Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Efling veður í 108 fyrirtæki: „Grípa til margþættra aðgerða“

Efling veður í 108 fyrirtæki: „Grípa til margþættra aðgerða“
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd/skjá­skot RÚV

Í til­kynn­ingu frá stétt­ar­fé­lag­inu Eflingu er greint frá því að félagð hafi sent tölvu­póst á 108 veit­inga­staði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem eru aðilar að SVEIT, sam­tökum fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði. Í póst­inum er þeim gerð grein fyrir að þeim aðgerðum sem Efling mun beita vegna kjara­samn­ings SVEIT við hið meinta gervi­stétt­ar­fé­lagið Virðingu, sem SVEIT stendur sjálft að baki að sögn Eflingar.

„Efling hefur undir höndum félaga­tal SVEIT sem dag­sett er 11. sept­em­ber 2023. Það félaga­tal var lagt fram vegna dóms­máls SVEIT á hendur Eflingu fyrir Félags­dómi, sem SVEIT tap­aði. Í erindi Eflingar, sem Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður und­ir­ritar, eru for­svars­menn veit­inga­stað­anna beðnir um að senda til­kynn­ingu til Eflingar séu þeirra fyr­ir­tæki ekki lengur aðilar að SVEIT,“ segir í til­kynn­ing­unni.

„Svo sem áður hefur verið greint skil­merki­lega frá er Virðing gervi­stétt­ar­fé­lag, stýrt af atvinnu­rek­endum úr röðum SVEIT og nánum fjöl­skyldu­með­limum þeirra, en ekki verka­fólki. Svo­kall­aður kjara­samn­ingur milli Virð­ingar og SVEIT er, fyrir utan að sam­rým­ast ekki ákvæðum íslenskra laga, til þess gerður að skerða rétt­indi starfs­fólks til hags­bóta fyrir atvinnu­rek­endur.

Vegna þessa mun Efling grípa til marg­þættra aðgerða sem snúa bæði beint að SVEIT og ein­stökum aðild­ar­fyr­ir­tækjum SVEIT. Eru þær aðgerðir nánar raktar í erindi Eflingar sem fer hér að neðan.“

Hægt er að lesa tölvu­póst Eflingar til veit­inga­stað­anna hér fyrir neðan:

Erindi Eflingar til veitingastaða í SVEIT

Reykja­vík, 10. des­em­ber 2024

Efni: Aðild fyr­ir­tækis þíns að SVEIT og aðgerðir Eflingar því fylgj­andi

Efling – stétt­ar­fé­lag hefur undir höndum félaga­tal Samtaka fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði (SVEIT) dag­sett 11.9.2023. Félaga­skráin var lögð fram af SVEIT vegna dóms­máls sem sam­tökin höfð­uðu í Félags­dómi á hendur Eflingu og töp­uðu.

Samkvæmt félaga­tali þessu, sem eru nýj­ustu til­tæku upp­lýs­ingar Eflingar, er ofan­greint fyr­ir­tæki þitt með­limur í SVEIT. Ég biðst fyr­ir­fram vel­verð­ingar séu þær upp­lýs­ingar ekki réttar. Sé fyr­ir­tæki þitt ekki lengur aðili að SVEIT bið ég þig að senda til­kynn­ingu þess efnis við fyrsta tæki­færi á net­fang mitt [email protected] og bið ég þig þá jafn­framt að hunsa erindi þetta.

SVEIT stendur á bak við félagið “Virðing” sem kynnt hefur verið rang­lega sem stétt­ar­fé­lag. Í stjórn “Virð­ingar” sitja atvinnu­rek­endur úr röðum SVEIT og nánir fjöl­skyldu­með­limir þeirra. “Virðing” er ekki stétt­ar­fé­lag heldur sýnd­ar­gjörn­ingur settur upp í þeim til­gangi að blekkja starfs­fólk í veit­inga­geir­anum til að sam­þykkja lægri kjör en þeim ber sam­kvæmt kjara­samn­ingi Eflingar við Samtök atvinnu­lífs­ins (SA).

“Virðing” hefur und­ir­ritað svo­kall­aðan kjara­samn­ing við SVEIT dags. 25.10.2024 þar sem laun starfs­fólks á veit­inga­húsum fara undir þann lág­marks­rétt sem kveðið er á um í kjara­samn­ingi Eflingar og SA, rétt­indi þeirra skert í ótal atriðum og gengið gegn ákvæðum laga sem tryggja rétt­indi starfs­fólks varð­andi orlof, veik­indi o.fl.

Efling hefur gert opin­ber­lega grein fyrir öllu ofan­greindu, m.a. á vef­síðu félags­ins www.efling.is, og reikna ég með að umfjöllun í fjöl­miðlum þar að lút­andi hafi ekki farið fram hjá þér.

Vegna þessa mun Efling grípa til aðgerða sem snúa bæði að SVEIT og að ein­stökum aðild­ar­fyr­ir­tækjum SVEIT. Þessar aðgerðir munu m.a. fela í sér eft­ir­far­andi:

  • Könnun á laga­legum grund­velli þess að kæra ein­stök aðild­ar­fyr­ir­tæki SVEIT til lög­reglu, með vísan til ákvæða 26. kafla almennra hegn­ing­ar­laga um auðg­un­ar­brot. Brot á ákvæðum þessum geta varðað fang­elsi allt að sex árum.
  • Opinber birt­ing á nöfnum og vöru­merkjum aðild­ar­fyr­ir­tækja SVEIT.
  • Aug­lýs­inga­her­ferð þar sem sér­stök áhersla verður lögð á að birta nöfn og vöru­merki aðild­ar­fyr­ir­tækja SVEIT.
  • Heim­sóknir á vett­vang þar sem starfs­fólk aðild­ar­fyr­ir­tækja SVEIT verður upp­lýst um árásir SVEIT á launa­kjör og rétt­indi þeirra og upp­lýst um aðild við­kom­andi fyr­ir­tækis að SVEIT.
  • Aðgerðir á vett­vangi þar sem við­skipta­vinir aðild­ar­fyr­ir­tækja SVEIT verða upp­lýstir um árásir SVEIT á launa­kjör og rétt­indi starfs­fólks og upp­lýstir um aðild við­kom­andi fyr­ir­tækis að SVEIT.
  • Stuðn­ingur við mót­mæli og lög­mæta and­spyrnu starfs­fólks aðild­ar­fé­laga SVEIT á vett­vangi gegn hvers kyns árásum SVEIT á launa­kjör og rétt­indi starfs­fólks.
  • Stuðn­ingur við allt starfs­fólk veit­inga­húsa, hvort sem það hefur greitt til iðgjöld til Eflingar eða ekki, við gerð launa­krafna þar sem kraf­ist verður greiðslu launa í sam­ræmi við lög­legan samn­ing Eflingar við Samtök atvinnu­lífs­ins. Slíkum kröfum verður fylgt eftir fyrir dóm­stólum og mun Efling birta opin­ber­lega nöfn þeirra fyr­ir­tækja sem svíkja starfs­fólk um laun með þessum hætti.

Sólveig Anna Jóns­dóttir
for­maður Eflingar – stétt­ar­fé­lag

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag