Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fyrrum starfsmaður lýsir furðulegu vinnuumhverfi á Maríuborg: „Hópur að tala um sjálfsfróun“

Fyrrum starfsmaður lýsir furðulegu vinnuumhverfi á Maríuborg: „Hópur að tala um sjálfsfróun“
Leik­skól­inn Mar­íu­borg – Mynd: Reykjavíkurborg

For­eldrar 60 barna sem eru í eða hafa verið í leik­skól­anum Mar­íu­borg í Graf­ar­holti krefj­ast þess að Agnes Veronika Hauks­dóttir, leik­skóla­stjóri skól­ans, segi af sér eða verði rekin en for­eldr­arnir greina frá þessu í bréfi sem þeir sendu borg­ar­ráði.

Í bréf­inu til­greina for­eldr­arnir um það bil 30 atvik sem for­eldrar telji óásætt­an­leg. Sem dæmi nefna for­eldr­arnir að starfs­maður hafi „látið barn heyra það,“ aðeins þrír starfs­menn hafi verið úti með 35 börn og talað sé niður til barna. Þá hefur Morg­un­blaðið það eftir for­eldrum að börn kvíði að fara í leik­skól­ann og starfs­menn hegði sér óvið­eig­andi í garð barn­anna.

Mannlíf ræddi við fyrr­ver­andi starfs­mann Mar­íu­borgar en við­kom­andi hefur mjög mikla reynslu að vinna með börnum, bæði á leik- og grunn­skóla­stigi.

Latir starfsmenn

„Það kom mér virki­lega á óvart þegar ég frétti að Agnes hafi verið ráðin sem leik­skóla­stjóri,“ sagði starfs­mað­ur­inn fyrr­ver­andi um leik­skóla­stjór­ann. „Hún er ekk­ert slæm mann­eskja en hún er eng­inn leið­togi og satt best að segja ekk­ert sér­stak­lega dug­leg. Að minnsta kosti ekki meðan ég vann með henni.“

Starfs­mað­ur­inn telur að ekki sé hægt að kenna Agnesi um öll vanda­mál skól­ans. „Þegar ég vann þarna var Agnes deild­ar­stjóri og Guðný [Hjálm­ars­dóttir] var skóla­stjóri. Það var rosa­lega sér­stakur andi á leik­skól­anum. Ég hef aldrei séð starfs­fólk jafn óvilj­ugt til að leika við börn. Fólkið sem vann með mér á deild vildi bara lita og púsla með börn­unum og vildi helst ekki standa upp úr stólum og í úti­veru stóðu allir starfs­menn upp við húsið og hreyfðu sig ekki frá því nema að heyra barns­grátur. Þetta afsakar auð­vitað ekki Agnesi ef hún hefur staðið sig illa sem leik­skóla­stjóri en þegar maður vinnur í svona lélegu umhverfi lengi þá getur verið erfitt að hrista það af sér.“

Sjálfsfróunarspjall á kaffistofunni

„Það var litið mjög niður á nýja starfs­menn meðan ég vann þarna og ekk­ert gert til að reyna halda þeim ánægðum,“ sagði starfs­mað­ur­inn. „Ég man að eitt skipti fóru nán­ast allir starfs­menn í „náms­ferð“ til útlanda og þá var starfs­fólkið sem ekki kom með neytt til að mæta í leik­skól­ann til að taka til og þrífa. Ef ég man rétt voru þetta 4-5 starfs­menn sem byrj­uðu of seint til að geta komið með í ferð­ina. Þetta skap­aði eðli­lega mikla gremju meðal þeirra starfs­manna enda var starfs­fólkið sem fór út að sitja kannski einn tveggja tíma fyr­ir­lestur á dag og fór svo að versla eða á fyll­erí.“

Hvaða minn­ing situr mest í þér eftir að hafa unnið á Mar­íu­borg?

„Þegar sam­starfs­fólk mitt var að tala um sjálfs­fróun á kaffi­stof­unni. Ég mætti inn á kaffi­stof­una og þá sat þar inni 6-7 manna hópur að tala um sjálfs­fróun og þá sér­stak­lega í því sam­hengi að Channing Tatum væri heitur. Ég tel mig ekki vera tepru en það getur varla talið eðli­legt sam­tal á kaffi­stofu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina