HeimurCovid-19Sextíu settir i sóttkví vegna óðs manns Maðurinn brást ókvæða við þegar hann var handtekinn. Farþegar lestar sem var á leið frá Ósló til Björgvinjar í gærkvöldi hefur verið gert að fara í tveggja vikna sóttkví eftir að maður, sem ferðaðist með lestinni, gekk upp að fólkinu, andaði fram í það og sagðist vera smitaður af kórónaveirunni. Um er að ræða fimmtíu farþega en auk þeirra hefur...
HeimurLjósin á Broadway slökkt – Öllum leikhúsum lokað Öllum leikhúsum á Broadway í New York hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna kórónaveirunnar. Ríkisstjóri New York-ríkis, Andrew Cuomo, tilkynnti í gær að öllum sýningum Broadway-leikhúsa yrði frestað um óákveðinn tíma til að framfylgja banni við samkomum með fleiri en fimmhundruð þátttakendum. Tónleikahúsið Carnegie Hall hefur sömuleiðis frestað öllum sýningum til 31. mars, að minnsta kosti, og Metropolitan Museum...
HeimurCovid-19Sophie með veiruna – Hjónin í einangrun Sophie Grégoire Trudeau, eiginkona Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur greinst með COVID-19. Þetta kom fram í tilkynningu frá skrifstofu forsætisráðherra í nótt. Þar kom fram að Sophie líði ágætlega. Fyrr um daginn hafði Justin Trudeau greint frá því að þau hjón og börnin þeirra þrjú væri í sóttkví og biðu eftir niðurstöðum rannsókna. Sjálfur hefur hann ekki fundið fyrir neinum...
HeimurCovid-19Frakkar loka öllum skólum um óákveðinn tíma – mesta heilbrigðiskrísa sem landið hefur staðið andspænis í eina öld Emmanuel Macron, forseti Frakklands, ávarpaði frönsku þjóðina klukkan átta í kvöld en þar tilkynnti hann að öllum skólum landsins yrði lokað um óákvðinn tíma eða svo lengi sem þörf krefur. Þetta segir hann nauðsylegar aðgerðir til að hefta útbreiðslu COVID-19 en flest tilfelli hafa greinst í Frakklandi á eftir Ítalíu eða 2876 tilfelli og 61 dauðsfall.
HeimurCovid-19Vinsælustu spjallþættirnir útiloka áhorfendur Ýmsir af frægustu spjallþáttum í bandarísku sjónvarpi verða teknir upp án áhorfenda í salnum á meðan Covid-19 kórónaveirufaraldurinn gengur yfir. Nú síðast tilkynntu framleiðendur spjallþáttar Ellen DeGeneres að ekki yrði lengur unnt að hafa áhorfendur í salnum við upptökur þáttarins, en áður höfðu framleiðendur ýmssa annarra þátta með frægum stjórnendum sent frá sér sams konar tilkynningar. Meðal þeirra sem nú...
HeimurCovid-19Donald Trump lýsir yfir ferðabanni frá Evrópu Donald Trump Bandaríkjaforseti ávarpaði bandarísku þjóðina í nótt og lýsti yfir ferðabanni frá Evrópu í 30 daga vegna útbreiðslu COVID-19. Bannið nær til allra erlendra ríkisborgara sem hafa verið á Schengen-svæðinu undanfarna 14 daga. Bretland er undarskilið. Bannið tekur gildi á miðnætti á föstudaginn. Trump sagði að Evrópuríkjum hefði ekki tekist að hindra útbreiðsluna með því að setja á ferðabann...
HeimurCovid-19Google biður alla starfsmenn sína í Norður-Ameríku að vinna heima Alphabet, móðurfyrirtæki Google hefur mælst til þess að allir starfsmenn fyrirtækisins vinni heima til 10. apríl vegna kórónaveirunnar Covid-19, samkvæmt tölvupósti til starfsmanna sem CNN hefur fengið aðgang að. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 120.000 en ekki liggur fyrir hversu margir þeirra eru innan Norður-Ameríku. „Vegna fjölmargra viðvarana og til að vernda Alphabet og samfélagið í heild, mælum við nú með...
HeimurHarvey Weinstein dæmdur í tuttugu og þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein var í dag dæmdur til 23 ára fangelsisvistar fyrir nauðgun og kynferðislega áreitni sem hann var fundinn sekur um í réttarhöldum í New York í síðasta mánuði. Weinstein mætti í dómsuppkvaðninguna í hjólastól. Lögfræðingar Weinsteins höfðu biðlað til dómaranna um vægasta mögulega dóm, fimm ár, þar sem fimm ár gætu vel jafngilt ævilöngu fangelsi fyrir Weinstein sem...
HeimurCovid-19Útbreiðsla og aðgerðir Covid-19 í nokkrum löndum Útbreiðsla Covid-19 kórónaveirunnar um heiminn er víða hröð þó svo að enn séu nokkur lönd með engin tilfelli. Gripið er til mismunandi aðgerða eftir löndum og ástandi.
HeimurCovid-19Heilbrigðisráðherra Breta greindur með Covid-19 Heilbrigðisráðuneyti Breta greindi frá því rétt í þessu að Nadine Dorries heilbrigðismálaráðherra hafi greinst með Covid-19 veiruna samkvæmt breska miðlinum Standard.
HeimurCovid-19631 látnir á Ítalíu af völdum Covid-19 kórónaveirunnar Dánartalan af völdum Covid-19 kórónaveirunnar hækkaði upp í rúmlega 600 á Ítalíu í dag þegar gefnar voru út nýjar tölur af Civil Protection Agency en það er mesta aukning frá því sjúkdómurinn fór að breyðast út á Ítalíu upp úr miðjum febrúar. Greind tilfelli eru nú komin í 10,149 en voru áður 9,172 þannig að aukningin milli daga er tæplega...
HeimurCovid-19Yfirlýsing franskra stjórnvalda: „Nei kókaín læknar ekki COVID-19“ Ríkisstjórn Frakklands neyddist til að gefa út yfirlýsingu á vef heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins um að kókaín gagnaðist ekki í baráttunni gegn COVID-19 kórónaveirunni. Þetta var gert þar sem falsfréttir höfðu gengið á samfélagsmiðlum um að hvíta duftið gagnaðist vel í baráttu við veiruna. Nokkuð mikið hefur borið á því að ýmsar rangar upplýsingar varðandi faraldurinn og veiruna séu í gangi...