svo áreynslu­laust inn – þú varst öruggur hjá honum,“ sagði hún. „Hann kom fram við alla af ást, virð­ingu, samúð og hann „sá“ þig í raun. Hann var fal­legur, aula­legur fyrir allan pen­ing­inn, fullur af vinnu­sið­ferði og gildum.“

Joy rifjar upp hvernig hann kall­aði hana ást­úð­lega „Aníta Bonita,“. „Ég vona að end­ur­hljómun raddar hans, að segja þetta í hvert skipti sem ég sá hann, fari aldrei úr minni mínu. Johnny lét mann falla algjör­lega fyrir sér um leið og maður leit í stóru, bláu augu hans, og fyrir neðan þau aula­legt glott. Algjör­lega einn besti maður sem ég hef kynnst.“

Johnny Wacktor var aðeins 37 ára er hann lést.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco