InnlentVítalíumáliðSamfélagið á reiðiskjálfi eftir ásakanir Vítalíu og Arnars – Eitruð ást, uppspuni og mannorðsmorð Samfélagið lék bókstaflega á reiðiskjálfi eftir að Vítalía Lazareva steig fram og bar þungar ásakanir á ástmann sinn, Arnar Grant, og fjóra aðra einstaklinga. Málið náði langt út fyrir það að vera hefðbundið áreitismál þar sem persónulegur harmleikur er að baki. Það teygði sig inn í eitt stærsta fjölmiðlafyrirtæki landsins og næstærstu smásölukeðjuna. Langflestir trúðu framburði ungu, sakleysislegu konunnar sem...
InnlentKolvitlaust veður og viðbúnaður Kolvitlaust veður er í uppsiglingu um allt land í dag og á morgun. Björgunarsveitir og lögregla um allt land verða á viðbúnaðarstigi og lagt er að fólki að gæta varúðar. Reiknað er með miklum vindi og úrkomu. Flugfélögin hafa aflýst fjölda ferða í dag vegna yfirvofandi veðurs. Morgunblaðið hefur eftir veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands að það stefni í versta veður...
InnlentSeinheppinn hótelþjófur sást á myndbandi – Málglaður ökumaður reyndist réttindalaus Aðeins tveir einstaklingar sváfu í fangaklefum lögreglunnar á höfuðborgarrsvæðinu í nótt. Lögregla var kölluð til vegna búðarþjófs í verslun. Málið leyst með vettvangsskýrslu. Þjófur lét greipar sópa á hóteli í borginni. Hann var svo óheppinn að myndir náðust af honum á öryggismyndavélar. Lögregla hefur upptökurnar undir höndum og miðar rannsókn málsins vel. Þrír ökumenn voru stöðvaðir í akstri grunaðir um...
InnlentSteypubílstjórinn sem banaði Ibrahim hlaut skilorðsbundinn dóm – Sýndi af sér stórfellt gáleysi Steypubílstjórinn sem varð hinum átta ára Ibrahim Shah að bana á Völlunum í Hafnarfirði í október 2023, var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi, vegna slyssins. Þótti hann hafa sýnt af sér stórfellt gáleysi er hann ók steypubíl á piltinn. Karlmaður á sjötugsaldri sem ók á hinn átta ára Ibrahim Shah í Hafnarfirði í október 2023 hefur nú verið dæmdur...
InnlentEdda Falak freistar þess ennþá að semja við Fjólu og Davíð – Sögð vilja fá 30 milljónir Davíð Goði Þorvarðsson og Fjóla Sigurðardóttir vilja 30 milljónir króna frá áhrifavaldinum Eddu Falak, samkvæmt lögmanni hennar, en þau unnu saman að hlaðvarpsþættinum Eigin Konur sem naut vinsælda fyrir nokkrum árum. Davíð Goði og Fjóla segja Eddu hafa svikið sig. Þá hafa þau gefið í skyn að Edda hafi beitt þau andlegu ofbeldi. „Þær tekjur sem komu inn á samstarfstíma...
InnlentBúið að ákveða hver lýsir Eurovision og hver kynnir stig Íslands: „Við erum í skýjunum“ Búið er að ákveða hvaða einstaklingar muni leika lykilhlutverk í sjónvarpsútsendingu RÚV á Eurovision á Íslandi. Í samtali við Mannlíf staðfesti Rúnar Freyr Gíslason, framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar, að búið væri að ákveða hver muni lýsa Eurovision og hver muni kynna stig Íslands. Hann vildi þó ekki gefa upp hvaða fólk um ræðir. „Við munum tilkynna um það eftir Söngvakeppnina.“ Gísli Marteinn...
InnlentEitt prósent líkur á að loftsteinn lendi á jörðinni 2032: „Kannski er best að slökkva á fréttunum“ „Ef sagan kennir okkur eitthvað þá kennir hún okkur að það gerist alltaf eitthvað óvænt og stórt. Lítum á nokkur dæmi. Hver hefði trúað því að við færum að tala um innrás og Grænland í sömu andrá? Hver hefði trúað því að við færum í alvörunni að tala um hættuna á yfirtöku gervigreindar á mannkyninu? Eða hættuna á að Golfstraumurinn...
InnlentSanna gagnrýnir fyrirætlan Ingu í velferðarmálum: „Síkt er ekkert að hækka grunnupphæð lífeyris“ Sanna Magdalena Mörtudóttir setur spurningamerki við fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar í velferðarmálum. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur kynnti í gær þau frumvörp sem hún hyggst leggja fram á komandi þingi en þar sagðist hún ætla að stíga stór skref í málefnum öryrkja og fátækra á þessu ári. Borgarfulltrúi Sósíalista, Sanna Magdalena Mörtudóttir virðist hins vegar ekki finnast skrefin nógu stór hjá ríkisstjórninni en hún...
InnlentGæsluvarðhald aftur framlengt í hnífstungumálinu á Kjalarnesi Karlmaður á fimmtugsaldri sem var úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald í janúar að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í húsi á Kjalarnesi á nýársnótt mun sitja í gæsluvarðhaldi í fjórar vikur til viðbótar. Er það gert á grundvelli almannahagsmuna samkvæmt lögreglu. Tveir slösuðust alvarlega í árásinni þar sem hnífi var beitt og hlaut...
InnlentSérfræðingar bíða átekta: „Staðan við Svartsengi er nú í raun þannig að beðið er eftir eldgosi“ Eldfjalla- og náttúruváhópur Suðurlands á Facebook segja að nú sé staðan þannig við Svartsengi að beðið sé eftir eldgosi. Í færslu hjá hópnum segir: „Staðan við Svartsengi er nú í raun þannig að beðið er eftir eldgosi. Frá lokum síðasta eldgoss hefur því verið spáð að líkur á öðru eldgosi myndu vaxa verulega í kringum mánaðamót janúar/febrúar.“ Með færslunni birtir...
InnlentGísli Rafn nýr framkvæmdastjóri Rauða Krossins eftir að hafa dottið af þingi Rauði krossinn á Íslandi hefur ráðið Gísla Rafn Ólafsson sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins og hefur hann störf í þessari viku en greint er frá þessu í tilkynningu frá hjálparsamtökunum. „Gísli Rafn var um langt skeið yfirmaður neyðarmála hjá NetHope, regnhlífasamtökum 60 stærstu hjálparsamtaka í heimi þar sem hann kom að viðbragðsstjórnun vegna fjölmargra umfangsmikilla náttúruhamfaravíða um heim. Gísli Rafn var...
InnlentBjörgólfur er látinn Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri og stjórnarformaður Landsbanaknas, lést síðastliðinn sunnudag, 2. febrúar 2025. Hann var 84 ára. Björgólfur fæddist 2. janúar 1941. Hann var sonur hjónanna Kristínar Davíðsdóttur húsmóður og Guðmundar Ólafssonar bílstjóra. Morgunblaðið segir frá andlátinu og rekur æviferil hans. Björgólfur nam við Gagnfræðaskólann við Hringbraut og síðan Verslunarskólann og útskrifaðist þaðan stúdent 1962. Björgólfur var áberandi í viðskiptalífinu...