InnlentUngmenni skemmdi föt vegfaranda með flugeldi – Vitleysingur ók gegn rauðu ljósi Alls voru 60 mál skráð í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðan klukkan fimm í morgun, samkvæmt dagbók hennar. Þar af voru 10 mál þar sem einstaklingur er kærður fyrir brot. Hér eru nokkur dæmi. Lögreglunni sem annast Austurbæ, Vesturbæ, miðborgina og Seltjarnarnes barst tilkynning um umferðarslys en meiðsli voru minniháttar. Er ökumaðurin annars bílsins grunaður um akstur á móti rauðu...
InnlentHaraldur segir foreldrahópi að skammast sín: „Þetta er afar sérstök vegferð“ Haraldur Freyr Gíslason, formaður félagsleikskólakennara, er allt annað en sáttur með ákvörðun foreldrahóps að stefna Kennarasambandi Íslands en hópurinn telur að KÍ hafi mismunað börnum í þeim ótímabundnu verkfallsaðgerðum sem farið var í árið 2024 í nokkrum leikskólum. „Þetta er afar sérstök vegferð sem þessi þó litli hópur foreldra í þessum fjórum leikskólum er á. Þetta er auðvitað ekkert annað...
InnlentSindri grunaður um fjárdrátt upp á minnst 13 milljónir: „Mikið áfall fyrir starfsfólk Tjarnarbíós“ Sindri Þór Sigríðarson, fyrrverandi framkvæmdarstjóri Tjarnarbíós er grunaður um að hafa dregið að sér að minnsta kosti 13 milljónir frá Tjarnarbíói frá lokum árs 2021. „Því miður get ég staðfest þær fréttir um að fyrrum framkvæmdastjóri Tjarnarbíós sé grunaður um fjárdrátt. Um er að ræða langt tímabil, eða allt frá lok árs 2021 þegar Sindri fékk aðgang að sjóðum Tjarnarbíós...
InnlentMorðtilraunin í Mosfellsbæ ennþá í rannsókn – Ofbeldismennirnir notuðu kylfu, hamar og borvél Morðtilraun sem átti sér stað í Mosfellsbæ í október á síðasta ári er ennþá í rannsókn og vildi Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, ekki veita Mannlífi frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. SJÁ NÁNAR: Morðtilraun í Mosfellsbæ: „Það er eins og við séum komin í sláturhús“ SJÁ NÁNAR: Fórnarlambið í Mosfellsbæ opnar sig um hrottalegu árásina: „Maður...
InnlentÞórdís Kolbrún yfirgefur forystusveit Sjálfstæðisflokksins: „Ég tek þessa ákvörðun með hjartanu“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur tekið þá ákvörðun að bjóða sig ekki fram til formann flokksins á komandi landsfundi. Mun hún ekki heldur sækjast áfram eftir embætti varaformanns flokksins eða öðrum embættum en hún greindi frá þessu í tilkynningu á Facebook. Þórdís hefur verið að mati sumra innan Sjálfstæðisflokksins augljós arftaki Bjarna Benediktssonar sem formaður en nú er...
InnlentMyllan innkallar Heimilisbrauð vegna brotinnar ljósaperu Myllan sendi frá sér áríðandi fréttatilkynningu vegna innköllunar á Heimilisbrauði. Aðskotahlutur sást á röntgenmyndum við gæðaeftirlit. Í fréttatilkynningunni segir að Myllan hafi ákveðið með tilliti til neytendaverndar og í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla heil Heimilisbrauð 770 g. með best fyrir 27.01.2025 merkingu vegna aðskotahlutar sem sást á röntgenmyndum við hefðbundið gæðaeftirlit en mögulega er um að ræða brot...
InnlentStrætó fær forgangsakgrein á Kringlumýrarbraut: „Umferðin er of hæg á annatímum“ Uppbygging forgangsakreinar fyrir strætisvagna á Kringlumýrarbraut er í undirbúningi á um 500 metra kafla milli Háaleitisbrautar og Miklubrautar en greint er frá því í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Kaflinn sem um ræðir er vestan megin á götunni, með akstursstefnu í suður og þá er einnig er gert ráð fyrir nýjum strætóstoppum nálægt gatnamótunum við Háaleitisbraut „Markmiðið með uppbyggingu forgangsakreinar á Kringlumýrarbraut...
InnlentKaren spyr SUS-liða: „Ætli þeir séu glaðir yfir því að búið sé að banna pride fánann?“ Karen Kjartansdóttir segir ungliða Sjálfstæðisflokksins hafa „hrúgast til Bandaríkjanna“ til að fylgjast með Trump og spyr hvort þeir séu glaðir með bann pride-fánans þar í landi. Stjórnendaráðgjafinn Karen Kjartansdóttir skrifaði færslu á Facebook í morgun þar sem hún segir ungliða íslensks stjórnmálaflokks ekki hafa sparað lýsingarorðin er þeir lýstu aðdáun sinni á Trump eftir að hafa farið til Bandaríkjanna til...
InnlentAlexandra áhyggjufull vegna tilskipunar Trump: „Við hættum ekki að vera til þó við séum bönnuð“ „Jæja, það er alveg orðið óumdeilanlegt og ljóst að nýr bandaríkjaforseti er ekki bara kominn beinlínis í stríð við trans fólk og okkar réttindi, hann er beinlínis spenntur fyrir því að fara í hart í þeirri baráttu.“ Þannig hefst Facebook-færsla Alexöndru Briem sem hún birti í gær. Þar deilir hún áhyggjum sínum vegna nýrrar tilskipunar Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem segir...
InnlentDiljá daðrar við formannsframboð Dilja Mist Einarsdóttir alþingismaður hefur bæst í hóp þeirra sem gæla við þá hugmynd að fara í formannsslag í Sjálfstæðisflokknum. Hún upplýsti þetta í Morgunblaðinu. Snorri Ásmundsson listamaður er sá eini sem lýst hefur yfir framboði. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Guðlaugur Þór Þórðarsson eru öll undir feldi og hugsa sinn gang. Dilja Mist hefur fram til...
InnlentGrindvíkingar fara í hart vegna uppkaupa á húsum: „Gert að greiða til baka hluta af kaupverðinu“ Eigendur rúmlega 60 eigna í Grindavík eru ósáttir við íslenska ríkið og stefna sumir hverjir að málaferlum til að fá úrlausn sinna mála. Þeir hafa leitað til lögmanns um að sækja málin. Fasteignafélagið Þórkatla hefur gengið frá kaupum á hartnær þúsund fasteignum í Grindavík. Ríkisútvarpið segir að því fari fjarri að allir bæjarbúar hafi fengið úrlausn sinna mála. Eigendur á...
InnlentÖlvaður og án öryggisbeltis Aðeins tveir gistu fangageymslur lögreglunnar í nótt. Helstu verkefni í gærkvöld og nótt sneru að ökumönnum sem gerðust brotlegir. Ökumaður var staðinn að því að tala í farsíma undir stýri. Ökumaðurinn á von á sekt upp á 40 þúsund krónur. Annar ökumaður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna í austurborginni. Sá brotlegi var látinn laus úr haldi...