HeimurCovid-19Harvey Weinstein með COVID-19 Kvikmyndaframleiðandinn og kynferðisbrotamaðurinn Harvey Weinstein er með COVID-19 sjúkdóminn. BBC greinir frá. Weinstein var í dæmdur til 23 ára fangelsisvistar fyrir nauðgun og kynferðislega áreitni þann 11. mars. Hann hefur verið í Wende-fangelsinu í New York síðan dómur í málinu féll og er talinn hafa smitast þar. Weinstein er nú í einangrun og Michael Powers, fangelsismálastjóri New York-fylkis, staðfesti það....
HeimurCovid-19Bað kærustunnar í Iceland eftir að bónorðsferðinni til Íslands var aflýst Breskur hjúkrunarfræðingur gerði það besta úr stöðunni sem kom upp eftir að fluginu sem hann hafði pantað til Íslands til að biðja kærustunnar þar var aflýst. Hann gerði sér lítið fyrir og féll á kné í einni af verslunum verslunarkeðjunnar Iceland í Bretlandi og bar upp bónorðið. Unnustan sagði já. Eftir að hafa fengið tilkynningu um að fluginu til Íslands...
HeimurCovid-19ESB hvetur Netflix til að hægja á streyminu Evrópusambandið hvetur Netflix og aðrar streymisþjónustur til að hætta að streyma kvikmyndum og myndböndum í háskerpu til að hamla því að fjarskiptakerfi Evrópu bugist vegna mikillar notkunar í kjölfar sóttkvía og útgöngubanna í mörgum löndum vegna kórónuveirufaraldursins. Hundruð milljóna fólks stundar nú vinnu sína heiman að frá sér í gegnum netið vegna útgöngubanns og enn fleiri börn eru heima vegna...
HeimurCovid-1940 neðanjarðarlestarstöðvum í London lokað Um fjörutíu stöðvum neðanjarðarlestarkerfisins í London hefur verið lokað í tilraun borgaryfirvalda til að hefta útbreiðslu kórónaveirunnar Covid-19. Í tilkynningu frá Transport for London sem birt var í morgun kemur fram að einnig leggist allar næturferðir jarðlestanna af og dregið verði úr strætóferðum. Sadiq Khan, borgarstjóri London, sagði að fólk ætti ekki að vera á ferðinni og varaði við því...
HeimurCovid-19Sprenging í sölu á kynlífsleikföngum Sóttkví, einangrun og samkomubann víða um lönd virðist hafa haft mikil áhrif á sölu kynlífsleikfanga. Kanadamenn eru efstir á blaði yfir þau lönd þar sem söluaukningin hefur orðið mest síðustu vikurnar, en þar hefur netsala á kynlífsleikföngum aukist um 135 prósent. Í Bandaríkjunum hefur salan aukist um sjötíu og fimm prósent og um sextíu prósent á Ítalíu. Í Hong Kong...
HeimurCovid-19Rut er búsett á Ítalíu og biðlar til Íslendinga – „Í guðanna bænum takið veiruna alvarlega“ Rut Valgarðsdóttir er búsett í borginni Bergamo á Ítalíu, en Ítalía er það land sem COVID-19 kórónuveirufaraldurinn hefur leikið verst til þessa, fyrir utan Kína.
HeimurCovid-19EM frestað um eitt ár Evrópumótinu í knattspyrnu hefur verið frestað til næsta árs. Þetta var ákveðið á fundi UEFA með aðildarsamböndum rétt í þessu. Á fundinum er verið að ræða framhaldið í evrópskri knattspyrnu en leik í öllum deildum hefur verið frestað vegna kórónaveirunnar. Til stóð að Ísland mætti Rúmeníu 26. mars á Laugardalsvelli í umspili um laust sæti á EM í sumar. Útlit...
HeimurCovid-19„Stór skref“ til að takmarka atvinnuleysi Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, reiknar með að ríkissjóður verði rekinn með hundrað milljarða króna halla á þessu ári vegna áhrifa útbreiðslu COVID-19 á efnahagslífið. Bjarni mætti í Bítið í morgun þar sem hann ræddi aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna COVID-19. Hann telur mikilvægt að fólkið í landinu haldi störfum sínum og segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar snúast að miklu leyti um það. Hann...
HeimurCovid-19Biðja fólk um að halda sig heima – „Þá munum við sigrast á veirunni“ Donald Trump Bandaríkjaforseti kynnti ný viðmið og ráðleggingar í gær sem teymi hans hefur sett saman. Læknirinn Deborah Birx stýrir samhæfinganefnd Hvíta hússins vegna COVID-19. Trump og Birx kynntu nýjar leiðbeiningar sem hún og fleiri settu saman. Nú er mælst til þess að Bandaríkjamenn reyni draga úr öllum ferðum og samkomum. Trump biður fólk um að stunda sína vinnu og...
HeimurCovid-19Lögreglan biðlar til fólks: „Ekki hringja í okkur þegar þú ert búinn með klósettpappírinn“ Eins og komið hefur fram í fréttum þá hefur fólk víða um heim, líka hér á Íslandi, hamstrað ýmsar nauðsynjavörur í kórónuveirufaraldrinum. Eitt af því sem neytendur hafa hamstrað mikið af er salernispappír, meira að segja í því magni að í fjölmörgum verslunum er ekki eina einustu rúllu að finna. Eins og þetta sé ekki ótrúlegt eitt og sér, þá...
Heimur„Það gerir ekki lítið úr neyð Íslendinga að hjálpa útlendingum“ Nokkur ummæli sem voru látin falla í vikunni. „Það er komin kreppa. Hún verður sú dýpsta frá hruni og allt annars eðlis en það sem við höfum undirbúið okkur fyrir.“ – Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans. „Það gerir ekki lítið úr neyð Íslendinga að hjálpa útlendingum.“ – Séra Davíð Þór Jónsson skrifar svo í pistli sem hann deilir á Facebook...
HeimurCovid-19Nístandi myndband sýnir áhrif COVID-19 á Ítalíu Nístandi myndband sýnir hvaða áhrif COVID-19 kórónaveiran hefur haft haft á Ítalíu. Í myndbandinu hér fyrir neðan má heyra karlmann tala á ítölsku um leið og hann sýnir forsíðu dagblaðsins L’Eco di Bergamo, sem gefið er út í borginni Bergamo, um 50 km frá Milanó, í Lombardy héraðinu þar sem kórónuveirufaraldurinn hefur haft gríðarleg áhrif. Um er að ræða eintak...