Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Alexandra áhyggjufull vegna tilskipunar Trump: „Við hættum ekki að vera til þó við séum bönnuð“

Alexandra áhyggjufull vegna tilskipunar Trump: „Við hættum ekki að vera til þó við séum bönnuð“
Alex­andra Briem. Mynd: Facebook

„Jæja, það er alveg orðið óum­deil­an­legt og ljóst að nýr banda­ríkja­for­seti er ekki bara kom­inn bein­línis í stríð við trans fólk og okkar rétt­indi, hann er bein­línis spenntur fyrir því að fara í hart í þeirri bar­áttu.“ Þannig hefst Facebook-færsla Alexöndru Briem sem hún birti í gær. Þar deilir hún áhyggjum sínum vegna nýrrar til­skip­unar Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta sem segir að kynin séu tvö og séu óbreyt­an­leg eftir fæð­ingur. Alex­andra er sjálf trans kona.

Alex­andra, sem er borg­ar­full­trúi Pírata, segir að í text­anum sé talað um að „vernda konur frá körlum sem hafa komið sér inn í þeirra rými.“:

„Þetta er ítar­legur texti, en í grunn­inn er inni­haldið að því er þarna lýst yfir að kynin séu tvö, hvorki fleiri né færri, og þau séu ákvörðuð við fæð­ingu og óbreyt­an­leg eftir það.

Stofn­unum rík­is­ins er falið að útrýma öllum til­burðum til ann­ars og beita þessum skiln­ingi í öllum sínum störfum, jafn­framt er tölu­verður texti um að ‘vernda’ konur frá ‘körlum sem hafi komið sér inn í þeirra rými með hug­myndum um annað’ (smá umorðun, getið kíkt og lesið sjálf).“

Því næst beinir Alex­andra orðum sínum að þeim sem töldu áhyggjur hennar vera móð­ur­sýki:

„Við öll þau sem héldu að hann myndi ekki í alvöru gera þetta, að hann væri bara að segja öfga­hægr­inu það sem það vildi heyra, eða þetta væri móð­ur­sýki í fólki eins og mér, myndi ég vilja segja, hvað segið þið nú? Um þessa ýktu, hat­urs­fullu og ítar­legu til­skipun, gefin út á fyrsta degi?

Var þetta ímyndun hjá mér? Var hann að grín­ast?“

Þá segir Alex­andra að nú sé staðan sú að ef hún ferð­að­ist til Banda­ríkj­anna ætti hún á hættu að vera hand­tekin ef hún not­aði kvennakló­sett.

„Nú er sú staða komin upp að færi ég til Banda­ríkj­anna  ætti ég raun­veru­lega á hættu að vera hand­tekin ef ég not­aði kvennakló­sett.

Ekki að ég myndi vilja heim­sækja það land, eða styðja það með mínum pen­ingum, eftir að þau kusu þennan mann, vit­andi full-vel hver hann væri.

En núna er það í raun­inni ekki í boði fyrir mig, jafn­vel þó ég vildi.

Og það er fólk víða ann­ars­staðar, sem iðar í skinn­inu að fara í sams­konar breyt­ingar í Evrópu og jafn­vel hér á Íslandi.“

Alex­andra kemur næst með sterkan punkt þar sem hún segir að trans fólk hætti ekki að vera til „þó við séum bönnuð“.

„Við hættum ekki að vera til þó við séum bönnuð. Þó umræða um okkur sé bönnuð, þó upp­lýs­inga­gjöf sé bönnuð. Kannski tekst þeim að hrekja trans fólk úr landi, pína það til að fara aftur inn í skáp­inn, eða til að taka eigið líf. Kannski tekst þeim með þessu að þykj­ast að við séum ekki til.

En við erum til. Þetta breytir engu um það.

Við þurfum að standa gegn þess­ari bylgju hat­urs og fáfræði. Þessari áróð­urs­her­ferð og ófræg­ingu gegn okkur.

Við þurfum að koma í veg fyrir að þessi hug­mynda­fræði dreifi úr sér.“

Að lokum segir Alex­andra að hún hefði verið að vona að þetta yrði ekki svona slæmt en að þetta sé einmitt svona slæmt.

„Ég við­ur­kenni að ég von­aði að ég hefði kannski rangt fyrir mér, að kannski yrði þetta ekki alveg svona slæmt…en nei, þetta er bara nákvæm­lega svona slæmt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við