Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Villi Valli er látinn

Villi Valli er látinn
kerti

Einn þekkt­asti tón­list­ar­maður Vest­fjarða, Villi Valli, er lát­inn, 94 ára að aldri.

Blessuð sé minn­ing hans.

Villi Valli, sem hét fullu nafni Vilberg Valdal Vil­bergs­son fædd­ist á Flateyri 26. maí árið 1930 og bjó mest alla ævi fyrir vestan, lengst af á Ísafirði, þar sem hann starf­aði sem hár­skeri. Samkvæmt vef­síð­unni Glatkistan.is kynnt­ist Villi Valli tón­list­inni snemma á æsku­ár­unum á Flateyri en hann var far­inn að fikta við harm­on­íum orgel í kringum fimm ára ald­ur­inn. Þegar hann var aðeins tíu ára gam­all skemmti hann á barna­balli stúku sem hann var í. Á sama tíma var hann einnig orð­inn fær á harm­on­ikk­una, en hann var sjálf­nema á bæði hljóð­færin.

Þegar Villi Valli var ein­ungis 12 ára gam­all lék hann fyrst á dans­leikjum vestra en not­að­ist þá við harm­on­ikku sem hann leigði en sjálfur eign­að­ist hann nikku 14 ára gam­all. Á sínum yngri árum lék hann á fjöl­mörgum böllum og spil­aði þá ýmist einn eða með öðrum nikku­leik­ara, áður en hann fór að spila í hljóm­sveitum.

Þegar Villi Valli var átján ára vann hann í síld í Djúpuvík á Ströndum en þar kenndi Guð­mundur Norðdahl, vinnu­fé­lagi hans, honum að lesa nótur. Guð­mundur, sem sjálfur var klar­inettu­leik­ari, kenndi Villa Valla einnig að spila á saxa­fón. Stuttu síðan stofn­aði hann sína fyrstu hljóm­sveit heima á Flateyri en hún hét S.V.O. tríóið sem sam­an­stóð af tveimur harm­on­ikku­leik­urum og trymbli en Villi Valli not­aði þó frekar píanó þegar það var í boði. Tríóið lék næstu tvö sumur en á vet­urna lék hann með M.G. tríó­inu á Ísafirði.

Árið 1950 fór Villi Valli til Reykja­víkur til að reyna að kom­ast í iðn­nám, sem mistókst. Hóf hann þá störf í fisk­vinnslu en starf­aði einnig í lausa­mennsku í tón­list­inni. Lék hann í borg­inni með ýmsum hljóm­sveitum um helgar. Þá um vorið snéri hann aftur vestur á Ísafjörð þar sem hann hóf nám í hár­skurði. Um svipað leyti hóf hann að leika með Lúðra­sveit Ísa­fjarðar, sem og að leika með hinum og þessum hljóm­sveitum, flestum í hans nafni. Næstu árin starf­rækti Villi Valli fjöldan allan af hljóm­sveitum, af ýmsum stærðum og gerðum en þær hétu nöfnum á borð við V.V. sextett, V.V. tríó, V.V & Barði og fleira. Þá tók hann við stjórn lúðra­sveit­ar­innar árið 1959 þegar stjórn­andi hennar, hár­sker­inn Harry Her­luf­sen flutti úr bænum. Keypti Villi Valli að auki rak­ara­stofu Harrys sem hann starf­rækti allt þar til hann fór á eft­ir­laun.

V.V. & Barði árið 1962. Hljóm­sveit­ar­með­limir eru, frá vinstri í aft­ari röð: Barði Ólafsson, Magnús Reynir Guð­munds­son, Þórarinn Gíslason og Ólafur Krist­jáns­son. f fremri röð eru Guð­mundur Mar­in­ós­son, Vilberg Vil­bergs­son og Ólafur Karvel Pálsson.

Lúðra­sveit­ina stjórn­aði Villi Valli til árs­ins 1969 en lék áfram með hinum ýmsu hljómsceitum, meðal ann­ars Sexmenn, Salt­fisk­sveit Villa Valla og Villi, Gunni og Haukur. Árið 2000, þegar hann varð sjö­tugur, gaf Villi Valli út plötu sem bar nafn hans en þar var að finna fjórtán lög eftir hann en fjöld­inn allur af lands­þekktum tón­list­ar­mönnum komu að gerð hennar, undir stjórn Eyþórs Gunn­ars­sonar.

Átta árum síðar, 2008, kom út önnur plata í hans nafni sem hlaut nafnið Í tím­ans rás og var gefin út af 12 tónum. Þar lögðu honum margir lið, bæði vest­firskir tón­list­ar­menn sem og sunn­lenskir, á borð við Flís-tríóið. Barna­barn Villa Valla, Viðar Hákon Gíslason, sem leikið hefur með hljóm­sveitum á borð við Trabant, hafði veg og vanda að verk­efn­inu en um var að ræða djass­skotna tón­list. Hlaut platan glimmr­andi dóma.

Árið 2018 var Villi Valli gerður að heið­urs­borg­ara Ísa­fjarð­ar­bæjar.

Eig­in­kona hans var Guðný Magn­úss­dóttir, (d. 2017). Þau áttu 4 börn, 8 barna­börn, 5 barna­barna­börn og eitt barna­barna­barna­barn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