Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Dauðarefsingin á undanhaldi í BNA

Rangar sak­fell­ingar og umdeildar aftöku­að­ferðir eru meðal þess sem hefur gert það að verkum að sífellt fleiri ríki í Banda­ríkj­unum ákveða að stöðva aftökur um óákveð­inn tíma eða banna dauða­refs­ing­una. Samkvæmt nýrri könnun vilja 60% Banda­ríkja­manna heldur dæma fólk í ævi­langt fang­elsi en til dauða.

Dauðarefsingin á undanhaldi í BNA
Mynd / EPA

Færri en 30 voru teknir af lífi og undir 50 dæmdir til dauða í Banda­ríkj­unum í ár, fimmta árið í röð. Stuðn­ingur við dauða­refs­ing­una hefur ekki mælst minni þar í landi í nær 50 ár en á síð­ustu árum hefur 166 föngum á dauða­deild verið sleppt eftir að dómum í málum þeirra var snúið. Þetta er meðal þess sem kemur fram í árskýrslu sam­tak­anna Death Penalty Information Center, sem berjarst gegn dauða­refs­ing­unni. Þar segir einnig að New Hamps­hire hafi orðið 21. ríki Banda­ríkj­anna til að banna dauða­refs­ing­una en Kali­fornía bætt­ist í hóp þeirra ríkja sem hafa ákveðið að stöðva fram­kvæmd hennar um ótil­tek­inn tíma.

Alls voru 22 teknir af lífi 2019 í Banda­ríkj­unum í sjö ríkjum; Alabama, Flórída, Georgíu, Missouri, Suður-Dakóta, Tennessee og Texas. Þá voru 33 dæmdir til dauða en athygli vekur að dóm­arnir féllu í 28 sýslum, sem sam­svarar minna en 1% af sýslum lands­ins. Washington Post hefur eftir Brandon Garrett, laga­pró­fessor við Duke-háskóla, að þar sem lang­fjöl­menn­ustu dauða­deild­irnar sé að finna í Kali­forníu, muni stöðv­unin þar hafa gríð­ar­leg áhrif á fjölda aftaka. Alls bíða 2.656 fangar þess að verða teknir af lífi í Banda­ríkj­unum en þeir voru 3.593 árið 2000. Þá sitja 729 á dauða­deild í Kali­forníu.

Rétt­læt­inu full­nægt?
Samkvæmt nýrri Gallup­könnun kjósa um 60% Banda­ríkja­manna heldur dæma fólk í ævi­langt fang­elsi án mögu­leika á reynslu­lausn heldur en til dauða. Þar hefur eflaust áhrif mikil umræða um hina umdeildu ban­vænu inn­spýt­ingu sem aftöku­að­ferð og sívax­andi fjöldi ein­stak­linga sem er lát­inn laus, sumir eftir ára­tuga­langa fang­els­is­vist, þegar dómum er snúið. Á árinu vakti ekki síst athygli mál tveggja bræðra, sem báðir eru nú frjálsir eftir að hafa setið á dauða­deild í langan tíma. Corey Atchison, 48 ára, var sleppt í Tulsa eftir að hafa dvalið 28 ár í fang­elsi fyrir morð árið 1990. Yngri bróðir hans, Malcolm Scott, var frels­aður árið 2016 eftir að dómi í óskyldu morð­máli var snúið.

Tveir menn voru teknir af lífi á árinu á meðan enn lék veru­legur vafi á sekt þeirra. Lögmenn Larry Swearingen höfðu reynt að bjarga honum í mörg ár með því að benda á ýmis atriði sem stóð­ust ekki skoðun, t.d. að sýni sem voru tekin undan nöglum kon­unnar sem Swearingen var dæmdur fyrir að myrða hefðu ekki passað við hann. Swearingen, sem var tek­inn af lífi í Texas, hélt ávallt fram sak­leysi sínu. Þá var Domineque Ray tek­inn af lífi í Alabama, eftir að hafa verið dæmdur til dauða árið 1999 fyrir að nauðga og myrða ung­lings­stúlku. Kvið­dómnum í mál­inu tókst ekki að kom­ast að ein­róma nið­ur­stöðu þar sem engar áþreif­an­legar sann­anir voru fyrir hendi í mál­inu.

Ljótasta málið, sam­kvæmt Guardian, var hins vegar mál Tiffany Moss. Hún varð á árinu fyrsta mann­eskjan til að vera dæmd til dauða í Georgíu í fimm ár. Þrátt fyrir að vera með stað­festan heilaskaða, var Moss leyft að sjá um eigin málsvörn en hún lagði ekki fram nein sönn­un­ar­gögn til stuðn­ings sak­leysi sínu, hvorki þegar dómur var kveð­inn upp né refs­ing ákveðin.

Sak­lausir á dauða­deild?
Mál tveggja fanga á dauða­deild sem röt­uðu til Hæsta­réttar Banda­ríkj­anna á árinu vöktu gríð­ar­mikla athygli. Báðir eru svartir og segir Robert Dunham, fram­kvæmda­stjóri DPIC, þau til marks um arf­leifð aftaka án dóms og laga sem svartir máttu þola á árum áður.

Dóm­stóll­inn snéri síð­ustu nið­ur­stöðu í máli Curtis Flowers, sem komst fyrst í kast­ljós fjöl­miðla eftir að um hann var fjallað í hlað­varp­inu In the Dark. Þar var greint frá því að réttað hefði verið í máli Flowers sex sinnum en í hvert sinn sem hann var fund­inn sak­laus, eða fyrri dómur ógiltur af áfrýj­un­ar­dóm­stól, gaf sak­sókn­ar­inn í mál­inu út nýja ákæru. Flowers var upp­haf­lega fund­inn sekur um að hafa myrt fjóra í hús­gagna­verslun í Miss­issippi árið 1996 en Hæsti­réttur kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að sak­sókn­ar­inn í mál­inu hefði ítrekað beitt öllum brögðum til að sjá til þess að sem fæstir svartir sætu í kvið­dómnum. Flowers var sleppt gegn trygg­ingu en hann bíður þess enn að sak­sókn­ar­inn taki ákvörðun um hvort hann kjósi að ákæra Flowers í sjö­unda skipti.

Kim Kar­dashian og Oprah Winfrey voru meðal þeirra sem vöktu athygli á máli Rodney Reed en aftöku hans var frestað á ögur­stundu þegar stuðn­ings­menn hans kröfð­ust próf­ana á erfða­efni sem þeir telja að geta sýnt fram á sak­leysi Reeds. Reed var ákærður og sak­felldur fyrir að hafa nauðgað og myrt hina 19 ára Stacey Stites, hvíta konu sem var trú­lofuð lög­reglu­manni. Reed hefur ávallt haldið því fram að hann og Stites hafi átt í leyni­legu ást­ar­sam­bandi og að unnusti hennar hefði myrt hana í reiði vegna fram­hjá­halds­ins.

Fimm á dauða­lista stjórn­valda
Engir alrík­is­fangar voru teknir af lífi í ár, þrátt fyrir að stjórn­völd hefðu ákveðið að hefja aftökur að nýju eftir nærri 20 ára hlé. Dóms­mála­ráðu­neytið hefur gefið út raun­veru­legan dauða­lista yfir þá fimm ein­stak­linga sem taka á af lífi en þeir eiga það sam­eig­in­legt að hafa pyntað og myrt börn.

Alls 13 aftökum hefur verið frestað í Ohio vegna deilna um „ágæti“ ban­vænnar inn­spýt­ingar sem aftöku­að­ferð en þrír fangar á dauða­deild lét­ust á árinu skömmu áður en aftökur þeirra áttu að fara fram.

Nærri 100 manns voru teknir af lífi árið 1999 og á árunum fyrir síð­ustu alda­mót voru um 300 dæmdir til dauða á ári hverju.

Þúsundir teknar af lífi í Kína
Amnesty International gefur árlega út tölur um aftökur á heims­vísu en árið 2018 voru að minnsta kosti 690 teknir af lífi í 20 löndum. Flestar aftökur voru fram­kvæmdar í Kína, Íran, Sádi-Arabíu, Víetnam og Írak.

Aftök­urnar í Kína eru ekki inni í töl­unni 690; þar­lend stjórn­völd eru talin standa fyrir fleiri aftökum en öll önnur ríki sam­an­lagt en engar upp­lýs­ingar eru gefnar um þær og gríð­ar­lega erfitt að reyna að ná yfir­sýn yfir fjöld­ann. Mann­rétt­inda­sam­tök gera ráð fyrir að aftök­urnar nemi þús­undum.

Að minnsta kosti 253 voru teknir af lífi í Íran árið 2018, 85 í Víetnam og 52 í Írak. Í lok árs­ins 2018 höfðu 106 ríki tekið dauða­refs­ing­una úr lögum og 36 ríki til við­bótar látið af því að dæma menn til dauða.

Cornell-háskól­inn í Banda­ríkj­unum heldur utan um nýj­ustu tölur yfir dauða­refs­ingar á heims­vísu. Þær voru síð­ast upp­færðar 18. des­em­ber en sam­kvæmt þeim hafa 26 verið teknir af lífi í Egypta­landi það sem af er ári, 232-256 í Íran, að minnsta kosti sex í Norður-Kóreu, 14 í Pakistan og 139 í Sádi-Arabíu.

Aftöku­að­ferðir eru afhöfðun, raf­lost, heng­ing, ban­væn inn­spýt­ing, byssu­skot og grýt­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco