HeimurCovid-19Tvennum tónleikum Madonnu í París aflýst Poppdrottningin Madonna hefur neyðst til að aflýsa tvennum af Madame X tónleikum sínum í París vegna banns yfirvalda við samkomum með fleiri en þúsund þátttakendum. Tónleikarnir, sem vera áttu í kvöld og annað kvöld, 10. og 11. mars, áttu að vera lokatónleikar Madame X tónleikaferðar drottningarinnar. Madame X tónleikaferðin hefur reyndar engan veginn gengið nógu vel síðan hún hófst á...
HeimurCovid-19Búa sig undir að loka sig af Langar raðir mynduðust fyrir utan matvöruverslanir í Ítalíu í morgun þar sem Ítalir bjuggu sig undir að loka sig af á heimilum sínum vegna útbreiðslu COVID-19. 463 hafa dáið vegna veirunnar þar í landi Ítölsk stjórnvöld tilkynntu í gær að samkomubann hefur verið sett á og gildir það alls staðar á Ítalíu. Giuseppe Conte forsætisráðherra Ítalíu sagði að nú þyrfti...
HeimurCovid-19Samkomubann á allri Ítalíu vegna veirunnar Ítölsk stjórnvöld hafa sett samkomubann á alls staðar á Ítalíu vegna útbreiðslu kórónaveirunnar sem veldur COVID-19. Giuseppe Conte forsætisráðherra Ítalíu greindi frá þessu. Bannið gildir frá og með þriðjudeginum. Þessu er sagt frá BBC. Conte segir þetta nauðsynlegar aðgerðir til að draga úr útbreiðslu og vernda viðkæma hópa. Ástandið vegna COVID-19 er verst á Ítalíu. Þar í landi eru rúmlega...
HeimurCovid-19Skrúðgöngu á degi heilags Patricks aflýst í Dublin Borgaryfirvöld í Dublinar hafa aflýst hinni árlegu skrúðgöngu á degi heilags Patricks þann 17. mars, til að hamla útbreiðslu kórónaveirunnar sem veldur Covid-19. Árlega taka tugir þúsunda fólks þátt í göngunni sem er stærsti viðburður ársins á Írlandi. Í frétt írsku útvarpsstöðvarinnar RTÉ um málið kemur fram að borgaryfirvöld í Cork hafi riðið á vaðið í morgun og aflýst sinni...
HeimurMax von Sydow látinn Sænski leikarinn Max von Sydow er látinn, 90 ára að aldri. Hann var einn þekktasti leikari Norðurlandanna í áratugi og lék meðal annars í The Seventh Seal (1957), The Exorcist (1973) og Star Wars: The Force Awakens (2015), Three Days of the Condor (1975) , Dune (1984), Minority Report (2002) og Shutter Island (2010), til að nefna örfá af hlutverkum...
HeimurCovid-19Kórónaveiran setti strik í reikninginn Þrátt fyrir að yfirvöld í Frakklandi hafi bannað alla viðburði þar sem fleiri en fimm þúsund manns koma saman í ljósi útbreiðslu COVID-19 tókst að halda tískuvikuna í París. Útbreiðsla veirunnar setti þó strik í reikninginn á nýafstaðinni tískuvikunni. Blaðamenn og ritstjórar hættu margir við að mæta á sýningar, sumir gestir mættu með andlitsgrímur, partíum og kokteilboðum var aflýst og...
HeimurCovid-19Starbucks bannar notkun margnota kaffibolla Kaffihúsakeðjan Starbucks hefur tímabundið bannað notkun margnota kaffibolla á kaffihúsum sínum bæði í Evrópu og Bandaríkjunum til að leggja sitt af mörkum til að hamla útbreiðslu kórónaveirunnar Covid-19. Forsvarsmenn keðjunnar segja það mikilvægara í augnablikinu að hefta útbreiðslu veirunnar en að stuðla að umhverfisvernd. Þeir sem koma með eigin margnota kaffiílát fá þó ennþá afslátt af verði kaffisins og hætt...
HeimurMeðlimir kviðdómsins látnir horfa á brot úr The Jinx Kviðdómur í máli Robert Durst var látinn horfa á brot úr HBO heimildarþáttunum The Jinx: The Life and Deaths of Robert Durst í réttarsal í gær. Þættirnir fjalla um auðkýfinginn Durst sem er sakaður um að hafa orðið vinkonu sinni, Susan Berman, að bana árið 2000. Durst er sagður hafa myrt Berman vegna þess að hún var talin hafa búið...
HeimurCovid-19Heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi gagnrýnd fyrir að draga úr upplýsingamiðlun Stjórnvöld í Bretlandi hafa í samráði við heilbrigðisyfirvöld ákveðið að draga úr upplýsingaflæði um útbreiðslu kórónaveirunnar Covid-19 í Bretlandi. Ákvörðunin hefur verið harðlega gagnrýnd þar sem minni upplýsingar geri fólki erfiðara fyrir að leggja sitt af mörkum til að draga úr útbreiðslu veirunnar. Fjöldi greindra tilfella af kórónaveirunni hefur aukist um sjötíu prósent í Bretlandi undanfarna tvo daga og nú...
HeimurCovid-19Bókamessunni í London aflýst Bókamessunni víðfrægu í London sem hefjast átti í næstu viku og standa frá 10. til 12. mars hefur verið aflýst af heilbrigðisástæðum vegna kórónaveirufaraldursins. Messan er einn alstærsti alþjóðlegi bókmenntaviðburður í heimi og þar eru árlega gerðir samningar upp á milljarða. Skipuleggjendur hátíðarinnar Reed Exhibitions tilkynntu í morgun að búið væri að aflýsa bókamessunni sem yfir 25.000 útgefendur, höfundar og...
HeimurGóður dagur fyrir Biden Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, vann sigur í níu af þeim fjórtán ríkjum þar sem kosið var í vegna forvals demókrata í forsetakosningum Bandaríkjanna í gær á svokölluðum Ofurþriðjudegi (e. Super Tuesday). Margir höfðu spáð því að Bernie Sanders myndi fara með sigur í einhverjum af þessum ríkjum. Atkvæða er enn beðið í Kaliforníu en sérfræðingar spá því að Sanders...
HeimurMun hafa sagt Harry að hann er alltaf velkominn til baka Elísabet Englandsdrottning er sögð hafa sagt sonarsyni sínum, Harry, að hann er „velkominn til baka“ snúist honum einhvern tímann hugur en Harry og eiginkona hans, Meghan Markle, greindu frá ákvörðun sinni um að draga sig í hlé frá konungsfjölskyldunni í janúar. Þau ætla að verja meiri tíma í Kanada og freista þess að öðlast meira sjálfstæði. Harry og Meghan munu...