InnlentSex sváfu hjá lögreglu Sex manns gistu fangaklefa lögreglunnar í nótt fyrir ýmsar sakir. Þeir standa fyrir málum sínum með nýjum degi. Tveir búðarþjófar voru við iðju sina í sömu verslun íausturborginni. Báðir voru staðnir að verki. Mál þeirra voru afgreidd á vettvangi. Ökumaður stöðvaður í akstri, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við leit á honum og í bifreiðinni fundust fíkniefni. Ökumaðurinn var...
InnlentEfling veður í 108 fyrirtæki: „Grípa til margþættra aðgerða“ Í tilkynningu frá stéttarfélaginu Eflingu er greint frá því að félagð hafi sent tölvupóst á 108 veitingastaði á höfuðborgarsvæðinu sem eru aðilar að SVEIT, samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði. Í póstinum er þeim gerð grein fyrir að þeim aðgerðum sem Efling mun beita vegna kjarasamnings SVEIT við hið meinta gervistéttarfélagið Virðingu, sem SVEIT stendur sjálft að baki að sögn Eflingar. „Efling...
InnlentRíkið styrkir hjálparsamtök um 25 milljónir: „Mikilvægt að við getum öll notið jólanna“ Bjarni Benediktsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur veitt samtals 25 milljónum króna til hjálparsamtaka um land allt sem styðja við viðkvæma hópa sem leita þurfa aðstoðar í aðdraganda jólanna, svo sem með mataraðstoð segir í tilkynningu frá stjórnarrápinu Alls 10 hjálparsamtökum var veittur styrkur en um er að ræða Hjálpræðisherinn, Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefndir í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Akranesi, Fjölskylduhjálp Íslands,...
InnlentFleiri vilja Kristrúnu sem forsætisráðherra en Ingu og Þorgerði Líklegt þykir að næstu vikum verði kynnt til leiks stjórn mynduð af Flokki fólksins, Viðreisn og Samfylkingunni en flokkarnir bættu allir rækilega við sig í seinustu alþingiskosningum. Þessi mögulega stjórn hefur þegar fengið viðurnefnið „Valkyrjustjórnin“ vegna formanna flokkanna. Því spurðum við lesendur Mannlífs: Hvaða valkyrju viltu sjá sem næsta forsætisráðherra? Tæpur helmingur þeirra sem svaraði vill fá Kristrúnu sem næsta...
InnlentGuðmundur bætti gamalt íslenskt sundmet á HM – Lenti í 40. sæti Sundgarpurinn Guðmundur Leó Rafnsson bætti unglingamet sem Örn Arnarsson setti árið 1999. Guðmundur var að keppa í HM í sundi í morgun og keppti hann í 100m baksundi þegar hann bætti metið og synti á 52,69 sekúndum en gamla metið var 53,14 sekúndur. Tími Guðmundar skilaði honum hins vegar aðeins 40. sæti. Aðrir Íslendingar sem kepptu voru Vala Dís Cicero...
Innlent„Hann drap köttinn okkar“ Drápshundar í Langholtshverfi réðust á ketti í hverfinu í gær og drápu þá. Talið er að hundarnir séu þeir sömu og áður hafa komið við sögu dráps á köttum. Hundarnir eru taldir vera af tegudinni Weimaraner. „Það var rétt í þessu laus hundur í Efstasundi og hann drap köttinn okkar. Veit einhver hver á þennan hund eða hunda? Kötturinn reyndi...
InnlentRæningi beitti rafstuðtæki á fórnarlamb – Öskrandi kona var á jákvæðum nótum Ræningi með rafstuðtæki var handtekinn í miðborg Reykjavíkur. Hann er grunaður um að hafa beitt vopninu á fórnarlamb sitt. Ofbeldismaðurinn var handtekinn á vettvangi og vistaður í fangaklefa. Málið er í rannsókn. Brotist var inn í í verslun í Múlunum. Ökumaður handtekinn grunaður um akstur áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna. Ökumaður handtekinn og færður á lögreglustöð í hefðbundið ferli....
InnlentÍslenskur karlmaður dæmdur í 12 ára fangelsi á Akureyri Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið dæmdur í 12 ára fangelsi eftir að hafa orðið sambýliskonu sinni að bana. Hann var sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás og brot í nánu sambandi, sem leiddi til andláts konunnar, en sýknaður fyrir manndráp samkvæmt RÚV. Maðurinn þarf að greiða átta milljonir í miskabætur og útfararkostnað en konan fannst látin á Akureyri á heimili sínu fyrr...
InnlentSigurður Fannar ákærður fyrir manndráp – Sagður hafa banað dóttur sinni Sigurður Fannar Þórsson hefur verið ákærður fyrir manndráp en hann er grunaður um að hafa banað tíu ára dóttur sinni en mbl.is greindi frá málinu. Sigurður var handtekinn af lögreglu eftir að hann hringdi og tilkynnti að hann hafi banað dóttur sinni en hann var handtekinn við Krýsarvíkurveg og fannst lík dóttur hans skammt frá. Í íslenskum lögum má einstaklingur...
InnlentEldgosinu lokið – 18 dagar síðan gaus Sjöunda eldgosinu í Sundahnúksgígaröðinni er að lokið samkvæmt Veðurstofu Íslands. Þetta var staðfest í dag af Almannavörnum en flogið var með dróna yfir svæðið og ekki nein merki um virkni sáust með drónanum. Síðast sást glóð í gígnum í gærmorgun en eldgosið hófst 20. nóvember og stóð því yfir í 18 daga. Er um að ræða næststærsta eldgosið í Sundahnúksgígaröðinni,...
InnlentSara hæðist að borgaryfirvöldum: „Það er ykkur sjálfum að kenna“ Sara Oskarsson, listamaður og fyrrverandi varaþingmaður Pírata, hæðist að Reykjavíkurborg í nokkuð óvenjulegum pistli sem hún birti í gær. Hún skrifar pistilinn eins og hún sé að tala fyrir hönd borgaryfirvalda. „Kæru borgarbúar Veðurstofan spáir því að á næstu árum gætu röð veðurfræðilegra atvika vel átt sér stað hér á Íslandi. Afleiðingarnar kunna að vera stórskrítinn snjór, furðuleg rigning, nú...
InnlentBaggalútsgestir látnir blása í rassíu lögreglu: „Þetta voru átján karlar“ Tuttugu og fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina segir í tilkynningu frá lögreglunni. 19 voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Kópavogi, tveir í Hafnarfirði og einn í Garðabæ. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, þrettán á laugardag, átta á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags. Samkvæmt heimildum Mannlífs voru gestir á jólatónleikum Baggalúts meðal þeirra sem...