InnlentÁ RÚV að vísa VÆB úr Söngvakeppninni? Hljómsveitin VÆB sem tekur þátt í Söngvakeppninni 2025 hefur verið sakað um að stela hluta úr öðru lagi og nota sem eigið lag en um er ræða vinsælt lag frá Ísrael. Málið er til skoðunnar hjá RÚV en sumir telja að vísa eigi hljómsveitinni úr keppni og hafa höfundar ísraelska lagsins haft samband við lögfræðinga vegna málsins. En við spyrjum...
InnlentKristrún þögul Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra vill ekkert tjá sig um styrkjamál Flokks fólksins og þá afstöðu Ingu Sæland formanns að vilja ekki endurgreiða þær 240 milljónir sem flokkurinn hefur fengið í gegnum tíðina þrátt fyrir að vera ólöglega skráður. Morgunblaðið spurði Kristrúnu út í málið eftir ríisstjórnarfund en hún sagðist þurfa að kynna sér málið. Inga Sæland hefur brugðist illa við fréttum...
InnlentMaður í hlandspreng eltur uppi af lögreglu- Ofbeldisseggur gerði alvarlega árás og náðist á fæti Lögregla var kölluð til vegna líkamsárásar í austurborginni. Málið í rannsókn. Afskipti voru höfð af ökumanni sem var með of dökkar filmur í rúðum bifreiðar sinnar. Ökutæki boðað í skoðun. Maður varð ósjálfbjarga sökum ölvunar á almannafæri. Lögreglan kom til bjargar og fór með hann heim til sín. Ökumaður handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis. Ökumaðurinn var látinn...
InnlentStrætó velti fólksbíl á Snorrabraut – Lögreglan leitar að vitnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að árekstri fólksbifreiðar og strætisvagns sem varð á gatnamótum Snorrabrautar og Bergþórugötu í Reykjavík í morgun. „Tilkynning um áreksturinn barst kl. 10.38 en fólksbifreiðinni var ekið austur Bergþórugötu og inn á gatnamótin, en strætisvagninum var ekið suður Snorrabraut þegar árekstur varð með þeim. Þarna eru umferðarljós, en ökumönnunum ber ekki saman um stöðu ljósanna...
InnlentRíkið ræður hjúkrunarfræðing, orkuverkfræðing og lögfræðing í vinnu Anna Rut Kristjánsdóttir, Anna Sigrún Baldursdóttir og Sveinbjörn Finnsson hafa verið ráðin aðstoðarmenn ríkisstjórnarinnar segir í langri tilkynningu frá stjórnarráðinu. „Anna Rut er með meistarapróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og hefur frá árinu 2021 starfað hjá umboðsmanni Alþingis, lengst af sem skrifstofustjóri kvartanasviðs. Á árunum 2014 til 2019 starfaði hún sem lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis og leysti tímabundið af...
InnlentEllert B. Schram er látinn Ellert B. Schram, fyrrverandi alþingismaður, ritstjóri, rithöfundur og íþróttamaður, er látinn, 85 ára að aldri, eftir erfið veikindi. Ellert fæddist í Reykjavík 10. október 1939 en foreldrar voru þau Björgvin Schram kaupmaður og Aldís Þorbjörg Brynjólfsdóttir. Fyrri eiginkona Ellerts er Anna Guðlaug Ásgeirsdóttir en seinni kona hans er Ágústa Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur og framhaldsskólakennari. Ellert átti með Önnu börnin Ásdísi Björg,...
InnlentVor í gróðurhúsinu á Lækjartorgi: „Þetta er svolítið ævintýralegt“ Það er fátt sem gleður marga jafn mikið og litskrúðug blóm en þau eru talsvert algengari á vorin og sumrin en í janúar á Íslandi. Það er hins vegar komið vor í gróðurhúsinu á Lækjartorgi en óhætt er að segja að húsið hafi vakið mikla lukku Reykvíkinga síðan því var komið fyrir á torginu góða. „Við áttum þessi blóm sem...
InnlentFyrrum starfsmaður lýsir furðulegu vinnuumhverfi á Maríuborg: „Hópur að tala um sjálfsfróun“ Foreldrar 60 barna sem eru í eða hafa verið í leikskólanum Maríuborg í Grafarholti krefjast þess að Agnes Veronika Hauksdóttir, leikskólastjóri skólans, segi af sér eða verði rekin en foreldrarnir greina frá þessu í bréfi sem þeir sendu borgarráði. Í bréfinu tilgreina foreldrarnir um það bil 30 atvik sem foreldrar telji óásættanleg. Sem dæmi nefna foreldrarnir að starfsmaður hafi „látið...
InnlentÍsfélagið semur um himinhátt sambankalán: „Gott tækifæri til áframhaldandi vaxtar“ Ísfélagið í Vestmannaeyjum hefur undirritað lánasamning við hóp banka að fjárhæð 220 milljónir evara eða um 32 milljörðum króna. Eyjafréttir segja frá því að lán Ísfélagsins sé til fimm ára og skiptist í tvo hluta. Annars vegar í EUR 150 milljóna afborgunarlán með 25 ára afborgunarferil og hins vegar að jafngildi 70 milljóna Evra fjölmynta ádráttarlán. Verður afborgunarhlutinn nýttur til...
InnlentUna Torfa málar miðbæinn rauðan Fátt er skemmtilegra en íslensk tónlist og það er vegna þess að Íslendingar eru ótrúlega hæfileikaríkir á þessu sviði. Eina sem er betra en íslensk tónlist er ný íslensk tónlist og hefur Mannlíf valið fimm nýleg íslensk lög sem allir þurfa að hlusta á um helgina. Herbert Guðmundsson – Faðir Eldrún – Eymd þín venst Bogomil Font, Greiningardeildin – Bíddu...
InnlentTómas fundar með fangelsismálastjóra Tómas Ingvason, faðir fanga sem fannst látinn í klefa sínum á Litla-Hrauni, fundar í dag með fangelsismálastjóra. Tómas er mjög ósáttur með það hvernig staðið er að rannsókn á láti sonar hans, Ingva Hrafns. Hann hafði verið á Vernd að ljúka afplánun en var sóttur þangað af víkingasveit lögreglunnar og fluttur á Litla-Hraun eftir að hafa verið borinn sökum um...
InnlentÞrír í fangelsi vegna stórfelldrar líkamsárásar – Búðarþjófur með falsað ökuskírteini Sex manns gistu í fangageymslu lögreglunnar í nótt. Þrír þeirra eru grunaðir um stórfellda líkamsárás í miðborginni. Kallað var eftir aðstoð lögreglu vegna slagsmála. Þegar lögregla kom á vettvang var meintur árásarmaður farinn á braut. Hann fannst stuttu seinna með áverka eftir slagsmálin. Fórnarlömbin voru flutt á bráðamóttöku til aðhlynningar og allir þrír aðilarnir handteknir vegna málsins, grunaðir um stórfellda...