HeimurCovid-19Amazon bannar sölu á vörum sem sagðar eru lækna COVID-19 Þeir sem slá inn leitarorðið kórónaveira á vefsíðu Amazon hafa undanfarið fengið upp óteljandi vöruflokka sem sagðir eru fyrirbyggja eða lækna sýkingar af völdum kórónaveirunnar COVID-19. Nú hefur þessi stærsta vefverslun í heimi reynt að stemma stigu við því að óprúttnir söluaðilar nýti sér ótta og vanþekkingu fólks í gróðaskyni með því að banna sölu á þessum vörum undir því...
HeimurCovid-19Covid-19 hættulegra körlum en konum Dánartíðni karlmanna sem sýkjast af kórónaveirunni Covid-19 er töluvert hærri en dánartíðni kvenna. Í greiningu sem Sóttvarnamiðstöð Kína birti fyrir helgina kemur fram að þótt jafnt hlutfall karla og kvenna sýkist af veirunni er dánartíðni karlanna 2.8 prósent en dánartíðni kvenna 1.7 prósent. Þetta er í samræmi við dánartíðni í öðrum kórónaveirusýkingum, til dæmis sýktust fleiri konur en karlar af...
HeimurFyrrverandi eiginkonan og börnin sögð miður sín Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og unnusta hans Carrie Symonds eiga von á barni í sumar. Hin 31 árs Symonds greindi frá tíðindunum á Instagram og sagði í leiðinni frá því að þau hefðu trúlofað sig fyrir áramót. Skilnaður hans við Marina Wheeler var enn ófrágengin þegar Johnson og Symonds trúlofuðu sig á síðasta ári. Wheeler er sögð miður sín yfir...
HeimurÁfram hvasst í dag Áfram verður hvasst á landinu í dag, 10-20 m/s. Hvassast verður við suðurströndina, einkum í Öræfum þar sem vindstrengir gætu verið allt að 25 m/s er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings. Bjart verður víða á landinu, en einhver éljagangur verður þó viðloðandi á Austur- og Suðausturlandi. Hiti víðast hvar við frostmark. Í nótt mun svo snúast í stífa norðaustanátt með...
HeimurCovid-19Ákæra trúarleiðtoga fyrir manndráp vegna Covid-19 Borgaryfirvöld í Seúl hafa farið þess á leit við saksóknara að gefnar verði út ákærur á hendur Lee Man-hee, stofnanda Shincheonji-kirkjunnar, og ellefu öðrum. Fólkið er sakað um að hafa legið á upplýsingum á sama tíma og yfirvöld reyndu hvað þau gátu að rekja möguleg smit eftir að Covid-19 greindist meðal sóknarbarna kirkjunnar. Alls hafa 3.730 tilfelli Covid-19 greinst í...
HeimurGekk út eftir að Polanski hlaut verðlaun: „Vel gert barnaníðingur“ Sesars-verðlaunahátíð frönsku kvikmyndaakademíunnar fór fram í París í gærkvöldi, en hún er sambærileg Óskarsverðlaununum. Nokkrar leikkonur gengu út af hátíðinni þegar Roman Polanski hlaut verðlaun fyrir bestu leikstjórn. Fáir klöppuðu í salnum þegar verðlaunin voru tilkynnt. Adéle Haenel, ein af efnilegri leikkonum yngri kynslóðarinnar, var ein þeirra sem yfirgaf salinn og sést hún veifa hendi og segja „shame“ eða skömm....
HeimurKristinn gefið upp alla von um að réttlæti sé að finna í réttarsalnum Kristinn Hrafnsson ritstjóri WikiLeaks og vinur Julian Assange, stofnanda WikiLeaks, segir erfitt að fylgjast með vini sínum í réttarhöldum þar sem framsalsbeiðni Bandríkjamanna yfir honum er tekin fyrir. „Það er þung upplifun að sitja á palli í réttarhöldum og horfa á Julian Assange í glerbúri, við hlið tveggja fangavarða að reyna af veikum mætti fylgjast með málflutningi um framtíð sína...
HeimurViðgerður fræbanki hýsir 1.050.000 afbrigði Viðamiklum framkvæmdum á norska fræbankanum á Svalbarða er lokið en kostnaður við þær nam um 2,8 milljörðum íslenskra króna. Ráðist var í framkvæmdirnar þegar 130 metra löng göngin inn í fræhvelfinguna fóru að leka árið 2017 en hvelfingin hýsir nú um 1.050.000 milljón afbrigði um 5 þúsund tegunda af nytjaplöntum. Fræbankinn var settur á laggirnar árið 2008. Honum er ætlað...
HeimurCovid-19Biðraðir í apótek á Tenerife Heilbrigðisyfirvöld á vinsæla ferðamannastaðnum Tenerife á Spáni hafa staðfest eitt tilfelli Covid19 veirusmits þar. Smitaði einstaklingurinn er ítalskur læknir frá Norður-Ítalíu. Fjölmargir Íslendingar eru staddir á Tenerife, þar af eru sjö sagðir í sóttkví á H10 Costa Adeje Palace hótelinu þar sem ítalski maðurinn dvaldi áður en hann val lagður inn á spítala. Sigríður Elín Ásmundsdóttir er föst á Tenerife...
HeimurCovid-19Kórónaveirusmit á Tenerife – Þúsund manns sagðir í sóttkví á hóteli Heilbrigðisyfirvöld á vinsæla ferðamannastaðnum Tenerife á Spáni hafa staðfest eitt tilfelli Covid19 veirusmits þar. Smitaði einstaklingurinn er ítalskur læknir frá Norður-Ítalíu. Hann hafði dvalið á Tenerife í um viku. Hann leitaði læknishjálpar eftir að hafa fundið fyrir einkennum veitusmits. Um þúsund manns eru sagðir í sóttkví á hóteli sem íslenskar ferðaskrifstofur eru í viðskiptum við. Fjöldi Íslendinga eru staddir á...
HeimurBrjóta blað í sögu Fendi – Fyrstu „plus size“ fyrirsæturnar á tískupallinum Fyrirsæturnar Jill Kortleve og Paloma Elsesser gengu á tískusýningu fyrir Fendi á tískuvikunni í Mílanó þegar haust- og vetrarlína þessa árs var sýnd. Báðar Kortleve og Elsesser teljast sem „plus size“ fyrirsætur í tískuheiminum og er þetta í fyrsta sinn sem tískuhús Fendi fær „plus size“ fyrirsætur til að taka þátt í sýningu hjá sér. Paloma Elsesser á sýningu Fendi....
HeimurFramsalskrafan tekin fyrir í dag Réttarhöld þar sem framsalskrafa á hendur Julian Assange, stofnanda Wikileaks, verður tekin fyrir hefjast í London dag. Bandarísk stjórnvöld fara fram á að Assange verði framseldur til Bandaríkjanna. Assange hefur verið ákærður í Bandaríkjunum, meðal annars fyrir uppljóstranir og leka á trúnaðargögnum um hernað Bandaríkjanna í Afganistan og Íran. Yrði hann sakfelldur fyrir öll brotin gæti hann átt von á...