Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þórdís Kolbrún yfirgefur forystusveit Sjálfstæðisflokksins: „Ég tek þessa ákvörðun með hjartanu“

Þórdís Kolbrún yfirgefur forystusveit Sjálfstæðisflokksins: „Ég tek þessa ákvörðun með hjartanu“
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur tekið þá ákvörðun að bjóða sig ekki fram til for­mann flokks­ins á kom­andi lands­fundi. Mun hún ekki heldur sækj­ast áfram eftir emb­ætti vara­for­manns flokks­ins eða öðrum emb­ættum en hún greindi frá þessu í til­kynn­ingu á Facebook.

Þórdís hefur verið að mati sumra innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins aug­ljós arf­taki Bjarna Bene­dikts­sonar sem for­maður en nú er ljóst að svo verður ekki. Eins og staðan er núna hefur ekki neinn boðið sig fram sem for­mann flokks­ins en þykir mjög lík­legt að þing­mað­ur­inn Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir bjóði sig fram og telja margir að þær líkur hafi auk­ist eftir til­kynn­ingu Þórdísar. Þá er einnig talið lík­legt að þing­mað­ur­inn Guð­laugur Þór Þórð­ar­son bjóði sig fram.

Hægt er að lesa alla til­kynn­ingu Þórdísar hér fyrir neðan:

Fyrir tæp­lega tutt­ugu árum þegar ég hóf þátt­töku í Sjálf­stæð­is­flokknum vissi ég lítið um flokk­inn og þekkti nán­ast engan í honum. Þrátt fyrir að hafa ekki alist upp á póli­tísku heim­ili ólst ég upp við sterk gildi sem hafa fylgt mér alla tíð, framan af fremur ómeð­vitað. Saman myndar þetta sterkan kompás sem ég er þakk­lát fyrir og ég passa upp á.

Ég vissi fyrir hvað Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur og þar fann ég mínum hug­sjónum heim­ili. Ég fann fyrir ástríðu fyrir því að taka þátt og gera gagn á grund­velli hug­sjóna og lífs­við­horfs. Í Sjálf­stæð­is­flokknum fann ég vett­vang og verk­færi.

Alltaf hef ég lagt mig fram um að sinna af metn­aði og alúð þeim verk­efnum sem mér hefur verið treyst fyrir, og ég hef gert það á mínum eigin for­sendum. Aldrei hef ég kort­lagt minn eigin frama eða fundið sér­stakt stolt yfir veg­tyllum. Embætti og stöður sem ég hef fengið tíma­bundið hafa ein­fald­lega gefið mér tæki­færi til þess að sinna mik­il­vægum verk­efnum í sam­ræmi við grund­vall­ar­stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins og mitt eigið lífs­við­horf.

Þau tæki­færi hefði ég ekki fengið ef ekki hefði verið fyrir yfir­gnæf­andi traust almennra flokks­manna sem ég er alla daga þakk­lát fyrir.

Þótt ég hafi tekið verk­efnin mín af mik­illi alvöru hef ég aldrei tekið sjálfa mig hátíð­lega. Við gegnum öll mis­mun­andi hlut­verkum og það er mik­il­vægt að rugla ekki sjálfum sér saman við þær stöður sem manni er falið að gegna. Ég hef gefið mig alla í verk­efnin og elskað hvern ein­asta dag, þá góðu og þá erf­iðu og haft þakk­læti og lífs­gleði að leið­ar­ljósi.

Uppgjör á síð­ast­liðnum árum bíður betri tíma en þau hafa verið þau lær­dóms­rík­ustu sem ég hef lifað og hafa heilt yfir verið árang­urs­rík, gef­andi, þrosk­andi og við­burða­rík með ein­dæmum. Ég var kjörin á þing tólf dögum eftir að ég fæddi dóttur mína og varð ráð­herra þegar hún var ekki orðin þriggja mán­aða en hún varð átta ára síð­asta haust. Mér hefur verið treyst til að hafa for­ystu um verk­efni í sam­fé­lag­inu sem hafa gert okkur sterk­ari og ég hef aldrei farið fram á annað en að vera dæmd af verkum mínum og engu öðru.

