Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Nú geta hundar pantað eigin leikföng á netinu að því gefnu að eigendurnir borgi

Brasil­íska dýra­versl­unin Petz hefur opnað vef­síðu sem gerir hundum kleift að versla á net­inu. Gervi­greind skynjar við­brögð hunds­ins í gegnum vef­mynda­vél við til­teknum vörum. Ef við­brögðin eru jákvæð er varan sett í inn­kaupa­kerruna á síð­unni.

Nú geta hundar pantað eigin leikföng á netinu að því gefnu að eigendurnir borgi
Pet-Commerce|

Þegar farið er inn á Petz e-commerce koma upp þrír val­mögu­leikar; Boltar, leik­föng og nag­bein. Þegar búið er að velja flokk birt­ast stutt mynd­bönd þar sem til­tekin vara er sýnd meðan vef­mynda­vél tekur upp við­brögð hunds­ins sem gervi­greindin les úr. Eins og áður segir er varan sett í inn­kaupa­kerru ef hund­ur­inn sýnir jákvæð við­brögð. Hunda­eig­and­inn verður þó að ganga frá kaup­unum.

Mannlíf setti sig í sam­band við Heiðrúnu Klöru Johansen, hunda­þjálf­ara og hunda­at­ferl­is­fræð­ing, til að fá betri skiln­ing á atferli hunda. „Það sem vekur áhuga hunda er lykt,” segir Heiðrún og bætir við að áferð skipti líka máli. „Segjum að það sé mynd af tveimur hlutum, grænn froskur og bleikur fíll. Ef hann heyrir tíst úr öðru þeirra þá vekur það upp veiði­kvöt.” Hún bendir á að hund­ur­inn gæti ekki vitað hvort honum myndi líka við fyrr en hann fengi að snerta og þefa af leik­fang­inu. „Það vantar lykt­ina og áferð­ina.”

Ef að hljóð og lykt eru ekki til staðar gæti formið mögu­lega haft áhrif. „Til dæmis hundur sem er bolta­sjúkur,” segir Heiðrún. Þannig gæti hund­ur­inn sýnt boltum auk­inn áhuga. „Það er þá lærð hegðun.”

Heiðrún segir gervi­greind alveg geta lesið í svip­brigði hunds. „Hún ætti að geta gripið það ef hund­ur­inn sperrir upp augun eða verði almennt spennt­ari.” Eyrna­staða og höf­uð­hreyf­ing er þá einnig sterk vís­bend­ing um aukna athygli. „Það eru ekk­ert allir hundar sem gera það,” segir hún og bætir við að oft­ast séu höf­uð­hreyf­ingar tengdar hljóði. „Þegar þeir reyna til dæmis að skilja mann.”

Tækni sem hægt er að nýta í gróðarskyni

Heiðrún segir hunda hafa ólíkar til­hneig­ingar og mis­mun­andi smekk. Sumir fýla mjúk og loðin leik­föng meðan aðrir vilja gúmmí. „Það myndi þurfa eitt­hvað á skjánum sem grípur athygl­ina. Eitthvað sem fer hratt eða gefur hljóð frá sér.”

Þá segir hún hljóð geta verið notuð til að selja dýr­ari varn­ing. „Hann getur sýnt meiri við­brögð gagn­vart tísti. Það þýðir ekk­ert að hann hafi meiri áhuga.” Þannig gætu fyr­ir­tæki mögu­lega notað hljóð til að selja ákveðnar vörur. „Svo kemur bara í ljós hvort að hund­ur­inn vill þetta þegar það kemur heim. Þau þurfa að máta það, svo að segja. Ekki nóg að sjá það.” Þá segir hún áhuga­vert að sjá hvort tengsl séu á milli dýr­ari varn­ings og áhuga hunds­ins.

„Ef varan fram­kallar þetta hljóð þegar þau fá vör­una þá er ekk­ert að þessu. En ef þau setja inn önnur hljóð til að fegra eða blekkja þá er þetta bara vöru­svik eins og hvað annað. Það þyrfti bara að koma í ljós. Eins og þegar maður kaupir sjálfur á net­inu.” Hún kemur aftur inn á veiði­hvöt hunds­ins og hvernig fyr­ir­tækið getur notað hátíðni­hljóð til að vekja sér­stakan áhuga. „Veit ekki hvort það sé hægt að gera það í gegnum skjá. en það eru til hátíðni­flautur sem við heyrum ekki í.“

Pet-Commerce forritið bara fyrir hunda eins og er

Fram­kvæmda­stjóri Petz, Sergio Zimerman, sagði í yfir­lýs­ingu að hug­myndin „passi vel við það sem fyr­ir­tækið stendur fyrir. Þessi tengsl milli hunds og eig­anda geta komið í hvaða formi sem er.“ Þá sagði hann að „dýra­ást eigi sér engin tak­mörk og Pet-Commerce sé sönnun þess.“

Því miður er geta for­rits­ins ein­skorðuð við hunda og því geta katta­eig­endur ekki nýtt sér þessa þjón­ustu, að minnsta kosti eins og er. Zimerman hefur lýst yfir vilja fyr­ir­tæk­is­ins að laða for­ritið að hegð­un­ar­mynstri katta í fram­tíð­inni. Hvort það muni takast verður að koma í ljós. Þeir sem þekkja til vita hversu áhuga­lausir kettir geta virkað í sam­an­burði við hunda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco