InnlentSubway sakað um að svindla á starfsmönnum: „Áróður, árásir, hótanir, útúrsnúningur og lygar“ Veitingastaðurinn Subway er einn þeirra fimm veitingastaða sem ekki hafa svarað erindum Eflingar varðandi meintan „gervikjarasamning“ sem fyrirtæki sömdu um við stéttarfélagið Virðingu. Efling vill meina að Virðing sé gervistéttarfélag sem Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði standa fyrir. Auk Subway hafa Rok, Public House Gastropub, Hard Rock Cafe og Finnsson Bistro ekki svarað Eflingum um þeirra mál en stéttarfélagið segist í...
InnlentTilkynnt um tilnefningar til íþróttmanns ársins – Glódís Perla sigurstranglegust Tilkynnt hefur verið um hvaða tíu einstaklingar koma til greina sem íþróttamaður ársins 2024 en tilkynnt verður um úrslitin þann 4. janúar næstkomandi. Um er að ræða sex konur og fjóra karla sem eru tilnefnd í þetta sinn en íþróttamaður ársins var fyrst kosinn árið 1956. Ómar Ingi Magnússon handboltamaður er eini á listanum sem hefur unnið verðlaunin áður en...
InnlentÖllu innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Allt innanlandsflug liggur niðri sökum veðurs. Icelandair aflýsti öllum flugferðum til Ísafjarðar, Akureyrar og Egilsstaða fyrir hádegi í dag og það sama gerði Mýflug sem flýgur til Hornafjarðar og flug Norlandair til Bíldudals. Samkvæmt Isavia er flug Icelandair til Narsarsuaq á Grændlandi klukkan 12 á áætlun en öllum ferðum innanlands hefur verið frestað til klukkan 15:30 en þá er flug...
InnlentBerglind skipuð í embætti á síðustu metrum ríkisstjórnar Bjarna Ben Þann 20. desember síðastliðinn skipaði Guðrún Hafsteinsdóttir, þáverandi dómsmálaráðherra, Berglindi Svavarsdóttur lögmann í embætti dómanda við Endurupptökudóm frá og með 23. desember 2024 en þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnarráðinu. Þykir sumum þetta nokkuð athyglisvert í ljósi þess að ný ríkisstjórn tók við um helgina „Berglind Svavarsdóttir lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1989 og öðlaðist málflutningsréttindi sem...
InnlentHver er maður ársins? Komið er að kosningu lesenda Mannlífs á „Manni ársins“ og hægt er að lesa hverjir eru tilnefndir hér fyrir neðan og kjósa. Margir einstaklingar og hópar komu til greina en ritstjórn valdi þá tíu sem eru hér fyrir neðan eftir miklar rökræður. Yazan Tamimi Fatlaður ungur drengur frá Palestínu sem barðist fyrir tilverurétti sínum á Íslandi ásamt foreldrum sínum en...
InnlentEgill Þór er látinn Egill Þór Jónsson, fyrrum borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lést að kvöldi föstudagsins 20. desember, 34 ára að aldri. Var hann umkringdur fjölskyldu sinni og vinum en hann hafði síðustu ár barist hetjulega við krabbamein. Egill Þór fæddist í Reykjavík 26. júní árið 1990 og ólst upp í Breiðholti. Faðir hans var Jón Þór Traustason bifreiðasmíðameistari, fæddur 1960, látinn 2013 af slysförum og...
InnlentHestur á harðahlaupum gripinn í umferðinni- Hálkan reyndist mögum ökumönnum skeinuhætt Lögreglan stóð í nokkrum stórræðum þegar hestur skokkaði um í umferðarræð í samflioti við vélknúin farartæki íí Úlfarsárdal. Ferð hestsins var stöðvuð af lögreglu og hrossinu komst til síns heima. Tilkynnt um innbrot í verslun í austurborginni. Málið er í rannsókn. Umferðarslys á svipuðum slóðum. Þar hafði ökumaður misst stjórn á bifreið sinni sökum hálku og hafnað á umferðaskilti. Minniháttar...
InnlentUppnám hjá ríkissaksóknaraembættinu – Helga Magnúsi verður ekki úthlutað verkefnum Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir að Helgi Magnús Gunnarsson uppfylli ekki lengur almenn hæfnisskilyrði til að gegna embætti vararíkissaksóknara og verður því ekki úthlutað verkefnum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Sigríður sendi frá sér fyrir stundu. Fyrir tveimur dögum var sagt frá því að Helgi Magnús hefði aftur hafið störf eftir að ríkissaksóknari bað dómsmálaráðherra um að hann yrði...
InnlentEkkert ferðaveður á morgun: „Með þessum stormi fylgir snjókoma og svo hlýnar með rigningu“ „Í nótt gengur í suðaustanstorm, en hann ætti nú ekki að hafa mikil áhrif á fólk því það er eiginlega bara yfir hánóttina sem hann gengur yfir,“ segir Daníel Þorláksson, veðurfræðingur hjá Vegagerðinni í samtali við RÚV. Daníel heldur áfram: „En með þessum stormi fylgir snjókoma og svo hlýnar með rigningu þannig að í fyrramálið þegar fólk fer af stað...
InnlentTómas Ellert ver Ingu Sæland: „Ég hef ekki áhuga á því að starfa í einhverjum hálfvitaflokki“ Tómas Ellert Tómasson ver Ingu Sæland á Facebook og segist ekki hafa áhuga á að starfa í „einhverjum hálfvitaflokki“. Tómas Ellert Tómasson fyrrverandi bæjarfulltrúi í Árborg, sem dró framboð sitt til baka fyrir Miðflokkinn í október á þessu ári, skrifaði færslu í morgun þar sem hann birtir athugasemd sem maður sem starfað hefur fyrir Miðflokkinn við vöfflugerð, skrifaði opinberlega. Athugasemdin...
InnlentTinna er afar ósátt við vinnubrögð Icelandair: „Þetta er algjörlega galið, hvaða bull er þetta?“ Tinna Gunnur Bjarnadóttir er síður en svo sátt við vinnubrögð og viðmót hjá Icelandair eftir að hún missti af flugi frá Akureyri til Reykjavíkur nú rétt fyrir jól. Heilbrigðisstarfsmaðurinn Tinna Gunnur Bjarnadóttir býr í Reykjavík en þurfti nauðsynlega að fara norður á Akureyri í liðinni viku en systir hennar gætti dætra hennar á meðan. Tinna pantaði sér flaug norður á...
InnlentKomu auga á eftirlýsta bifreið í Garðabænum – Ölvuð kona sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu Nóttin var afskaplega róleg samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en alls eru 72 mál skráð í kerfinu frá 17:00 í gær til 05:00 í morgun. Enginn er vistaður í fangageymslu. Hér má sjá dæmi um verkefni lögreglunnar á umræddu tímabili. Fjöldi bifreiða voru sektaðar í miðborginni vegna stöðubrota. Í Laugardalnum voru höfð afskipti af ökumanni en hann blés undir refsimörkum...