Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Portman neitar sambandi við Moby: „Ég man mun eldri mann sem var óviðeigandi við mig“

Tón­list­ar­mað­ur­inn Moby full­yrðir í nýút­kominni bók að hann og Natalie Portman hafi átt í ást­ar­sam­bandi þegar hún var tví­tug. Portman hefur ítrekað neitað sam­bandi og lýsir stuttum sam­skiptum sínum við Moby sem óhugna­legum, óþægi­legum og óvið­eig­andi. Hún minn­ist Moby sem eldri manns sem sýndi henni óvið­eig­andi hegðun. Portman var tæp­lega 18 ára þegar sam­skiptin áttu sér stað.

Portman neitar sambandi við Moby: „Ég man mun eldri mann sem var óviðeigandi við mig“
|Sjálfsævi­saga Moby: Then It Fell Apart|Skjáskot af mynd­inni sem var síðar fjar­lægð af Instagram|Portman í hlut­verki sínu í mynd­inni Leon|Natalie Portman í Berlin. Mynd: Siebbi/CC BY-SA 3.0

Í nýút­kominni sjálfsævi­sögu Moby, Then It Fell Apart, seg­ist hann hafa átt í sam­bandi við Portman. Þar heldur hann fram að Portman hafi daðrað við hann í bún­ings­klefa. Hún hafi þá verið tví­tug og hann rúm­lega þrí­tugur. Portman var þó ekki orðin átján ára þegar sam­skiptin áttu sér stað.

Í bók­inni fer Moby yfir fyrstu kynni þeirra Portman. „Ég var sköll­óttur ofdrykkju­maður og Natalie Portman var fal­leg kvik­mynda­stjarna. En þarna var hún í bún­ings­her­berg­inu mínu, að reyna við mig. Ég var 33 ára og hún 20 ára en þetta var hennar heimur.” Moby full­yrðir að hann hafi reynt að vera kærast­inn hennar en hún slitið sam­band­inu eftir að hafa kynnst öðrum manni. Hann segir slitin hafa verið honum léttir þar sem hann vildi ekki deila með henni kvíða­vanda­málum sínum.

Sjálfsævi­saga Moby: Then It Fell Apart

Portman segir þau ekki hafa átt í sam­bandi. Í við­tali við Harpers Bazaar segir hún ekki muna eftir þessu svona. „Ég var hissa að hann lýsi þessum stutta tíma sem við þekkt­umst sem ein­hverju ást­ar­sam­bandi. Ég man mun eldri mann sem var óvið­eig­andi við mig, unga stelpu nýút­skrif­aða úr mennta­skóla.” Portman tekur fram í við­tal­inu að Moby fari einnig rangt með ald­urs­mun­inn. Hún hafi verið tæp­lega 18 ára, enda fædd 1981 og Moby 1965. Það er sextán ára ald­urs­munur en ekki þrettán eins og Moby hefur haldið fram.

Reyndi að færa sannanir fyrir tilvist sambandsins á Instagram

Skjáskot af mynd­inni sem var síðar fjar­lægð af Instagram

Moby svar­aði Portman og setti inn mynd á Instagram af þeim tveimur. Á mynd­inni er hann ber að ofan og heldur utan um hana. Myndin er ekki lengur sjá­an­leg á Instagram síðu tón­list­ar­manns­ins.

Bað Portman afsökunar

Moby deildi afsök­un­ar­beiðni til Portman á Instagram. Þar seg­ist hann hafa tekið gagn­rýni á bók­inni til sín. „Það var til­lits­laust af mér að láta [Portman] ekki vita fyr­ir­fram af til­vist hennar í bók­inni. Það var jafn til­lits­laust af mér að virða ekki hennar við­brögð“ segir í færsl­unni. „Ég er fullur aðdá­unar í garð Natalie. Hún er gáfuð, skap­andi og berst fyrir rétt­indum dýra. Mér þykir leitt að hafa valdið bæði henni og fjöl­skyldu hennar van­líðan.“ Moby seg­ist einnig gera sér grein fyrir miklum ald­urs­muni. „Ég hefði átt að vera til­lit­samur og ábyrgur þegar við Natalie hitt­umst fyrst fyrir tæpum 20 árum“.

Portman kynlífsvædd í myndinni Leon

Portman í hlut­verki sínu í mynd­inni Leon

Portman hélt ræðu í kvenna­göngu Los Angeles í jan­úar 2018 þar sem hún vakti athygli á kyn­líf­s­væð­ingu á ungum leikkonum. Þar tal­aði hún út frá eigin reynslu. „Útvarps­stöð í heima­bænum mínum var með nið­ur­taln­ingu í 18 ára afmæl­is­dag­inn minn. Það var dag­ur­inn sem það yrði lög­legt að sofa hjá mér.” Þá tal­aði hún einnig um fyrstu reynslu sína sem ung leik­kona. Portman var ein­ungis 12 ára gömul þegar hún átti stór­leik í mynd­inni Leon. Luc Besson, leik­stjóri mynd­ar­innar, hefur verið harð­lega gagn­rýndur fyrir að kyn­líf­s­væða leikkon­una í mynd­inni. Eftir frum­sýn­ingu mynd­ar­innar fékk Portman fyrsta aðdá­enda­bréfið sitt, þá 13 ára. Bréfið inni­hélt lýs­ingar á draum­órum karl­manns sem vildi nauðga henni.

Moby dæmigerður dáðadrengur með karlrembu

„Í ævi­sögu sinni setur Moby upp sam­skipti hans við Portman á þann hátt sem lætur hana, stelpu á ung­lings­aldri, virð­ast ögrandi,” skrifar Arwa Mahdawi í skoð­anapistli á the Guardian. Pistla­höf­undur segir málið lýsandi fyrir karl­rembu dáða­drengs. „Það er ekk­ert óhugna­legt við hann. Moby er vegan, póli­tískt fram­sæk­inn og hefur sakað aðra lista­menn, meðal ann­ars Eminem, um karl­rembu” skrifar Mahdawi. „Mesta skömmin við þetta er að maður eins og Moby, sem til­einkar lífi sínu vit­und­ar­vakn­ingu á vegan­isma, kemur fram við konur eins og þær séu kjöt­stykki.”

Mahdawi gagn­rýni Instagram færslu Moby „Hann virð­ist í örvænt­ingu sinni vilja að heim­ur­inn viti af sam­bandi sínu við mennta­skóla­stelpu.” Mahdawi deildi pistl­inum á Twitter. „Moby virð­ist ekki sjá neitt rangt við að 33 ára ein­stak­lingur sé bendl­aður við ung­ling. Það segir manni hvað kyn­líf­s­væð­ing á ungum konum er stöðluð í sam­fé­lag­inu”.

Natalie Portman, skírð Neta-Lee Hershlag, er ísra­elsk-banda­rísk leik­kona. Hún hefur einnig starfað sem fram­leið­andi, höf­undur og leik­stýra. Portman hefur tekið á móti ótal verð­launum fyrir leik sinn, meðal ann­ars Ósk­arsverð­launum og tveimur Golden Globe verð­launum. Moby, sem heitir réttu nafni Melville Hall, er banda­rískur tón­list­ar­maður. Hann er söngv­ari, laga­höf­undur og fram­leið­andi sem hefur lengi talað fyrir vegan­isma og barist fyrir rétt­indum dýra. Moby hefur selt 20 milljón albúma yfir allan heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco