HeimurMegxitHarry og Meghan draga sig í hlé Harry Bretaprins og eiginkona hans, leikkonan Meghan Markle, hafa ákveðið að draga sig í hlé frá konungsfjölskyldunni og freista þess að öðlast fjárhagslegt sjálfstæði. Þetta kemur fram í tilkynningu sem var send á breska fjölmiðla rétt í þessu. Í tilkynningunni kemur m.a. fram að eftir margra mánaða íhugun þá hafi þau ákveðið að breyta til á nýju ári og leggja...
HeimurTími fyrir bandamenn BNA að ranka við sér „Á meðan ég er forseti Bandaríkjanna fá Íranir ekki að eignast kjarnavopn.“ Þannig hóf Donald Trump Bandaríkjaforseti blaðamannafund sinn í Hvíta húsinu, sem lauk fyrir stundu. Tilefni fundarins var árás Íran á bandarískar herstöðvar í Írak en Trump sagði Bandaríkjamenn geta verið þakkláta fyrir það að enginn féll né særðist. Hann sagði bandaríska heraflann undirbúinn undir hvað sem er en...
HeimurVeitingastaður þar sem ruslið er aldrei sótt Samkvæmt nýrri skýrslu ReFED, samtaka sem beita sér fyrir að draga úr matarsóun, verða 11,4 milljón tonn af matarúrgangi til hjá bandarískum veitingastöðum á hverju ári, sem jafngildir kostnaði upp á 25 milljarða dala. Þá hefur bandaríska umhverfisverndarstofnunin (EPA) reiknað út að matarúrgangur og matarpakkningar telji um 45% þess úrgangs sem urðaður er í landinu árlega. Nokkrir veitingastaðir í Bandaríkjunum...
Heimur276 kg túnfiskur sleginn á 221 milljónir Japanska veitingakeðjan Sushizanmai átti hæsta boð í 276 kg túnfisk sem seldur var á uppboði á fiskmarkaði í Tokyo í morgun. Fiskurinn fór á 193 milljón yen, jafnvirði 221 milljóna íslenskra króna. Um er að ræða næsthæsta verð sem greitt hefur verið fyrir túnfisk á uppboðinu en í fyrra greiddi sushi-keðjan 334 milljón yen fyrir 278 kg fisk. Kiyoshi Kimura,...
HeimurGæti þurft að bíða þrjú ár eftir niðurstöðu Bresk táningsstúlka sem var dæmd fyrir að hafa logið um nauðgun kann að þurfa að bíða í þrjú ár eftir að fá endanlega niðurstöðu í málinu. Stúlkan, sem sagði að sér hefði verið nauðgað af þremur ísraelskum mönnum á Kýpur, var fundinn sek um að hafa skáldað atvikið. Lögmenn stúlkunnar segja hana hafa verið beitta harðræði af lögreglu þar til...
HeimurDemókratar moka inn peningum en Trump á fjársjóð Efstu einstaklingarnir í forvali demókrata fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum áttu góðan sprett í fjáröflun á síðasta ársfjórðungi 2019 og söfnuðu meira en 115 milljónum dala. Á sama tíma bættust 46 milljónir dala í stríðskistur sitjandi forseta, Donald Trump. Það þykir nokkuð óvenjulegt hversu vel forsetaefnunum tókst til við fjáröflunina síðust þrjá mánuði en það hefur sjaldan gerst að svo margir...
Heimur„Okkur þykir #WWIII slæm hugmynd“ Alex Kapranos, forsprakki hljómsveitarinnar Franz Ferdinand, hefur tjáð sig á Twitter um þá staðreynd að heiti hljómsveitarinnar fór að trenda á samfélagsmiðlum í kjölfar þess að Bandaríkjamenn drápu einn æðsta herforingja Íran, Qassim Suleimani. Suleimani, sem féll í drónaárás nærri alþjóðaflugvellinum í Baghdad í nótt, var náin samstarfsmaður Ayatollah Ali Khamenei, leiðtoga Íran. Óttast margir að aftakan muni hafa afdrifaríkar...
HeimurSiðferðilegur veganismi er lögvernduð afstaða eða „trú“ Breskur dómstóll sem úrskurðar í málum er varða vinnumarkaðinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að siðferðilegur veganismi sé heimspekileg afstaða eða „trú“ og einstaklingar sem iðka hana njóti lagalegrar verndar gegn mismunun. Umrætt mál varðar Jordi Casamitjana, sem var sagt upp störfum eftir að hann vakti athygli á því að lífeyrissjóður vinnuveitandans fjárfesti í fyrirtækjum sem gerðu tilraunir á dýrum....
HeimurBillboard tekur YouTube með í reikninginn Í eina tíð tók Billboard vinsældarlistinn mið af plötusölu; í dag er staðan nokkuð flóknari. Taka þarf tillit til sölu áþreifanlegra eintaka, sölu rafrænna eintaka og streymis á síðum á borð við Spotify. Frá og með deginum í dag bætist svo enn ein breytan við, þ.e. spilanir á YouTube. Breytingin er sögð í takt við nýjar áherslur; í stað þess...
HeimurNýja árið hér og þar Enginn skyldi ætla að heimsbyggðin sé á einu máli um hvenær eitt ár endar og annað tekur vel. Í Rómaveldi hófst nýtt ár með marsmánuði til 2. aldar fyrir okkar tímatal en þá var nýársdagur settur á 1. janúar. Karlamagnús hafði nýársdag á boðunardegi Maríu eða 25. mars og hér norður á Íslandi voru áramót á jólunum til 16. aldar....
HeimurÞriggja ára fangelsi fyrir erfðatilraunir He Jiankui, vísindamaðurinn sem gerði breytingar á erfðaefni tveggja stúlkubarna til að tryggja að þær fengju ekki HIV, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir athæfið. He var fundinn sekur um að hafa brotið gegn siðferðilegum og vísindalegum viðmiðum og þarf að greiða 3 milljón yuan í sekt. Tveir samstarfsmenn hans voru einnig dæmdir til fangelsisvistar og sektar af...
HeimurDauðarefsingin á undanhaldi í BNA Rangar sakfellingar og umdeildar aftökuaðferðir eru meðal þess sem hefur gert það að verkum að sífellt fleiri ríki í Bandaríkjunum ákveða að stöðva aftökur um óákveðinn tíma eða banna dauðarefsinguna. Samkvæmt nýrri könnun vilja 60% Bandaríkjamanna heldur dæma fólk í ævilangt fangelsi en til dauða.