Ég hef þroskast mikið og hratt og lífs­skoðun mín hefur mót­ast. Ég hef lagt mig fram um að nálg­ast verk­efni mín af auð­mýkt þar sem skiptir máli að hlusta ígrundað á ólík sjón­ar­mið, drekka í mig þekk­ingu og bera virð­ingu fyrir reynslu og dóm­greind ann­arra, vit­andi þó að ábyrgðin er ætíð mín. Þannig hef ég leit­ast við að þroska dóm­greind mína og inn­sæi þannig að þegar kemur að stórum ákvörð­unum geti ég „treyst á mag­ann“ minn, eins og Ólöf Nordal sagði alltaf. Ég hef lagt mig fram um að skilja við­fangs­efni mín til botns og vera með­vituð um eigin tak­mark­anir þannig að sjálfs­traust mitt vaxi í hlut­falli við aukna færni. Með reynslu, lær­dómi og mik­illi vinnu hef ég öðl­ast traust­ari und­ir­stöður til þess að vita mjög vel hvað ég er fær um að gera, hvar styrk­leikar mínir liggja og vera ég sjálf í stórum verk­efnum, inn­an­lands og utan, óhrædd og örugg en auð­mjúk gagn­vart því hversu mikið í heim­inum er handan þess sem maður skilur eða getur haft áhrif á.

Þegar ég hef verið gagn­rýnd hef ég ætíð mátað ákvarð­anir mínar og afstöðu við það hvort ég geti verið stolt af starfi mínu þegar árin og ára­tugirnir líða, en ekki hvort ég geti forð­ast tíma­bundna ágjöf eða hvað yrði ofan á í stundar vin­sældum.

Í starfi mínu sem utan­rík­is­ráð­herra lærði ég margt, ekki síst af erlendum starf­systk­inum sem ég kynnt­ist mörgum mjög vel. Flest for­ystu­fólk land­anna í kringum okkur er auð­mjúkt gagn­vart verk­efnum sínum, leggur óskipta orku og vand­virkni í störf sín og að hvers kyns belg­ingur og yfir­borðs­stælar koma engum lönd eða strönd þegar mál­efnin eru alvar­leg. Framundan kunna að vera flóknir og vanda­samir tímar þar sem reyna mun á íslenska stjórn­mála­menn; hvort við höfum skap­gerð og þroska til þess að taka flóknar og afdrifa­ríkar ákvarð­anir á yfir­veg­aðan og vand­aðan hátt.

Ég tel nauð­syn­legt að við Sjálf­stæð­is­fólk tökum þeirri þróun sem á sér stað í okkar heims­hluta alvar­lega og séum óum­deilt leið­andi stjórn­mála­afl þar. Það höfum við verið frá stofnun flokks­ins og skulum vera áfram. Sér­stak­lega nú þegar vegið er að þeirri heims­mynd og reglu sem gerir okkur kleift að vera frjáls, sjálf­stæð, rík og sterk. Við Íslend­ingar erum fá og full­veldi okkar hvílir á stoðum sem geta riðl­ast. Nú eru því tímar þar sem við þurfum að hyggja að því sem sam­einar okkur en gleyma okkur ekki í því sem sundrar.
***
Ég er sann­færð um að það er mikið laust fylgi sem við eigum að sækja, í alla hópa sam­fé­lags­ins; fólki sem er drifið áfram af metn­aði fyrir sam­fé­lagi sínu.

Við þurfum að hafa hug­rekki til að for­gangs­raða og fækka verk­efnum sem ríkið er að sinna, einmitt til þess að ráða betur við það sem mestu skiptir, örygg­is­netið og sam­fé­lags­gerð­ina sem gerir okkur að landi tæki­fær­anna. Í sam­fé­lagi þar sem hvert og eitt okkar hefur hlut­verk og við spyrjum okkur öll; hvað get ég gert fyrir sam­fé­lagið mitt?

Ég vil meiri hlýju í stjórn­málin, enda er hún verk­færi til að gera sam­fé­lagið sterkara og betra þar sem fólki líður betur. Við lifum á tímum þar sem tengsla­rof er alvöru vanda­mál, þró­unin er í þá átt að ekki sé lengur sam­eig­in­legur veru­leiki sem bindur lýð­ræð­is­sam­fé­lög saman og við því þarf að bregð­ast – og það gerum við með vits­muna­legu sam­tali, trausti, hlýju og frelsi að vopni.

