HeimurBill Withers látinn Bandaríski tónlistarmaðurinn Bill Withers er látinn, 81 árs að aldri. AP fréttastofan greinir frá. Withers er einna þekktastur fyrir lagið Ain’t No Sunshine sem kom út árið 1971. Hann gaf út átta breiðskífur frá árinu 1971 til ársins 1985. Hann hætti að senda frá sér tónlist um miðjan níunda áratuginn. Fjölskylda Withers greindi frá andlátinu og segir hann hafa látist...
HeimurCovid-19Staðfest smit komin yfir milljón á heimsvísu Fjöldi staðfestra COVID-19 smita á heimsvísu er kominn yfir milljón. Fjöldi smita er 1.016.534 nánar tiltekið samkvæmt korti Johns Hopkins háskólans. Dauðsföll eru þá komin upp í 53.164, flest á Ítalíu eða 13.915. Þeir sem hafa náð bata eftir smit eru 211.856 talsins. Ástandið í Bandaríkjunum er verst þessa stundina hvað fjölda staðfestra smita varðar en 245.573 hafa greinst með...
HeimurCovid-19Rúmlega 4.000 látnir í Bandaríkjunum og „sársaukafullar vikur“ framundan Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að Bandaríkjamenn þyrftu að búa sig undir „sársaukafullar vikur“ sem væru framundan vegna útbreiðslu COVID-19. Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær sagðist hann reikna með að dauðsföll þar í landi yrðu á bilinu 100 þúsund til 200 þúsund. Staðfestum COVID-19 smitum og dauðsföllum vegna sjúkdómsins heldur áfram að fjölga í Bandaríkjunum. Núna eru yfir 4.000...
HeimurCovid-1913 ára drengur látinn í London vegna COVID-19 13 ára drengur lést í London í dag af völdum COVID-19 kórónaveirunnar. BBC greinir frá en King’s College Hospital Trust staðfestir andlátið. 381 létust í dag í Bretlandi vegna kórónaveirunnar, en alls hafa 1.808 látist í Bretlandi frá því að COVID-19 veiran kom þar upp. Boris Johnson forsætisráðherra býst við að ástandið eigi enn eftir að versna. „13 ára gamall...
HeimurCovid-19Dolly Parton les kvöldsögur fyrir heimsbyggðina Stórstjarnan Dolly Parton ætlar að leggja sitt af mörkum til að róa skelfda heimsbyggð á þessum síðustu og verstu tímum með því að lesa kvöldsögu í beinni útsendingu á hverju kvöldi í tíu daga. Sögurnar velur hún sjálf úr bókasafni sínu Dolly Parton’s Imagination Library og fyrsti lesturinn verður 2. apríl en þá mun söngkonan lesa bókina The Little Engine...
HeimurCovid-19Krefjast þess að breska þingið fari á netið Breskir þingmenn krefjast þess að starfsemi þingsins fari fram í gegnum netið á meðan kórónaveirufaraldurinn gengur yfir. Rúmlega hundrað breskir þingmenn hafa skrifað undir bréf frá þingmanni Verkamannaflokksins, Chi Onwurah, þar sem farið er fram á að reglulegir þingfundir fari ekki fram í þinghúsinu heldur á netinu á meðan COVID-19 faraldurinn gengur yfir. „Í neyðarástandi sem hefur valdið því að...
HeimurCovid-19WHO ítrekar beiðni um að fólk hætti að nota grímur nema það sé sýkt Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO ítrekaði í gær þau tilmæli sín til fólks að nota ekki grímur nema það sé sýkt af COVID-19 eða annist einhvern sem er sýktur. „Það er ekkert sem bendir til að grímunotkun almennings komi að gagni,“ sagði Mike Ryan, framkvæmdastjóri neyðaráætlunar WHO, á blaðamannafundi í Genf í gær. „Auk þess er mikill skortur á þeim á heimsvísu. Í...
HeimurCovid-19Tólf ára stúlka lést af völdum COVID-19 Tólf ára stúlka lést af völdum COVID-19 í Belgíu á dögunum. Er hún yngsta fórnarlamb veirunnar sem vitað er um í Evrópu. Breski fjölmiðillinn Independent greinir frá þessu og vitnar í doktor Emmanuel Andre sérstakan talsmann belgísku ríkisstjórnarinnar í málum er varða COVID-19 faraldurinn. Þar segir Andre að dauðsfall stúlkunnar hafi verið reiðarslag fyrir fjölskyldu hennar, belgísku þjóðina og alþjóðlega...
HeimurCovid-19Íhuga að fjölga starfsfólki um 100 þúsund á meðan núverandi starfsfólk kvartar undan aðbúnaði Mikil aukning hefur orðið á viðskiptum í gegnum vefverslanir undanfarið vegna útbreiðslu COVID-19, svo mikil að vefverslunin Amazon skoðar nú að ráða inn 100 þúsund nýja starfsmenn í Bandaríkjunum til að anna eftirspurn. Á meðan Amazon íhugar að fjölga starfsmönnum kvarta þeir sem nú þegar starfa hjá fyrirtækinu undan slæmum aðbúnaði. Starfsmenn fyrirtækisins hafa sumir hótað að leggja niður störf...
HeimurCovid-19Framlengir gildistíma aðgerða Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti það í gær að hann hefur ákveðið að ákveðið að framlengja gildistíma þeirra aðgerða og reglna, sem gripið hefur verið til, til að stöðva útbreiðslu COVID-19, út apríl. Þessu sagði hann frá á blaðamannafundi í Hvíta húsinu. Hann hafði áður talað um að hægt yrði að slaka á aðgerðum um miðjan apríl. Hann sagði að...
HeimurCovid-19Heilbrigðisráðherra Bretlands upplýsir að hann sé smitaður af COVID-19 Matt Hancock, heilbrigðisráðherra Bretlands, upplýsti rétt í þessu á Twitter að hann hefði greinst smitaður af COVID-19 í gær. Upplýsingarnar koma í kjölfar yfirlýsingar Boris Johnson forsætisráðherra í morgun um að hann væri smitaður en sú yfirlýsing hefur valdið miklu fjaðrafoki í breskum fjölmiðlum og vakið spurningar um hverjir aðrir í ríkisstjórninni séu þá smitaðir af sjúkdómnum. Hancock segir á...
HeimurCovid-19Söngvari Rammstein á gjörgæslu vegna COVID-19 Þýska blaðið Bild greinir frá því að Till Lindemann, söngvari Rammstein, er á gjörgæslu á sjúkrahúsi í Berlín eftir að hafa greinst með COVID-19 kórónaveiruna. 15. mars hélt sveitin tónleika í Moskvu í Rússlandi, eftir heimkomu til Berlínar var Lindemann lagður inn á sjúkrahús með háan hita og greindist hann með veiruna í kjölfarið. Var hann fluttur á gjörgæslu í...