InnlentVinsæll sendiherra Japan kveður Ísland: „Ég þarf að yfirgefa þetta fallega land“ Ryotaro Suzuki, sendiherra Japan á Íslandi, þarf að yfirgefa Ísland fljótlega en hann hefur verið skipaður sendiherra í öðru landi. Suzuki greinir frá þessu á Twitter. „Ég hef verið skipaður sendiherra í Samóa, sem er þjóð í Suður-Kyrrahafi. Það þýðir að ég þarf að yfirgefa þetta fallega land fljótlega. Takk fyrir alla þá hjálp og stuðning sem ég hef fengið...
InnlentAlexandra Briem: „Ef þú styður Trump, þá ertu andstæðingur minna réttinda“ Alexandra Briem segir að þeir sem styðji Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseta, séu andstæðingar réttinda hennar, en hún er er transkona. Frambjóðandi Pírata fyrir komandi kosningar, Alexandra Briem skrifaði Facebook-færslu þar sem hún birtir setningu frá framboðssíðu Donalds Trump, þar sem kemur fram að hann muni biðja Bandaríkjaþing að samþykkja frumvarp sem kveður á um að ríkisstjórnin viðurkenni aðeins tvö kyn...
InnlentHefur þú tekið þátt í mótmælum? Fjöldi mótmæla hefur aukist á Íslandi á undanförnum árum og virðist vera sem þau séu orðin hluti af daglegu lífi margra á Íslandi. Sumum finnst mótmæli gjörsamlega fáránleg og þjóni engum tilgangi meðan öðrum þykja mótmæli vera lykilhlutur til að berjast fyrir breytingum í samfélaginu. Mannlíf spyr því lesendur: Hefur þú tekið þátt í mótmælum? SvarHlutfallJá 59.21%59,21%Nei 40.79%40,79% Könnun þessari...
InnlentFáir treysta Sigurði Inga í efnahagsmálum – Kristrún Frostadóttir nýtur yfirgnæfandi trausts Kristrúin Frostadóttir nýtur langmests trausts landsmanna þar sem kemur að efnahagsmálum. Í skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Samfylkinguna kemur í ljós að 37,5 prósent landsmanna telja að Kristrúnu sé best treystandi til að leiða efnahagsmálin. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, fær næstbesta niðurstöðu í könnuninn. 17.5 prósent aðspurðra töldu hann vera hæfastan til að leiða þjóðina í efnahagsmálum. 17 prósent...
InnlentHópslagsmál í Breiðholti Ökumaður var kærður fyrir að aka um Reykjavík án þess að vera með tendruð aðalljós. Mál hans var afgreitt með vettvangsskýrslu. Annar ökumaður var staðinn að verki við akstur án gildra ökuréttinda. Mál hans einnig afgreitt með vettvangsskýrslu. Tveir voru handteknir grunaðir um innbrot í fyrirtæki í austurborginni. Vistaðir í þágu rannsóknar málsins. Tveir ökumenn voru stöðvaðir fyrir akstur undir...
InnlentStefán greinir sigur Trump: „Mjög efins um að breytingin verði mikil“ Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson hefur í gegnum árin haft mikinn áhuga á bandarískum stjórnmálum og hann setti inn áhugaverða færslu á samfélagsmiðla um kjör Donald Trump sem forseta Bandaríkjanna þar sem hann greinir mögulega áhrif. „Þessi úrslit munu fyrst og fremst hafa áhrif á fólkið sem býr í Bandaríkjunum og þau í mörgum tilvikum afar slæm – amk út frá mínu...
InnlentSamfylkingin krefst leiðréttingar á frétt Viðskiptablaðsins um fyrri störf frambjóðenda Samfylkingin krefst þess að Viðskiptablaðið leiðrétti netfrétt sína sem birtist í gær, sem fjallaði um fyrri störf efstu frambjóðenda flokksins. Viðskiptablaðið staðhæfir í frétt sinni í gær að aðeins 6,7 prósent af efstu frambjóðendum Samfylkingarinnar kæmur úr störfum á almennum vinnumarkaði. Þetta segir flokkurinn vera rangt, í fréttatilkynningu sem send var á fjölmiðla í dag. Samkvæmt henni koma 20 prósent...
InnlentEkki marktækur munur á Viðreisn og Samfylkingunni: „Þetta er náttúrulega alveg risa stökk“ Fylgi Viðreisnar mælist nú álíka hátt og fylgi Samfylkingarinnar, í nýrri könnun Maskínu sem gerð var fyrir Vísi. Hætta er á að metfjöldi atkvæða falli niður dauður, samkvæmt prófessor í stjórnmálafræði. Talsverð hreyfing er á fylgi flokka samkvæmt könnun Maskínu sem gerð var frá 1. til 6. nóvember en Samfylkingin tapar einu og hálfu prósentustigi á milli kannana. Flokkurinn fer...
InnlentLögreglan óskar eftir vitnum – Range Rover og Jeep Compass áttu í hlut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að tveggja bíla árekstri sem varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegs í Reykjavík fimmtudagskvöldið 24. október, en tilkynning um áreksturinn barst kl. 19.42 en greint er frá þessu í tilkynningu frá embættinu.Í aðdragandanum var annarri bifreiðinni (hvítum Range Rover) ekið suður Kringlumýrarbraut, en hinni bifreiðinni (hvítum Jeep Compass) ekið norður Kringlumýrarbraut, en ökumaður hennar...
InnlentMeirihluti vill að Ísland gangi í ESB Nú er stutt í Alþingskosningar og hafa hinir ýmsu flokkar mismunandi stefnur þegar kemur að mögulegri inngöngu Ísland í ESB en eins og staðan er í dag er Ísland hluti ef EES, sem hægt að kalla litla bróður ESB. Sumum finnst hugmyndin fráleit og slíkt myndi aðeins grafa undir sjálfstæði Íslands meðan aðrir telja að það góða hugmynd og að...
InnlentVilli Valli er látinn Einn þekktasti tónlistarmaður Vestfjarða, Villi Valli, er látinn, 94 ára að aldri. Blessuð sé minning hans. Villi Valli, sem hét fullu nafni Vilberg Valdal Vilbergsson fæddist á Flateyri 26. maí árið 1930 og bjó mest alla ævi fyrir vestan, lengst af á Ísafirði, þar sem hann starfaði sem hárskeri. Samkvæmt vefsíðunni Glatkistan.is kynntist Villi Valli tónlistinni snemma á æskuárunum á...
InnlentVerðlaunahafar menntaverðlaunanna stoltir – Helgafellskóli þjálfar gagnrýna hugsun Þrjár menntastofnanir og þrír grunnskólakennarar eru handhafar Íslensku menntaverðlaunanna 2024 en tilkynnt var um úrslit þeirra í gær, miðvikudaginn 6. nóvember, með hátíðlegri athöfn á Bessastöðum en greint er frá þessu í fréttatilkynningu frá embætti forseta Íslands Markmið verðlaunanna er sem fyrr að vekja athygli á og hefja til vegs í samfélaginu það metnaðarfulla og vandaða starf sem unnið er...