Ég vil að Ísland sé frjálst, að hér hafi allir jöfn tæki­færi, fólk fái að lifa líf­inu sam­kvæmt eigin gildum og að við séum öll frjáls til vera eins og við erum og elska þá sem við elskum.

***
Það er eflaust öllum ljóst að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ekki gott af inn­an­flokksá­tökum eða hatrömmum flokka­dráttum. Sjálf valdi ég fylk­ingu í stjórn­málmum fyrir tæpum tutt­ugu árum, hún er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Ég hef fengið tæki­færi til þess að sinna mik­il­vægum verk­efnum og er stolt af því að hafa verið vara­for­maður síð­ustu sjö ár. Ég hef notið þess að vinna í ein­lægni með öllum þeim sem deila með mér sýn.

Ég er stolt af því að hafa verið í for­ystu flokks­ins með Bjarna Bene­dikts­syni und­an­farin sjö ár og hafa átt þátt í þeim mikla árangri sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur átt þátt í að ná fyrir Ísland.

Á þeim tíma­mótum sem flokk­ur­inn er á núna er eðli­legt að þær raddir sem kallað hafa hæst á end­ur­nýjun fái tæki­færi til þess að reyna sig og flokk­ur­inn fái að velja nýja for­ystu. Ég sæk­ist því ekki eftir for­mennsku eða öðru emb­ætti á næsta lands­fundi.

Í póli­tískri dæg­ur­mála­um­ræðu gera flestir ráð fyrir því að ég hljóti að vilja verða for­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum þar sem ég hef ítrekað sagst telja mig vera færa um að gegna emb­ætt­inu enda getur for­mennska í Sjálf­stæð­is­flokknum verið verk­færi til að ná mark­miðum fyrir Ísland. En það hefur ekki verið mark­mið í sjálfu sér; að það sem keyri mann áfram sé að „vinna leik­inn“. Það er ekki sami hlut­ur­inn. Ég hef ætíð haft metnað til að sinna þeim verk­efnum sem mér er treyst fyrir en ekki sér­stak­lega upp­tekin af því að ná til­teknum met­orðum.

Ég tek þessa ákvörðun með hjart­anu og á þessum tíma­mótum lít ég inn á við og spyr sjálfa mig hvernig ég geti best gert gagn. Þá er gott að vera umkringd vænt­um­þykju og kær­leika fjöl­skyldu og vina. Börnin mín og eig­in­mann sem jarð­tengja mig, mömmu og pabba, bræður, mág­konur, tengda­for­eldra, frænkur, frændur og vini.

Ég mun með stolti gera hvað ég get sem þing­maður í sterku liði undir nýrri for­ystu. Ég hlakka til að vera óbreyttur þing­maður á eigin for­sendum – og hluti af liði. Í öfl­ugum þing­flokki með nýju og fram­úr­skar­andi fólki sem hlakkar til að spreyta sig og vaxa í nýju hlut­verki. Ég hlakka til að vera frjáls­ari, fá meiri tíma til að lesa bækur og skrifa, rækta það að hafa skyn­bragð og skiln­ing á því sem er að ger­ast í kringum okkur, og veldur mér raun­veru­legum áhyggjum.

Því miður grunar mig að það sé allt miklu stærra en ein­staka inn­an­lands­mál, hvað þá inn­an­flokks­mál.

Hér eftir sem hingað til mun ég vanda mig í mínum verk­efnum, leggja mig fram um að hlusta, læra og leggja til dóm­greind mína og hug­myndir á grund­velli þekk­ingar og í sam­ræmi við mína eigin sam­visku.

Þar mun ég aldrei láta nokkuð annað en heild­ar­hags­muni okkar sam­fé­lags ráða.
Ég hlakka til þess sem tekur við. Af því að til­gangur lífs­ins er lífið sjálft og það sem er þess virði að berj­ast fyrir.

Hjartans þakkir fyrir öll fal­legu skila­boðin, hvatn­ing­una, stuðn­ing­inn og traustið.
Þórdís Kolbrún

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina