HeimurSleit ofbeldisfullu sambandi: „Þetta breytti mér“ Í nýjasta hlaðvarpi spjallþáttadrottningarinnar Opruh Winfrey, Oprah’s SuperSoul Conversations, sest Oprah niður með leikkonunum Reese Witherspoon og Mindy Kaling, en þessar þrjár leika saman í kvikmyndinni A Wrinkle in Time sem frumsýnd verður í mars. Í viðtalinu talar Reese opinskátt um að hún hafi verið í ofbeldisfullu sambandi, en nefnir ofbeldismanninn þó ekki á nafn. „Var þetta líkamlegt? Beitti hann...
HeimurÓmáluð á forsíðunni og skráir sig í sögubækurnar Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bündchen prýðir forsíðu tímaritsins Vogue Italia sem fer í sölu í dag. Gisele er algjörlega ómáluð á forsíðunni, sem og á myndum inni í tímaritinu, en þetta er í fyrsta sinn í sögu ritsins þar sem forsíðustúlkan er ómáluð og ekki er heldur búið að eiga við hár hennar. Sunnudagur með Gisele. Það var ljósmyndarinn Jamie Hawkesworth...
HeimurBreytti um lífsstíl og losaði sig við sjötíu kíló „Ég hataði allt við sjálfa mig og það var erfið staða að vera í,“ segir hin 31 árs gamla Katie Bolden í viðtali við tímaritið People. Tímaritið gaf nýverið út aukablað um fólk sem hefur lést um helming af líkamsþyngd sinni, og er Katie ein þeirra. Þegar Katie var þyngst var hún tæplega 130 kíló. Venjuleg kvöldmáltíð fyrir hana var...
HeimurHvíl í friði John Mahoney Leikarinn góðkunni John Mahoney, sem er hvað þekktastur fyrir að leika Martin Crane í sjónvarpsþáttunum Frasier, lést síðasta sunnudag á líknardeild í Chicago. Dánarorsök var krabbamein í hálsi. Leikarinn var 77 ára þegar hann lést. John fæddist í Blackpool á Englandi þann 20. júní árið 1940 en flutti til Bandaríkjanna sem ungur maður. Hann vann við enskukennslu og ritstýrði læknariti...
HeimurKonur segja nei við dömuflögum Doritos Indra Nooyi, forstjóri PepsiCo, sem framleiðir til dæmis Doritos, lét hafa eftir sér í hlaðvarpi í vikunni að fyrirtækið væri að þróa sérstakar Doritos-flögur fyrir konur. „Þegar maður horfir á mikið af ungum strákum að borða flögurnar, en þeir elska sitt Doritos, þá sleikja þeir fingur sína af innlifun og þegar flögurnar eru búnar hella þeir mylsnunni uppí munninn sinn,...
HeimurEinhleypt fólk opnar sig um slæmt kynlíf Ein stærsta stefnumótasíða á netinu í heiminum, Match.com, gaf nýverið út sína árlegu rannsókn á einhleypum í Bandaríkjunum. Í rannsókninni voru spurningar settar fyrir fimm þúsund einhleypa einstaklinga, átján ára og eldri. Var einhleypa fólkið til dæmis spurt út í kynlíf og hvað gæti orðið til þess að samfarir væru slæmar. 82% þeirra sem svöruðu sögðu að of mikið mas...
HeimurFaldi óléttuna fyrir heiminum en nú er barnið fætt Fyrirsætan, raunveruleikastjarnan, frumkvöðullinn og áhrifavaldurinn Kylie Jenner tilkynnti í gær að hún væri búin að eignast sitt fyrsta barn með kærasta sínum, Travis Scott. Kylie er dóttir Kris og Caitlyn Jenner og hvað þekktust fyrir að taka þátt í raunveruleikaþættinum Keeping Up With the Kardashians með fjölskyldu sinni. Kylie faldi óléttuna fyrir umheiminum, en þó var mikið búið að skrifa...
HeimurGagnrýnendur segja þetta hræðilegustu hryllingsmynd síðari ára Hryllingsmyndin Hereditary, í leikstjórn Ari Aster, var frumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni og hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa. Myndin, sem skartar leikurunum Toni Collette, Gabriel Byrne og Ann Dowd í aðalhlutverkum, kemur í kvikmyndahús næsta sumar og fjallar um Annie, sem grunar að yfirnáttúrulegir kraftar hafi heltekið húsið hennar. Hún þarf að kanna það sem býr í myrkrinu til að...
HeimurHeil eyja til sölu á 35 milljónir Skoska eyjan Linga við Hjaltlandseyjar, norður af skoska meginlandinu, er nú til sölu. Ásett verð er 351 þúsund dollarar, rétt tæplega 35,5 milljónir króna. Eyjan er tæplega 26 hektarar og kemst maður hæglega út í hana á bát frá skoska bænum Walls. Það þýðir að þeir sem setjast að á Lingu eru ekki langt frá siðmenningu, þó einangrunin sé algjör...
HeimurKanadíski forsætisráðherrann líka hrifinn af flippuðum sokkum Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, sótti fund Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss eins og svo margir aðrir þjóðarleiðtogar. Justin vakti ekki aðeins athygli fyrir mælsku sína og skoðanir heldur stálu litríkir og flippaðir sokkar hans algjörlega senunni. Forsætisráðherrann settist niður með Nóbelsverðlaunahafanum Malölu Yousafzai og sáu þá glöggir gestir fundarins glitta í fjólubláa sokka með gulum öndum á. Eins og við...
HeimurVerslað í matinn með Miröndu Kerr Ofurfyrirsætan Miranda Kerr, sem er hvað þekktust fyrir að vera engill nærfatarisans Victoria’s Secret, stjórnar vikulegum þáttum á myndbandarás tímaritsins Harper’s Bazaar sem heita Little Black Book of Wellness. Í þáttunum fáum við innsýn í líf ofurfyrirsætunnar og sjáum hvernig hún heldur sér í góðu jafnvægi, bæði andlega og líkamlega. Í nýjasta þættinum talar Miranda mikið um kosti þess að...