Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Tinna er afar ósátt við vinnubrögð Icelandair: „Þetta er algjörlega galið, hvaða bull er þetta?“

Tinna er afar ósátt við vinnubrögð Icelandair: „Þetta er algjörlega galið, hvaða bull er þetta?“
Tinna Gunnur Bjarna­dóttir. Mynd: Facebook

Tinna Gunnur Bjarna­dóttir er síður en svo sátt við vinnu­brögð og við­mót hjá Icelandair eftir að hún missti af flugi frá Akureyri til Reykja­víkur nú rétt fyrir jól.

Heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn Tinna Gunnur Bjarna­dóttir býr í Reykja­vík en þurfti nauð­syn­lega að fara norður á Akureyri í lið­inni viku en systir hennar gætti dætra hennar á meðan. Tinna pant­aði sér flaug norður á mið­viku­dag­inn 18. des­em­ber og átti pantað flug til baka klukkan 19:30 dag­inn eftir. Í hádeg­inu á fimmtu­dag­inn fékk hún hins vegar smá­skila­boð frá Icelandair um að mögu­lega væri truflun á flug­inu hennar en að hún gæti flýtt flug­inu um þrjá til sex klukku­tíma.

Færsla hennar á Facebook hefst eft­ir­far­andi:

„Ófor­skömmuð vinnu­brögð og við­mót hjá Icelandair

Ég þurfti nauð­syn­lega norður á Akureyri í vik­unni til að sinna erindi. Ég átti tveggja daga vakta­frí, systir mín gat gætt dætra minna á meðan og ég pant­aði mér flug fram og til baka, mið. 18. og fim 19.des. í hádeg­inu á fimmtu­degi fékk ég sms frá Icelandair um að hugs­an­lega væri truflun á flug­inu mínu og ég gæti flýtt flug­inu mínu um rúm­lega 6 klst eða um tæp­lega 3 klst en ég hafði bókað flug kl 19:30.

Ég hringdi í upp­gefið númer og sagði að þessar tíma­setn­ingar á flug­ferðum sem stungið væru uppá hent­uðu mér ákaf­lega illa og spurði um hvað átt væri við um truflun á flug­inu? Upplýsti þá þjón­ustu­full­trú­inn mig um að það ætti að fljúga með vél sem væri minni. Ég sagði þá að mér þætti afar vænt um að kom­ast með þeirri vél en ég væri að sinna mik­il­vægu erindi og bætti við að ég þyrfti að kom­ast um morg­un­inn til vinnu, eins væru börnin mín í pössun f sunnan.“

Segir Tinna að þjón­ustu­full­trú­inn hefði sagt að hann gæti ekki lofað neinu en myndi láta hana vita með sím­tali. Ekkert sím­tal kom en hún fékk tölvu­póst sendan um seinkun á flug­inu til rúm­lega 21.

„Þjón­ustu­full­trú­inn, sem mér fannst hljóma tregur til, sagði að hann gæti ekki lofað neinu en hringt yrði í mig og ég látin vita.

Kl. 15:37 fékk ég email þess efnis að flug­inu sem ég bók­aði 19:30 hafi verið seinkað til kl. 21:05. Ég fékk líka sms á sama tíma sem upp­lýsti mig um hið sama.

Ég mæti rétt yfir 20:00 uppá flug­völl á Akureyri.og allt lokað og læst. Ekkert flug kl 21:05.

Í sjokki skoða ég aftur sms og jú þar stóð 21:05. Emailið sagði líka 21:05.“

Tinna upp­götv­aði síðan að Icelandair hafði einnig sent henni tölvu­póst tveimur mín­útum eftir fyrri tölvu­póst en þá sem við­bót við hinn póst­inn þannig að hún fékk enga sér­staka til­kynn­ingu um hann.

„En bíddu, þeir sendu líka email kl. 15:39, 2 mín eftir hitt emailið, um að bók­unin mín kl 19:30 hafi verið breytt í 19:30. Emailið er sent á þann máta að eg fæ ekki nýtt email, ég fæ bara nýtt svar inná sama email. Senni­lega hefur nÿja emailið farið fram­hjá mée vegna þess ég hafði emailið opið enda þau send nán­ast á sama tíma.

Ég fékk samt bara þetta eina sms um að það yrði flogið kl 21:05 og ef það hefði verið aftur breytt frá 21:05 yfir í 19:30 af hverju stendur í email að breyt­ingin færi úr 19:30 í 19:30?!“

Tinna neydd­ist því til að bóka nýtt flug, snemma næsta dags en mið­inn hækk­aði um ríf­lega 30.000 krónur og það rétt fyrir jól.

„Ég þurfti að bóka nýtt flug, kl 08:00 dag­inn eftir. Börnin í pössun og of sein í vinn­una og þegar ég hringdi í icelandair dag­inn eftir til að upp­lýsa þau um þessar mis­færslur hjá sér fékk ég neitun um end­ur­greiðslu. Bara sorry, korter í jól. Þetta er algjör­lega galið, hvaða bull er þetta?

Þetta eru ófag­leg vinnu­brögð og óvand­aðar mót­tökur. Ojj bara, það er umtalað hvernig þetta milli­landa­flug lætur gagn­vart við­skipta­vinum sínum.“

Bætti Tinna við í athuga­semd að þessi auka­kostn­aður sé ekki léttur fyrir ein­stak­ling og kvartar undan lélegum vinnu­brögðum Icelandair.

„Ég þurfti að kom­ast og 44.000 kr kostn­aður end­aði í 75.000 kr. kostn­aði. Þetta er ekk­ert létt fyrir ein­stak­ling að þurfa að reiða þetta fram og að Icelandair firri sig ábyrgð á svo mjög greini­lega lélegum vinnu­brögðum og upp­lýs­inga­gjöf svo að nán­ast tryggt sé að um skuli vill­ast. Þetta eru víst mis­tök hjá flug­fé­lag­inu og ætti víst að end­ur­greiða mér.“

Kristrún nokkur skrifar athuga­semd við færslu Tinnu og seg­ist hafa lent í því sama með þetta flug en að hún hafi verið svo heppin að hafa fengið hug­boð um að eitt­hvað stæð­ist ekki:

„Ég lenti í þessu sama. Strák­ur­inn minn átti flug 19:30 og ég fékk þessi sömu skila­boð og þú og hélt að flugið hans yrði 21:05. Kl.18:40 þegar við vorum að borða fékk ég eitt­hvað hug­boð og kíkti á málin og sá þá að það var einmitt búið að breyta e-mail­inu en engin til­kynn­ing kom þar um. Eins kíkti ég á flightradar24 og sá að vélin var lögð af stað úr Rvk. Þannig að ég hent­ist með hann í stresskasti út á völl og hann fór suður. Hins vegar var nafnið þitt tvisvar kallað upp meðan ég var þarna og mig grun­aði að þú hefðir einmitt lent í þessu. Þetta er gjör­sam­lega óþol­andi. Og ekki í fyrsta skiptið sem svona hringl er í gangi.“

Rokksöngv­ar­inn Stefán Jak­obs­son eða Stebbi Jak eins og hann er oft kall­aður skrif­aði einnig athuga­semd við færslu Tinnu og segir hafa efni í heila bók:

„Ég get skrifað mjög fyndna bók um sam­skipti mín við þetta flug­fé­lag.Fólk mundi halda að þetta væri skáld­saga sem þetta væri ekki.“

Ekki náð­ist í Icelandair við gerð frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð