HeimurHarry og Meghan alfarin frá Kanada Harry Bretaprins og Meghan Markle hafa yfirgefið Kanada og sest að á nýju heimili í Los Angeles. Þau flugu með einkaflugvél til nýju heimkynnanna rétt áður en landamærunum milli Kanada og Bandaríkjanna var lokað í vikunni, samkvæmt heimildarmanni breska slúðurblaðsins The Sun. Samkvæmt sama heimildarmanni eru hjónin nú í útgöngubanni í nýja húsinu, sem staðsett er rétt hjá Hollywood, ásamt...
HeimurCovid-19Mark Blum látinn af völdum COVID-19 Bandaríski leikarinn Mark Blum, er látinn af völdum COVID-19 kórónaveirunnar, 69 ára að aldri. Blum var þekktur fyrir leik sinn í kvikmyndunum Crocodile Dundee og Desperately Seeking Susan. Á heimasíðu Samtaka kvikmyndaleikara í Bandaríkjunum (Screen Actors Guild) er Blum minnst sem leikara, bæði í kvikmyndum, sjónvarpi og á sviði, en ekki síst sem virks þáttakanda í samtökunum og fyrrum stjórnarmanns....
HeimurCovid-19Boris Johnson greinist með COVID-19 Í myndbandi sem hann póstaði á Twitter fyrir stundu greindi Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, frá því að hann hefði greinst með COVID-19. „Síðasta sólarhringinn hef ég fundið fyrir vægum einkennum og próf sýndi að ég er með kórónavírus,“ segir forsætisráðherrann. „Ég er nú í sjálfskipaðri einangrun en mun halda áfram að leiða viðbrögð ríkisstjórnarinnar í gegnum myndbandsfundi á meðan við...
HeimurCovid-19Neyðarlög sett í Bretlandi – lögreglunni heimilt að beita valdi til að reka fólk inn Ný neyðarlög bresku ríkisstjórnarinnar vegna kórónaveirufaraldursins voru kynnt í Bretlandi í dag. Samkvæmt þeim er lögreglunni falið að sjá til þess að fólk virði útgöngubannið sem sett var á mánudag og gefa lögin lögreglumönnum heimild til að beita valdi „innan hóflegra marka“ til að sjá til þess að þeir sem brjóta gegn útgöngubanninu snúi aftur til síns heima. Ríkisstjórnin segir...
HeimurCovid-19Fréttastofa BBC frestar fyrirhuguðum uppsögnum á 450 starfsmönnum Í janúar tilkynnti fréttastofa BBC að 450 starfsmönnum yrði sagt upp á næstunni vegna sparnaðaráforma en í gær tilkynnti Tony Hall, útvarpsstjóri BBC, starfsmönnum að öllum áformum um uppsagnir hefði verið frestað vegna þess mikla álags sem fylgdi fréttaflutningi af kórónaveirufaraldrinum í heiminum. „Við verðum að halda áfram með þessa vinnu, sem þið leysið svo frábærlega af hendi,“ sagði Hall...
HeimurÖkumanns leitað vegna umferðarslyss Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns hvítrar, nýlegrar jeppabifreiðar vegna umferðarslyss á Reykjanesbraut þriðjudaginn 10. mars um kl. 10 fyrir hádegi. Þar var ekið í veg fyrir ökumann á rauðum Skoda Octavia á leið norður Reykjanesbraut, á móts við Brunnhóla í Hvassahrauni, með þeim afleiðingum að hann missti stjórn á bifreið sinni og hafnaði utan vegar. Ökumaður hvítu jeppabifreiðarinnar ók rakleiðis...
HeimurTalin hafa látist af völdum COVID-19 á heimili sínu – Sagt að hún væri ekki í hópi þeirra sem njóta forgangs Kayla Williams, 36 ára þriggja barna bresk móðir, er talin hafa látist af völdum COVID-19 á laugardaginn á heimili sínu í London. Kayla lést eftir að hafa fengið þær upplýsingar að hún yrði ekki flutt á sjúkrahús vegna þess að hún væri ekki í hópi þeirra sem njóta forgangs. Kayla var 36 ára. Guardian greinir frá. Þar segir að Fabian...
HeimurCovid-19Julian Assange óttast að smitast í fangelsinu – Beiðni um að verða leystur úr haldi gegn tryggingu hafnað Beiðni Julian Assange, stofnanda WikiLeaks, um að vera leystur úr haldi með ökklaband gegn tryggingu vegna útbreiðslu COVID-19 var hafnað í gær. Assange óskaði eftir að verða leystur úr haldi úr Belmarsh öryggisfangelsisins í London með þeim rökum að það myndi draga úr hættu á að hann myndi smitast af COVID-19. Dómari í málinu, Judge Vanessa Baraitser, hafnaði beiðninni og...
HeimurCovid-19COVID-19-próf til heimanotkunar hugsanlega væntanleg í næstu viku Þúsundir kórónavírusprófa sem gefa jákvæða eða neikvæða niðurstöðu á fimmtán mínútum gætu farið í almenna dreifingu í Bretlandi í næstu viku samkvæmt upplýsingum sem BBC hefur eftir forráðamönnum Lýðheilsustofnunar Englands (PHE). Ef rétt reynist gætu þeir sem nú eru í sóttkví vegna hugsanlegs smits snúið aftur til síns daglega lífs, sem myndi létta mikið á heilbrigðiskerfinu þar sem mikill fjöldi...
HeimurCovid-19Karl Bretaprins með Covid-19 Karl Bretaprins hefur greinst með Covid-19. BBC greinir frá. Í tilkynningu frá skrifstofu Clarence House kemur fram að Karl sé með væg einkenni en „annars við góða heilsu“. Í tilkynningunni segir að það sé erfitt að segja til um hvar og hvenær prinsinn smitaðist. Sýni úr Kamillu hertogaynju af Cornwall, eiginkonu Karls, var rannsakað og kom í ljós að hún...
HeimurCovid-19„Sýndarkrá“ slær í gegn á Facebook Kráin, eða pöbbinn, er stór þáttur í lífi flestra Breta og margir óttuðust leiðindi og félagslega einangrun eftir að Boris Johnson, forsætisráðherra, skipaði öllum krám, veitingahúsum og kaffihúsum að loka síðastliðinn föstudag. Hugmyndaríkur kráareigandi dó þó ekki ráðalaus og opnaði „sýndarkrá“ á Facebook þar sem fram fara tónleikar, „pöbbkviss“ í anda Drekktu betur, og uppistandarar og fleiri skemmtiatriði eru í...
HeimurCovid-19Dibango lést af völdum COVID-19 Manu Dibango djassleikari lést í dag, 86 ára að aldri. Dibango lést eftir að hafa smitast af COVID-19 kórónaveirunni. „Hann lést snemma í morgun á sjúkrahúsi á Parísarsvæðinu,“ segir Thierry Durepaire útgefandi hans. Í færslu á opinberri Facebook-síðu hans segir að útför Dibango muni fara fram í kyrrþey og minningarathöfn verði skipulögð og haldin þegar hægt verður. Vinsælasta lag hans,...