InnlentSorg vegna fráfalls Árna Grétars Futuregrapher: „Einlægur, hjartahlýr og óendanlega kærleiksríkur“ Fjölmargir minnast nú Árna Grétars Jóhannessonar Futuregrapher, raftónlistamans og leikskólakennara, sem lést í gær eftir að hafa barist fyrir lífi sínu síðan á gamlársdag þegar bifreið hans lenti í höfninni við Ægisgarð. Ólafur Jóhannesson, bróðir Árna Grétars, sagði frá andláti hans á Facebook. „Elsku hjartans fallegi vinur minn Árni Grétar. Einlægur, hjartahlýr og óendanlega kærleiksríkur. Englar himins grétu í dag,“...
InnlentLögreglan skipaði 50 óboðnum gestum að hypja sig Það var nokkuð mikið að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og segir frá ýmsu í dagbók hennar Tilkynnt var um þjófnað í verslun í Skeifunni en ekki er gefnar upp upplýsingar um hvaða verslun um ræðir. Þá var tilkynnt um mann til vandræða á skemmtistað í miðborg Reykjarvíkur og honum vísað út af lögreglu. Ökumaður var stöðvaður í...
InnlentMatvælaráðuneytið hlýtur jafnlaunavottun: „Það er vissulega fagnaðarefni” Matvælaráðuneytið hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðli Staðlaráðs Íslands segir í tilkynningu frá stjórnarráðinu. Jafnlaunavottunin staðfestir að innan ráðuneytisins er unnið markvisst gegn kynbundnum launamun og þar með stuðlað að jafnrétti kynjanna að sögn stjórnarráðsins. Þannig sé komið í veg fyrir beina og óbeina mismunun á grundvelli kyns og jafnframt hafi verið komið á stjórnkerfi sem tryggi faglega nálgun við ákvarðanatöku...
InnlentBjarni er látinn Bjarni Þjóðleifsson, læknir og prófessor, er látinn. Hann var 85 ára gamall en mbl.is greindi frá andláti hans. Bjarni fæddist á Akranesi og ólst þar upp. Hann gekk í Menntaskólann á Akureyri og eftir stúdentspróf hóf hann nám í læknisfræði í Háskóla Íslands. Eftir útskrift þaðan starfaði Bjarni meðal annars í Reykjavík og á Sauðárkróki. Hann hélt áfram að mennta...
InnlentSala Perlunnar á lokametrunum: „Við vorum erlendis allan desember“ Sala Perlunnar er á lokastigi samkvæmt Gunnari Gunnarssyni forstjóra hennar. Ákveðið var í fyrra af borgarráði að selja Perluna og var gefið út að lágmarksverð hennar yrði þrír og hálfur milljarður króna en borgin keypti Perluna árið 2013 af Orkuveitunni en hún var fyrst opnuð árið 1991. Hefur húsið verið eitt helsta kennileiti borgarinnar síðan þá. Ýmsar kvaðir voru settar...
InnlentÖkumaðurinn sem hafnaði í sjónum enn þungt haldinn Maðurinn sem ók bifreið í sjóinn við Reykjavíkurhöfn á gamlársdag liggur enn þungt haldinn á gjörgæslu Landspítalans. Mbl.is ræddi við Eirík Valberg, lögreglufulltrúa hjá miðlægri deild lögreglunnar en hann segir að rannsókn á því hvað hafi gerst standi yfir en það voru kafarar frá slökkviliðinu sem fundu manninn og komu honum aftur upp úr sjónum. Ökumaðurinn var meðvitundalaus þegar hann...
InnlentFagnar því að Yazan sé maður ársins á Vísi: „Rasískir rasshausar froðufella af bræði“ Atli Þór Fanndal fagnar því að Yazan Tamimi sé maður ársins 2024 hjá Vísi. Lætur hann „rasíska rasshausa“ fá það óþvegið. Fyrrverandi framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International, Atli Þór Fanndal fagnaði því að hinn palestínski Yazan Tamimi hafi verið kosinn maður ársins 2024 á Vísi, í Facebook-færslu sem birtist í gær. Lætur hann þá sem gagnrýnt hafa valið heyra það en...
InnlentLyfjaður ökumaður með barn Lögreglu barst tilkynning um slys þar sem ungmenni hafði skorið sig. Múrsteini hafði verið kastað í gegnum rúðu og rúðubrotin skáru ungmennið sem sat fyrir innan. Málið er í rannsókn. Ökumaður bifreiðar var stöðvaður í umferðinni á stolinni bifreið. Tveir voru í bifreiðinni og gáfu þeir mismunandi og ósamræmanlegar sögur um af hverju þeir væru í bifreiðinni. Þeir voru handteknir...
InnlentEnginn læknir fékkst þegar Ólafur lést á aðfangadagskvöld: „Lík hans var látið liggja í rúmi sínu“ „Það náðist ekki samband við lækni í Rangárþingi og var lík hans því látið liggja í rúmi sínu yfir nóttina og skilaboðin voru að vonandi næðist í lækni á morgun og yrði þá hægt að úrskurða um andlátið,“ skrifar Bjarki Oddsson um andlát afa síns, Ólafs Ólafssonar, á dvalarheimilinu Kirkjuhvoli á aðfangadagskvöld.Enginn læknir var tiltækur í Rangárþingi og því enginn...
InnlentViðreisn kynnir fjölda aðstoðarmanna til leiks – Grínisti í lykilhlutverki Viðreisn hefur kynnt til sögunnar ýmsa aðstoðarmenn ráðherra sinna í nýrri í ríkisstjórn. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ráðið Jakob Birgisson og Þórólf Heiðar Þorsteinsson sem sína aðstoðarmenn. Jakob er þekktur grínisti en Þórólfur er lögfræðingur. Þá verður Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar, aðstoðarmaður Hönnu Katrínar Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Jón Steindór Valdimarsson, fyrrverandi þingmaður, mun aðstoða Daða Má Kristófersson fjármála- og...
InnlentAuknar líkur á nýju eldgosi í lok janúar Haldi kvikusöfnun áfram á svipuðum hraða aukast líkurnar á eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni í lok janúar. Samkvæmt nýrri tilkynningu frá Veðurstofu Íslands er hraði kvikuinnflæðis undir Svartsengi svipaður og hann var fyrir síðasta eldgos og nýjustu gögnin benda til þess að líkur á kvikuhlaupi aukast og að það gjósi jafnvel í lok janúar. Þegar jafn mikið magn kviku hefur safnast undir...
InnlentEigandi Tinda ævareiður vegna umfjöllunar RÚV um hnífaárásina: „Þetta er bara lygi og kjaftæði“ Eigandi sveitabæjarins Tindar á Kjalarnesi er brjáluð út í fréttastofu Ríkisútvarpsins vegna umfjöllun hennar um hnífaárásina sem framin var í næsta húsi á gamlárskvöld. Hjúkrunarfræðingurinn Halldóra Bjarnadóttir, eigandi sveitabæjarins Tindar á Kjalarnesi segist í samtali við Mannlíf vera brjáluð vegna umfjöllunar RÚV um hnífaárásina sem átti sér stað í næsta húsi við sveitabæ hennar á gamlárskvöld en þar var fullyrt...