InnlentBanaslys á Sæbraut í nótt: „Framkoma sumra í nótt dapurleg“ Banaslys varð á Sæbraut í Reykjavík í nótt, en þar var fólksbifreið ekið norður Sæbraut, á milli Súðarvogs og Kleppsmýrarvegar, og á gangandi vegfaranda sem var á leið yfir götuna til austurs. Tilkynning um slysið barst tíu mínútum eftir miðnætti og héldu viðbragðsaðilar strax á vettvang, en því miður var vegfarandinn látinn er að var komið. Lokað var fyrir umferð...
InnlentStyrktartónleikar fyrir móður Kolfinnu Eldeyju: „Hymnodia vill styðja við góðan félaga í kórnum“ Þann 2. október heldur Kammerkórinn Hymnodia styrktartónleika í Akureyrarkirkju fyrir móður Kolfinnur Eldeyjar, litlu stúlkunnar sem fannst látin við Krýsurvíkurveg fyrir stuttu. Akureyri.net segir frá tónleikunum. Í tilkynningu frá kórnum segir: „Hymnodia vill styðja við góðan félaga í kórnum og fjölskyldu hans eftir erfiðan missi ungrar stúlku, Kolfinnu Eldeyjar. Fjöldi vina kórsins úr hópi norðlensks tónlistarfólks slæst í för með...
InnlentSanna grét yfir kvikmynd og skrifaði pistil: „Fátækt smýgur inn í alla króka og kima lífs þíns“ Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifaði pistil á Vísi í gær sem slegið hefur í gegn en hann erum fátækt. Borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, Sanna Magdalena Mörtudóttir segist í Facebook-færslu sem hún ritaði í gær, hafa verið að horfa á mynd í sjónvarpinu sem fjallaði um fátækt. Við áhorfið hafi hún ekki náð að slaka á heldur byrjuðu tárin að leka niður kinnar hennar...
InnlentVegfarendur trufluðu störf lögreglu eftir alvarlegt umferðarslys – Kom á bráðamóttöku með stungusár Tólf einstaklingar gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Hér eru brotabrot af verkefnum lögreglunnar frá 17:00-05:00. Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna einstaklings sem var til vandræða fyrir utan skemmtistað í miðbænum en dyraverðir voru komnir með hann í tök. Var einstaklingurinn settur í handjárn þegar lögreglumenn komu á vettvang til að tryggja öryggi á vettvangi. Við leit fannst...
InnlentSigmundur Þórisson er látinn Sigmundur Þórisson, rafmagnsiðnfræðingur og fyrrum formaður Knattspyrnufélags Akureyrar er látinn, 78 ára að aldri. Sigmundur fæddist 30. mars 1946 í Reykjavík en lést á Hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri 20. september síðastliðinn. Akureyri.net segir frá andlátinu. Foreldrar Sigmundar voru þau Þórir Högni Bergsteinsson múrarameistari og Þuríður Sigmundsdóttir, húsmóðir og skrifstofumaður. Systkini hans eru þau Svava Ragnhildur Eatough, fædd 1. apríl 1940,...
InnlentHálka víða á fjallvegum – Frostið gæti farið í tvær gráður í nótt Vegagerðin hefur gefið út hálkuviðvaranir á vegum víðsvegar á landinu. Samkvæmt Vegagerðinni má búast við hálku á fjallvegum víða um land og þá sérstaklega á morgnana og biður vegfarendur að kanna aðstæður áður en lagt er af stað. Á Austurlandi eru víða hálkublettir á fjallvegum og má búast við að hálkan aukist þar sem spáð er snjókomu í nótt og...
InnlentAnna rifjar upp hið mannskæða Estonia-slys: „Hún kom aldrei til baka“ Þrjátíu ár eru liðin frá einu mannskæðasta sjóslysi sögunnar er farþegaferjan Estonia fórst í Eystrasalti. Anna Kristjánsdóttir rifjar upp þegar fregnir bárust um slysið en hún kannaðist við einn farþegann sem fórst. „Í nótt voru liðin 30 ár frá þessu hræðilega sjóslysi. Ég var á næturvakt við Hässelbyverket, kraftvarmaveri í Hässelby í úthverfi Stokkhólms, nýlega komin heim til Stokkhólms frá...
InnlentKvenfélagasamband Ísland afhenti veglega gjöf til allra kvenna á Íslandi Fimmtudaginn 26. september afhentu Kvenfélagskonur gjöf til allra kvenna á Íslandi. Afhendingin fór fram á Sjúkrahúsinu á Akranesi en um er að ræða mónitora sem skrá fósturhjartslátt og ómtæki. Kvenfélagasamband Íslands var stofnað 1. febrúar 1930 og fagnaði 90 ára afmæli árið 2020. Í tilefni þess stóðu kvenfélög um allt land fyrir söfnun fyrir tækjum og hugbúnaði því tengdu til...
InnlentHæstaréttarlögmaður vill láta rannsaka starfshætti lögreglunnar á Norðurlandi eystra Jakob R. Möller hæstaréttarlögmaður segir símastuldar- og byrlunarmál skipstjórans Páls Steingrímssonar vera stórfurðulegt og að rannsaka þurfi starfshætti lögerglunnar á Norðurlandi eystra. Í samtali við Morgunblaðið segir Jakob R. Möller hæstaréttarlögmaður að lögreglan á Norðurlandi eystra hafi áttað sig á því alltof seint „að hún væri í tómri vitleysu með rannsóknina“ í máli Páls Steingrímssonar. Segir hann að útskýringar lögreglunanr...
InnlentHandtóku mann sem var með útdraganlega kylfu – Tveir sváfu ölvunarsvefni á víðavangi Samkvæmt dagbók lögreglunnar sinnti lögreglan á höfuðborgarsvæðinu 82 málum milli 17:00 til 05:00 í nótt. Hér fyrir neðan má sjá brot af þeim málum. Lögreglan sem vinnur í Austurbænum, Miðbænum, Vesturbænum og á Seltjarnarnesi stöðvaði ökumenn tveggja bíla en annar þeirra reyndist undir áhrifum fíkniefna og hinn drukkinn. Tilkynnt var um slagsmál fyrir utan skemmtistað í Miðbænum en ekki fylgir...
InnlentSjálfstæðismenn súrir vegna gatnamóta: „Einhverjar mestu umferðartafir í gatnakerfi borgarinnar“ Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borginni eru flestir mjög ósáttir við framgöngu meirihlutans þegar kemur að gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar en telja þeir að mikilvægt sé framkvæmdum þar verði flýtt til að bæta umferðaröryggi. Lagði flokkurinn fram tillögu um málið á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur þann 25. september en henni var vísað frá af meirihlutanum. Tillagan Sjálfstæðisflokksins var svohljóðandi: Umhverfis- og...
InnlentLögreglan lýsir eftir tveimur mönnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir tveimur mönnum, sem hún þarf að ná tali af. Í tilkynningu þess efnis eru þeir sem þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna í síma 444 1000, en upplýsingum megi jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected]