HeimurSkýrslan hreinsar ekki Trump segir Mueller Robert Mueller, sem skipaður var árið 2017 sem sérstakur rannsakandi vegna meintra áhrifa Rússa á bandarísku forsetakosningarnar árið 2016, svaraði í gær spurningum þingmanna Bandaríkjanna um rannsóknina. Afurð rannsóknarinnar var 448 bls. skýrsla sem kom út í apríl síðastliðnum. Spurningarnar voru einkum tengdar aðkomu núverandi forseta, Donald Trump.
HeimurBoris Johnson verður næsti forsætisráðherra Bretlands Boris Johnson verður næsti forsætisráðherra Bretlands og tekur hann við embættinu af Theresu May á morgun. Johnson hafði betur gegn utanríkisráðherranum Jeremy Hunt í kosningu um formannsembættið hjá Íhaldsflokknum. Hlaut Boris nærri tvöfalt fleiri atkvæði en Hunt. Það voru 120 þúsund meðlimir breska Íhaldsflokksins sem greiddu atkvæði í kosningunni sem hefur staðið yfir í á þriðju viku. Theresa May sagði...
Heimur„Ég var ritstjóri Boris Johnson. Hann er gjörsamlega vanhæfur í embætti forsætisráðherra” Max Hastings, fyrrverandi ritstjóri Boris Johnson, segir í skoðanapistli á vef The Guardian, að Boris sé gjörsamlega vanhæfur í starf forsætisráðherra. Þá segir hann Íhaldsflokkinn neyða smekklausan brandara upp á breskan almenning verði Boris gerður að forsætisráðherra.
HeimurÁsmundur Einar: Ekkert óeðlilegt við það að skipa nefndir pólitískt Framsóknarflokkurinn hefur stýrt félagsmálaráðuneytinu í 17 ár, frá árinu 1997. Fjölmargir aðilar tengdir flokknum gegna trúnaðarstörfum fyrir ráðuneytið. Í samtali við Kjarnann segir Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra að þegar um er að ræða nefndir, ráð og hópa á vegum ráðuneytisins sem taka stefnumótandi ákvarðanir sem tengjast pólitík þá séu formenn nefndanna pólitískt skipaðir. „Þegar pólitískar nefndir eru skipaðar þá er...
HeimurNú geta hundar pantað eigin leikföng á netinu að því gefnu að eigendurnir borgi Brasilíska dýraverslunin Petz hefur opnað vefsíðu sem gerir hundum kleift að versla á netinu. Gervigreind skynjar viðbrögð hundsins í gegnum vefmyndavél við tilteknum vörum. Ef viðbrögðin eru jákvæð er varan sett í innkaupakerruna á síðunni.
HeimurFramleiðslukeðjur slitna Þó flestir spái því, að það verði ekki látið gerast, að Bretland gangi úr ESB án samnings eða ítarlegrar áætlunar um hvernig eigi að takast á við það, þá er heldur ekkert sem segir að það geti ekki gerst. Sé litið yfir atburði síðustu mánaða, þá liggur fyrir að engin áætlun, sem hefur nægilega mikinn stuðning stjórnmálamanna, getur orðið leiðarvísir út úr stöðunni.
HeimurBrexit er óvissuský fyrir Ísland Þrátt fyrir að Brexit dagsetningunni hafi nú verið fresta fram í október, þá ríkir mikil óvissa hvernig efnahagsmál Bretlands og Evrópu munu þróast í tengslum við Brexit.
HeimurBoris Johnson mætir fyrir dóm vegna gruns um að hann hafi blekkt almenning í Brexit-kosningum Boris Johnson er sakaður um lygar og villandi málflutning í aðdraganda Brexit . Breskur kjósandi kærði Boris vegna fullyrðinga um að aðild Bretlands að Evrópusambandinu kostið breskan almenning 350 milljónir punda í viku hverri. Upphæðin er um 55 mlljarðar íslenskra króna.
HeimurPortman neitar sambandi við Moby: „Ég man mun eldri mann sem var óviðeigandi við mig“ Tónlistarmaðurinn Moby fullyrðir í nýútkominni bók að hann og Natalie Portman hafi átt í ástarsambandi þegar hún var tvítug. Portman hefur ítrekað neitað sambandi og lýsir stuttum samskiptum sínum við Moby sem óhugnalegum, óþægilegum og óviðeigandi. Hún minnist Moby sem eldri manns sem sýndi henni óviðeigandi hegðun. Portman var tæplega 18 ára þegar samskiptin áttu sér stað.
HeimurTheresa May gafst upp á Brexit og boðar afsögn sína Theresa May mun stíga úr stóli forsætisráðherra þann 7. júní eftir að hafa mistekist að finna lausn á útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Baráttan um eftirmann May er þegar hafin innan Íhaldsflokksins. May tilkynnti um ákvörðun sína í ávarpi fyrir utan Downing-stræti 10 í morgun. Segir á vef BBC að May hafi augljóslega verið mikið niðri fyrir og runnu tár á...
HeimurLét lóga tíkinni sinni og jarða sig með henni Tíkinni Emmu var lógað, þrátt fyrir að hún væri fullkomlega heilsuhraust, svo að hægt væri að jarða hana með eiganda sínum.
HeimurFyrstu risaþoturnar farnar í brotajárn Þótt ekki séu liðin nema 12 ár síðan fyrsta Airbus A380 risaþotan kom á markað þá er strax farið að glitta í endanlokin hjá þessari stærstu farþegaþotu heims. Niðurrif er hafið á tveimur slíkum vélum á Tarbes Lourdes flugvelinum í Frakklandi.